Dagrenning - 01.08.1951, Side 33

Dagrenning - 01.08.1951, Side 33
framan. Hér skal þó ekkert fullyrt um það — enda ekki tilgangur þessarar greinar að gagn- rýna þessa kenningu til neinnar hlítar. En það er fjölyrt um þetta hér, sem dæmi um fimbulfamb sumra þeirra, sem vilja heita vísindamenn og reisa teóríur á einum saman staðleysum eða alveg ósannanlegum efnum, sem þeir gefa sér. Stundum er fimbulfambið skemmtilegt og myndi engu spilla, ef ekki væri sá ljóður á ráði svonefndra upplýstra þjóða, að þær eru geysilega trúgjarnar á flest- allt það, sem borið er fram í nafni vísinda og undanskilja það mestmegnis allri gagnrýni. í því fáa sem þjóð vor hefir lagt til eðlisvís- inda eru staðlausar getgátur naumast til, því að vér höfum yfir höfuð átt óframgjama og varfæma menn á þeim sviðum vísinda. En enginn skyldi þó ætla að vér höfum farið var- hluta af ruglinu. í fræðiritum þessarar aldar um alíslenzk efni, fom og ný, er ósköp mik- ið til af því — jafnvel í ritum prófessara og doktora. * Loks er að minnast á lífsskilyrði annárs- staðar í sólkerfinu og hugsanlegt samband við vitsmunaverur, sem þar kynnu að búa. Um Hfsskilyrðin sjálf kunna menn að fræð- ast með aukinni tækni, en um vitsmunasam- bandið verður að gera þá athugasemd, að þótt vitibornar verur og jafnokar mannanna kynnu að búa á nálægum hnetti eða hnöttum, og ef það kynni að eiga sér stað — sem vart er þó hugsanlegt — að mennimir gætu með nýrri tækni haft samband við þær, þá eru ekki minnstu líkur til þess, að með þeim og mann- inum gæti orðið neinn skilningur né vits- munamiðlun af neinu tagi, eins og mannkyn- ið er nú á vegi statt. Þetta er augljóst ef þess er gætt að fjöldi vitsmunavera lifir á sjálfri jörðinni samtíða manninum. Þar má til dæmis nefna maurana. Þeir eru í fáu síðri steinaldarmanninum og fremri nútíðarmanninum í kvikfjárrækt og húsagerð, kynbótum og ýmsu öðru, að undan skilinni véltækni. Þetta hefir Salómon vitað, þar sem hann ráðleggur manninum að fara tíl mauranna og læra af þeim vizku. En svo fjarri fer því að maðurinn geti komizt í and- legt samband við maurana, þótt vitrir séu, að orð í þá átt láta líkt og öfugmæli. Miklu veldur hér stærðarmunur, en hugsum oss þá jafnstóra manninum. Yrðum vér þá nokkru nær? Alveg fráleitt, og sá yrði að líkindum eini munurinn: að þá hæfist stórstyrjöld milli þessara vitsmunavera, sem myndi að líkind- um enda þannig, að annari hvorri tegund- inni yrði úhýmt af jörðinni. En það er óþarft að sækja dæmið svona langt. Vissulega eru mannflokkranir sjálfir á jörðunni náskyldir, en þó undantekninga- lítið svo frábitnir öllu samneyti, að manna- þefurinn einn vekur gagnkvæman viðbjóð. Þetta kann nú að eiga helzt við um menn, sem lifa á-mjög ólíku menningarstígi, en lít- um þá á hina siðmenntuðu mannflokka svo sem Kínverja og hvíta menn. Hvemig semur þeim? Þannig að hvorir þykjast öðrum fremri og fy'rirlíta hina .Og lítum ennþá nær oss: Hvemig semur þeim sem búa fyrir austan og vestan járntjaldið? Allir vita það. Og þar sem svo er ástatt ,sem raun ber vitni, um vitsmunaverurnar á sjálfri jörðunni, þá þarf meira en litla bjartsýni til þess að halda, að mannkynið myndi geta haft vits- munasamband og sálufélag — jafnvel hið allra minnsta — við enn óskyldari vitsmuna- verur á hnetti eða hnöttum úti í himingeimn- um, þótt kleift yrði að ná til þeirra fjarlægðar vegna. Þetta má ekki skilja svo, að verið sé að veitast að kenningu nýlátins snillings og heimspekings — eins hins mesta sem þjóð vor hefir átt. Hér er aðeins átt við samskifti eins og þau tíðkast í daglegu lífi — þau að einn skilur annan og hefir sarnúð með honum og DAGRENNING 31

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.