Ægir - 01.01.2015, Page 8
8
„Ég hef ekki framleitt fyrir Ítal-
íumarkað áður en við erum að
sjá þessar vikurnar hvernig við-
tökur fyrsta prufusendingin
fær sem við framleiddum fyrir
áramót. Á margan hátt virðist
mér sem Ítalíumarkaður sé
jafnvel sterkari markaður fyrir
saltfiskafurðir en Spánn og
Portúgal. Hagkerfið er sterkara
á Ítalíu en í þeim löndum og
þess utan á saltfiskneysla sér
langa hefð á Ítalíu. Það þekkja
íslenskir saltfiskframleiðendur
í gegnum tíðina að ítalskir
kaupendur hafa gjarnan sóst
eftir dýrasta og besta saltfisk-
inum,“ segir Elvar Reykjalín,
eigandi Ektafisks á Hauganesi
aðspurður um ganginn í salt-
fiskvinnslu og -sölu þessa mán-
uðina. Auk þess að selja frosinn
útvatnaðan saltfisk í neytenda-
umbúðum til útflutnings legg-
ur Ektafiskur áherslu á íslensk-
an neytendamarkað með þá
vöru, sem og fleiri vöruflokka.
Elfar segist leggja áherslu á
framleiðslu á gæðavöru í háum
gæðaflokki fyrir Ítalíumarkað
sem jafnframt er hátt verðlögð.
„Markmiðið er ekki magnið
heldur miklu frekar að byggja
upp markað fyrir hágæðavöru.
Ég er bjartsýnn á að það gangi
eftir skref fyrir skref en ef horft
er til þessara stærstu markaða
fyrir íslenskar saltfiskafurðir í
sunnanverðri Evrópu þá er ít-
alski markaðurinn sá sem borg-
ar hæsta verðið. Síðan koma
Spánverjar og loks Portúgal,“
segir Elvar.
Elvar Reykjalín með fullverkað saltfiskflak. „Hér byggjum við á handverkinu og gömlum hefðum í verkun á saltfiski eins og hann gerist bestur,“ segir hann.
Ektafiskur á Hauganesi:
Framleiða saltfisk í
neytendaumbúðum fyrir
útflutning og heimamarkað
- vaxandi þjónusta við ferðahópa og veitingasala opnuð í sumar
Saltfiskurinn skorinn í bita. Saltfiskbollur framleiðir Ektafiskur fyrst og fremst
fyrir innlendan markað.
F
isk
v
in
n
sla