Dagrenning - 01.08.1951, Qupperneq 15

Dagrenning - 01.08.1951, Qupperneq 15
ur á þingræðinu, og afstaðan til þessara til- lagna fer svo eftir því hvort flokkur sá, sem í hlut á, telur það betra eða verra fyrir stund- arhagsmuni sína, að tillagan næði fram að ganga. Ljóst dæmi þessa er deilan um kosninga- fyrirkomulagið og kjördæmaskipunina, sem ávalt verður aðalatriðið þegar hér á landi er rætt um stjórnarskrána. Enginn neitar því, að þetta eru hvorttveggja þýðingarmikil at- riði. En þó fer gildi þeirra mjög eftir því hvort stjórnarskráin gerir ráð fyrir aðgreindu framkvæmdar- og löggjafarvaldi, eða hún gerir ráð fyrir þessu valdi sameinuðu í hönd- um þingsins. Annars vegar standa þeir, sem ætla að allt batni við það, að upp verði tekin eintóm einmenningskjördæmi, en hins vegar þeir, sem telja sem víðtækastar hlut- fallskosningar allra rneina bót. En sannleik- urinn er sá, að hvorttvegg/a sjónarmiðið er rangt. Vor eigin reynsla er þar ólýgnust. Vér höfðum hér eintóm einmennings- og tvímenningskjördæmi, og þau voru upphaf- lega miðuð að mestu við fólksfjölda. En þess var ekki gætt að brevta þeim og fjölga þeim eftir því sem fólkið fluttist til í landinu og fjölgaði, og þar kom, að misréttið varð með öllu óþolandi. Engir eiga því meiri sök á því en þeir, sem stóðu fastast gegn upptöku ein- menningskjördæmanna þá, og vildu við- halda því ranglæti, sem þá hafði skapazt. Á Alþingi 1931 var borið fram frumvarp um að gera tvo nýja kaupstaði að sjálfstæð- um einmenningskjördæmum — Siglufjörð og Neskaupstað — en Framsóknarflokkur- inn — flokkur einmenningskjödæmanna — lagðist eindregið gegn þeirri breytingu og rauf Alþingi þá, m. a. vegna þessarar sjálf- sögðu kröfu. Það var einnig staðið þverlega gegn skiptingu húmenningskjördæmanna í einmenningskjördæmi, sem oft var ympr- að á, af því, að sá þeirra flokka, sem hafði meiri hluta í tvímenningskjördæminu, sem skipta átti, lagðist ávallt gegn slíki skiptingu af eiginhagsmunahvötum. Afleiðing þessarar andstöðu hlaut að verða krafan um stærrikjör- dæmi og hlutfallskosningar. Þessi deila end- aði með uppbótarþingsætunum og hlutfalls- kosningum í tvímenningskjördæmunum eins og kunnugt er. í öllum þessum átökum réði ekkert heilbrigt heildarsjónarmið, heldur að- eins þröng flokkasjónarmið, sem ekkert hirtu um hverjar afleiðingarnar yrðu af þessum aðgerðum. En reynslan sýnir einnig annars staðar, að það er alveg sama hvort kerfið er, einmenninngskjördæmi eða hlutfallskosn- nigar, ef engin giögg aðgreining er íögg/afar og framkvæmdarvalds. Stjórnmálaflokkarnir grípa ávalt til þess óyndisúrræðis að hringla með kosningafyrirkomulagið og kjördæma- skipunina hvenær sem þeir telja sig hafa pólitískan hag af því, eða telja sig í hættu stadda. Nærtækasta dærnið í því efni er Frakk- land. Fvrir styrjöldina voru eingöngu eni- menningskjördæmi í Frakklandi. Sú skipan gafst þar ekki betur en svo, að ríkið hrundi til grunna, sundurtætt, við fyrstu árás nasista 1940. Eftir styrjöldina voru teknar upp hlut- fallskosningar, og þær reyndust þannig, að kommúnistar urðu stærsti þingflokkurinn. Nú var svo komið strax á fyrsta kjörtímabili, að sýnt þótti að De Gaule og kommúnistar mundu skipta þjóðinni í tvær höfuðfvlking- ar og aðrir flokkar að mestu leyti hverfa. — Jafnvel socialdemokratar, sem altaf hafa verið stór flokkur þar í landi voru stórum uggandi um hag sinn. Þess vegna greip franska þingið til þess ráðs, að breyta enn kosningafyrirkomulaginu til þess að reyna að fyrirbvggja, að þjóðin skiptist í tvær and- stæðar höfuðfylkingar milli kommúnista og hreyfingar De Gaules. Má af þessu glögg- lega sjá í hvert óefni þar er komið og hvert öngþveiti framundan er, og spá mín er sú, að þess verði ekki ýkja langt að bíða, að DAGRENNING 13

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.