Ægir - 01.01.2015, Page 12
12
Togarinn Málmey SK 1, sem er í
eigu FISK Seafood hf. á Sauðár-
króki, er þessa dagana í fyrstu
veiðiferðum eftir að skipinu var
breytt úr frystitogara í ísfiskskip.
Í þessu tilfelli þarf þó að gera
fyrirvara við hugtakið ísfiskskip
því Málmey er fyrsti togarinn í
flotanum útbúinn þannig að
ekki þarf að nota ís til kælingar
aflans, líkt og almennt hefur
verið gert hingað til. Togarinn er
búinn nýju vinnslu- og kælikerfi
frá systurfyrirtækjunum Skagan-
um hf. á Akranesi og 3x Techno-
logy á Ísafirði en afli skipsins er
kældur í mínus eina gráðu áður
en hann fer í lest. Ingólfur Árna-
son, framkvæmdastjóri Skagans
og 3X, segir komið að tækni-
framförum í bolfiskvinnslu hér á
landi á borð við þær sem gengið
hafi yfir í uppsjávarvinnslunni á
liðnum árum. Ofurkæling úti á
sjó skapi tækifæri á öllum svið-
um landvinnslunnar.
Segja má að fyrirtækin leggi
í þessu verkefni saman tvær af
sínum lausnum; annars vegar
ofurkælingartæknina sem
Skaginn hf. hefur unnið með í
flakavinnslu á undanförnum ár-
um og hins vegar Rotex blóðg-
unar- og kælitanka fyrir fiskiskip
sem 3X Technology á Ísafirði
hefur þróað.
Ferillinn um borð í Málmey
SK 1 er þannig að eftir að afli
kemur úr móttöku er hann
slægður á hefðbundinn hátt, að
því frátöldu að öll lifur fer í sér-
stakan kæliferil og þaðan í lest.
Sama á við um hrogn á meðan
á hrygningartíma stendur. Að
lokinni slægingu fer hver fiskur
í sérstaka þvottameðhöndlun
og þaðan inn á færiband þar
sem myndgreiningarbúnaður
tekur mynd af hverjum fiski fyrir
sig og greinir bæði tegund og
þyngd. Á vinnsluþilfarinu eru
þrír Rotex-tankar, hver um sig
Tímamót með breytingum á Málmey SK 1 á Sauðárkróki:
Ofurkældur afli
en enginn ís!
- „sannfærður um að nýtt framfaraskeið í bolfiskvinnslunni er hefjast,“
segir Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans og 3X Technology,
framleiðenda vinnslu- og kælikerfisins í Málmey
Togarinn Málmey SK 1 var byggður sem frystiskip árið 1987 og hét í fyrstu Sjóli HF 1 en var síðan seldur til Fiskiðjunnar Skagfirðings árið 1995 og
fékk nafnið Málmey SK 1. Hugtakið ísfisktogari á í raun ekki við eftir nýjustu breytinguna á skipinu. Nær væri að tala um ferskfisktogara.
F
isk
isk
ip