Ægir - 01.01.2015, Síða 13
13
14 metrar að lengd. Í hverjum
tanki er stór snigill, eða skrúfa,
sem snýst rólega og myndar
hvert bil á sniglinum hólf sem í
fara 300 kg. af fiski. Í tönkunum
er blanda af sjó og saltupplausn
og er hverjum tank skipt í þrjá
hluta þannig að fyrsti hlutinn,
sem tekur við aflanum eftir
myndgreiningu, er blóðgunar-
hólf og í gegnum það fer aflinn
á 15 mínútum. Þaðan færist
fiskurinn áfram með skrúfunni
yfir í kælingarhólf þar sem afl-
inn er kældur niður í 30 mínút-
ur og í síðasta hluta tanksins fer
aflinn í gegnum upplausn sem
er mínus 4 gráður. Það er hin
eiginlega ofurkæling sem tekur
15 mínútur en að henni lokinni
er fiskurinn kominn í mínus
1-1,2 gráður. Þessi ferill aflans í
gegnum hvern tank tekur því
eina klukkustund og á enda
tanksins er færiband sem tekur
við fiskinum og skilar á rennur
niður í lest þar sem lestarmenn
taka við honum og raða í kör.
Hægt er að hafa í senn allt að
10 tonn af afla í tönkunum
þremur, ef á þarf að halda.
Hver einasti fiskur myndaður!
Kæling lestarinnar miðar að því
að halda hráefninu stöðugu allt
til loka veiðiferðar í því hitastigi
sem það er í þegar fiskurinn
kemur úr ofurkælingunni. Eins
og áður segir er magnið 300 kg.
í hverjum skammti sem á þenn-
an hátt fer í gegnum allan feril-
inn og er þetta hæfilegur
skammtur fyrir 460 lítra körin
sem notuð eru í lestinni.
Myndgreiningarbúnaðurinn
sem áður er nefndur er einn af
lykilþáttum í kerfinu. Hann
greinir hvern fisk, bæði tegund
og þyngd og út frá þeim upp-
lýsingum eru gefnar skipanir í
stjórnbúnaði kerfisins sem stýrir
því inn á hvaða tank hver fiskur
á að fara og í hvaða hólf. Teg-
undir veljast þannig saman,
sem og stærðir, og loks stýrir
þessi búnaður því að í hvert
hólf veljist alltaf rétt magn, þ.e.
300 kg. Búnaðurinn vistar á
þennan hátt mynd af hverjum
fiski fyrir sig og þar sem hvert
kar í lest hefur sitt númer er
hægt að sækja upplýsingar úr
vinnslunni um borð, ef ein-
hverra hluta vegna þarf á slíku
að halda.
Hagnýta vökvann í fiskinum til
kælingar
Ingólfur Árnason, fram-
kvæmdastjóri Skagans og 3X
Technology, segir aðalatriðin
með nýja kerfinu í Málmey SK1
að auka vinnsluhraða og hrá-
efnisgæði. Með ofurkælingunni
í vinnsluferlinu sé vökvinn í fisk-
inum sjálfum nýttur til fulls.
„Fiskur er auðvitað að
stórum hluta vatn og við erum í
þessu ferli að hagnýta okkur
það til kælingar. Svokölluð fasa-
skipti eru þegar vökvi þykknar í
fast form og í fiski hefst þetta
ferli í mínus 0,9 gráðum. Með
því að þykkja vökvann í fiskin-
um á þann hátt sem við gerum
þá búum við okkur til ákveðið
kæliafl sem kemur í staðinn fyrir
ísinn sem hefðbundið er að
nota,“ segir Ingólfur en segja
má að í lestinni í Málmey SK 1
sé unnið á hefðbundinn hátt í
frágangi afla í ísfisktogara, að
því undanskildu að enginn ís er
settur milli laga í körin. Aðeins
þarf að raða fiskinum í hvert
kar.
Betri kæling skilar betri
roðdrætti og flökun
Aðspurður segir Ingólfur að
form hvers skips ráði því hvort
hægt sé að koma fyrir heildar-
kerfi á borð við það sem er í
Málmey SK 1 en best sé að út-
færa kerfið samhliða hönnun á
nýjum fiskiskipum, líkt og ætl-
unin er að gera í fyrirhugaðri
nýsmíði FISK Seafood og í
þremur skipum HB Granda. Eins
og fram kemur annars staðar í
blaðinu hefur nú þegar verið
samið um útfærslu kerfa frá
Skaganum hf. og 3X Techno-
logy í ísfisktogara HB Granda.
„Í öllu okkar þróunarstarfi er-
um við að sækjast eftir betri
fiski og að lengja geymsluþol.
Allar rannsóknir sýna bætta
nýtingu í flökun með því að
bæta meðhöndlun og kælingu
strax eftir að fiskurinn er slægð-
ur um borð. Næsta skref í þró-
unarferlinu hjá okkur er að
fækka göllum í flökun og roð-
drætti í vinnslunni sjálfri. Þar er
að finna lykilinn að framtíðar-
Hér hefst kælingarferlið. Fiskurinn er flokkaður í hólf í hverjum tanki eftir að hann hefur farið í gegnum
myndgreiningarbúnað sem skynjar tegund og stærð. Ferðalag aflans í gegnum tankana tekur eina klukku-
stund.
Í Rotex-tönkunum er blanda af sjó og saltpækli og búnaður stýrir kæl-
ingunni á vökvanum. 300 kg. skammtur af fiski er á milli blaða í sniglin-
um í tönkunum. Fyrsta hólfið í tönkunum er blóðgun, síðan tekur við
kælingarhluti tanksins og loks ofurkælingin þar sem vökvinn er mínus 4
gráður. Í gegnum þann hluta fer aflinn á 15 mínútum.