Ægir - 01.01.2015, Blaðsíða 10
10
Reykjavík og höfuðborgarsvæð-
ið tróna á toppi lista Fiskistofu
yfir landanir á botnfiski í höfn-
um landsins árið 2014. Þó var
umtalsvert minni botnfiskafla
landað í fyrra en árið 2013, svo
nemur 8,1% á höfuðborgar-
svæðinu öllu og 8,7% í Reykja-
vík. Í báðum tilvikum hafði þó
orðið aukning milli áranna
2012 og 2013. Dalvíkurhöfn
bætti við sig mestu magni af
botnfiski milli ára, eða 3.454
tonnum, sem var 21% aukning.
Líkt og sjá má á meðfylgj-
andi yfirliti var tæplega 88 þús-
und tonnum landað í Reykjavík
í fyrra, samanborið við rösklega
96 þúsund tonn árið 2013.
Horft lengra aftur í tímann sést
að landaður afli var tæplega
104.500 tonn árið 2010 í
Reykjavík og hefur því farið
minnkandi.
Reykjavík er þrátt fyrir þenn-
an mikla samdrátt langstærsta
löndunarhöfn landsins og
magnið rösklega tvöfalt á við
þá höfn sem næst kemur, þ.e.
Grindavíkurhöfn með 41.819
tonn. Þar varð einnig samdrátt-
ur milli ára eða um 4,1%. Á lista
yfir 10 stærstu löndunarhafn-
irnar 2014 eru átta sömu hafnir
og voru árið áður en inn á
listann komu nú Rifshöfn og
Þorlákshöfn. Árið 2013 var Rif í
12. sæti listans og Þorlákshöfn í
því 16.
Eins og sjá má í meðfylgj-
andi töflu var tæplega 300.000
tonnum af botnfiski landað í
umræddum 10 höfnum í fyrra.
Það svarar til rösklega 63%
heildarafla af botnfiski sem er
Botnfisklandanir 2010-2014 eftir landsvæðum
2010 2011 2012 2013 2014
Suðurland 35.288 38.114 39.483 43.255 47.042
Suðurnes 68.169 62.661 61.387 60.795 59.409
Höfuðborgarsvæðið 154.914 130.816 118.618 128.045 111.204
Vesturland 42.993 41.449 41.936 43.502 44.503
Vestfirðir 41.505 42.827 48.212 57.624 52.184
Norðurland vestra 31.161 24.678 26.247 33.568 23.347
Norðurland eystra 56.767 64.865 64.495 77.613 79.712
Austurland 46.865 42.458 51.460 53.188 53.917
477.662 447.868 451.838 497.590 471.318
Ýmsir staðir 17 22 37 38
Erlendis 21.493 12.557 9.975 5.672
499.172 460.447 461.850 503.300 471.318
F
isk
a
fli
Botnfiskaflinn í fyrra:
Tíu stærstu hafnirnar
með 64% aflans
Dalvíkurhöfn sótti verulega í sig veðrið í löndun botnfisks á síðasta ári.