Ægir - 01.01.2015, Qupperneq 9
9
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
Traustur innlendur markaður
Ektafiskur hóf árið 1991 að selja
útvatnaðan saltfisk í neytenda-
umbúðum í verslunum á Íslandi
en fyrirtækið hefur nú aukið
markvisst sókn sína á Íslandi og
aukið vöruúrval í verslunum, en
afurðir Ektafisks er að finna í
nærfellt öllum matvöruverslun-
um, að Bónusverslununum frá-
töldum.
„Auk saltfisksins erum við að
selja þorsk, ýsu, bleikju, hákarl
og fleiri vörutegundir, allt
frosnar og pakkaðar afurðir. Ís-
lenski neytendamarkaðurinn er
nokkuð stöðugur en við höfum
bætt við okkur markaðsmanni
sem meðal annars hefur lagt
áherslu á að efla vöruframboð
okkar og sýnileika í íslenskum
verslunum. Sú vinna hefur skil-
að ágætum árangri,“ segir Elvar.
Veitingasalur opinn í sumar
Um áraraðir hefur Elvar í Ekta-
fiski tekið á móti ferðamönnum
og hópum, frætt þá um vinnsl-
una, sögu fyrirtækisins og af-
urðirnar og gefið smakk af
framleiðslunni. Góð samvinna
hefur verið við hvalaskoðunar-
fyrirtækið Níels Jónsson ehf. á
Hauganesi um þjónustu við
ferðahópa en nú er Ektafiskur
að útvíkka þennan þátt starf-
seminnar enn frekar.
„Það hefur alltaf verið mikil
spurn frá hópum um að koma í
vinnsluna til okkar en nú erum
við að taka í notkun veitingaað-
stöðu fyrir 50-60 manns sem ég
reikna með að hafa opna í sum-
ar fyrir bæði þá sem eru að
koma í hvalaskoðun og sjó-
stöng frá Hauganesi og aðra
ferðamenn sem leggja leið sína
til okkar. Á síðasta ári var mikið
að gera hjá mér í móttöku á
hópum í vinnslunni en þar er
ég með svolítið uppistand fyrir
gestina og gef þeim að smakka
á vel kæstum hákarli og tári af
landa. Það mælist alltaf vel fyr-
ir,“ segir Elvar.
Ektafiskur í bandarísku sjónvarpi
Meðal þeirra sem heimsóttu
Elvar og fyrirtæki hans í haust
var hópur þáttagerðarmanna
frá Bandaríkjunum sem var hér
á landi að gera Íslandsþátt í
sjónvarpsþáttaseríunni Booze
Traveller. Þennan þátt sáu millj-
ónir manna þegar hann var
sýndur á Þorláksmessu.
„Þeir voru hér hjá okkur heil-
an dag, fóru í sjóstöng í blíð-
skaparveðri, smökkuðu á há-
karli og landa. Þetta var heil-
mikið fjör og hluti af þessum
ágæta Íslandsþætti þar sem
ýmsu er gerð skil. Við höfum
verið að fá til okkar hópa er-
lendra ferðamanna og einnig
íslenska hópa í fyrirtækja- eða
óvissuferðum en með tilkomu
veitingasalarins getum við eflt
þennan þjónustuþátt okkar
enn frekar. Áhugi á að koma inn
í fiskvinnslu, sjá og heyra hvað
við erum að gera í fiskvinnsl-
unni er mikill, bæði hjá innlend-
um sem erlendum gestum,“
segir Elvar.
Elvar Reykjalín með fullverkað saltfiskflak. „Hér byggjum við á handverkinu og gömlum hefðum í verkun á saltfiski eins og hann gerist bestur,“ segir hann.
Elvar við skemmtilegan myndavegg í anddyri vinnslunnar. Þar má sjá að nú er fimmti ættliðurinn í fjölskyldu-
fyrirtækinu byrjaður að hjálpa til í vinnslunni.
Saltaðir þorskhnakkar. Þessi framleiðsluvara Ektafisks fer til veitinga-
húsa á Spáni og Ítalíu. Og þykir herramannsmatur.