Ægir - 01.01.2015, Qupperneq 11
11
röskum sex prósentustigum
lægra hlutfall en var árið 2013.
Með öðrum orðum jókst dreif-
ing botnfiskaflans á hafnir
landsins milli ára.
Hlutur höfuðborgarsvæðis-
ins í botnsfiskaflanum í heild
hefur minnkað. Hann var í fyrra
23,6% en 31% árið 2010. Horft
til sama tímabils nemur sam-
drátturinn í magni 43.700 tonn-
um og þar af nam hann 27 þús-
und tonnum í Hafnarfirði 2010-
2014.
Hlutur Norðurlands eystra í
lönduðum botnfiski hefur á
umræddu árabili aukist úr
11,4% í 16,9 og farið á Vest-
fjörðum úr 8,3% í 11,1%.
Milli áranna 2013 og 2014
varð mesta aukningin í lönduð-
um botnfiskafla á Suðurlandi,
þ.e. úr um 43.300 tonnum í
rúmlega 47 þúsund tonn. Að
baki þessum tölum eru annars
vegar Vestmannaeyjahöfn þar
sem landaður botnfiskafli jókst
um 587 tonn og hins vegar Þor-
lákshöfn með 3.200 tonna
aukningu, eða sem nemur 30%
milli ára. Líkt og áður segir skil-
ar það Þorlákshöfn upp um sex
sæti á lista yfir löndunarhafnir
bolfisks.
Samdrátturinn var á hinn
bóginn sýnilegastur á Norður-
landi vestra milli ára, eða um
10.200 tonn í heild. Hann
dreifðist á allar hafnir svæðisins,
varð mestur á Hofsósi og
Hvammstanga en samdráttur-
inn
Ef horft er til landsvæða þá
eykst löndun mest milli áranna
2013 og 2014 í höfnum á Suð-
urlandi eða um 8,8% eða úr
tæpum 43,3 þúsund tonnum í
rúm 47 þúsund tonn. Aðeins
tvær löndunarhafnir teljast til
Suðurlands og var aukning í
þeim báðum. Í Vestmannaeyj-
arhöfn jókst landaður afli um
1,8% eða um 587 tonn en aukn-
ingin var mjög mikil í Þorláks-
höfn eða um tæp 30% eða um
3.200 tonn.
Hins vegar var mestur sam-
dráttur í löndunum á Norður-
landi vestra, rúm 10.200 tonn,
eða sem nemur um 30,4%. Mik-
ill samdráttur var á öllum lönd-
unarhöfnum svæðisins. Mestur
var hann á Hofsósi (tæp 40%)
og Hvammstanga (um 38,2%).
Alls nam samdráttur á lönduð-
um botnfiski á höfnum svæðis-
ins um 5.440 tonnum.
Samkvæmt samantekt Fiski-
stofu eru Blönduóshöfn og
Haukabergsvaðall minnstu
hafnir landsins hvað landaðan
botnfiskafla áhrærir. Landað var
1,2 tonnum á Blönduósi í fyrra
en tæplega 1,5 tonnum í
Haukabergsvaðli í fyrra. Engar
bolfisklandanir voru hins vegar
á Gjögri og í Haganesvík á árinu
2014.
Tíu stærstu hafnirnar
2014 2013
Reykjavík 87.786 96.197
Grindavík 41.819 43.594
Vestmannaeyjar 33.143 32.556
Hafnarfjörður 23.290 31.717
Siglufjörður 22.994 24.049
Akureyri 21.801 17.504
Dalvík 20.278 16.567
Ísafjörður 18.042 19.368
Rif 15.585 14.913
Þorlákshöfn 13.899 32.556
298.638 329.020
Hlutfall af heildarafla botnfisks 63,40% 69,9%
Þorskur er meginuppistaða botnfiskaflans.
Litlar breytingar eru milli ára á lista þeirra 10 hafna þar sem mestum
botnfiski er landað.