Ægir - 01.01.2015, Blaðsíða 14
14
tækni í landvinnslu á bolfiski. Í
þessum þáttum skilur á milli
tæknilegrar stöðu bolfisk-
vinnslu og uppsjávarvinnslu í
dag. Í bolfiskvinnslunni þurfa
öll flök að fara í gegnum snyrti-
línur en takmark okkar er að
þróa tækni sem skilar þeim ár-
angri að sem hæst hlutfall af
flökum geti farið beint úr flök-
unarvél inn í vatnsskurð þar
sem beingarður er skorinn í
burtu og flökin hlutuð niður
eins og við á í hverri vinnslu fyr-
ir sig.“
Nýtt skeið bolfiskvinnslunnar að
hefjast
Ingólfur segir að í sjávarútvegi á
Íslandi sé mikill áhugi á þessari
tækniþróun og þau fyrirtæki
sem bæði eru í uppsjávar-
vinnslu og bolfiskvinnslu hafi
fundið fyrir því hversu miklum
ávinningi tæknin í uppsjávar-
vinnslunni hafi skilað á síðustu
árum.
„Í uppsjávarvinnslunni hefur
störfum vissulega fækkað frá
því sem áður var en þau eru á
hinn bóginn betur launuð. Okk-
ar framtíðarsýn hjá Skaganum
og 3X Technology er þess
vegna að leggja áherslu á roð-
flettingu og flökun sem getur
skilað bolfiskvinnslunni á sömu
braut í framþróun og orðið hef-
ur í uppsjávarvinnslunni. Innan
okkar fyrirtækja höfum við allt
til þess; flökunarvél, roðdráttar-
vél og þróun á vatnsskurðar-
búnaði en forsendurnar sem
við vinnum eftir eru þessi ár-
angur sem við höfum náð í of-
urkælingunni á hráefninu. Við
horfum á þetta sem eitt heildar-
ferli og ætlum að horfa á hvert
og eitt skref í ferlinu, allt frá
móttöku til pökkunar,“ segir
Ingólfur og bætir við að miklir
tæknilegir möguleikar hafi opn-
ast þegar Skaginn hf. og 3X
Technology urðu systurfyrir-
tæki. Í kjölfarið á breyttu eign-
arhaldi þess síðarnefnda hafi
verið unnt að leggja saman víð-
tæka tækniþekkingu innan fyr-
irtækjanna og lausnir sem þau
hafi þegar þróað. Því til viðbót-
ar hafi fyrirtækin fengið styrki til
þróunarstarfs sem gangi til
rannsóknarfyrirtækjanna Matís
og Iceprotein á Sauðárkróki
sem unnið hafi þýðingarmiklar
upplýsingar um áhrif ofurkæl-
ingar á hráefni strax á fyrsta
vinnslustigi.
„FISK Seafood steig mjög
mikilvægt skref með því að
semja við okkur um breyting-
arnar á Málmey og láta reyna á
þá möguleika sem rannsóknirn-
ar hafa sýnt okkur. Málmey SK
verður ekki ísfiskskip í þeirri
merkingu sem við höfum hing-
að til notað heldur væri nær að
tala um rannsóknarskip á fyrstu
mánuðunum því rannsóknar-
fyrirtækin munu fylgja verk-
efninu eftir. Ég er alveg sann-
færður um að við eigum eftir að
sjá í þessu verkefni í Málmey ár-
angur sem lyftir þekkingu í fisk-
vinnslu hér á landi á annað stig
og markar nýtt skeið í bolfisk-
vinnslu. En svona lagað gerist
ekki nema til séu fyrirtæki eins
og FISK Seafood sem hafa kjark,
þor og getu til að breyta og til-
einka sér tæknilegar nýjungar,“
segir Ingólfur Árnason.
Þrír 14 metra langir tankar eru á vinnsluþilfari Málmeyjar. Í gegnum þá fer aflinn og er smátt og smátt kældur
niður í mínus 1-1,2 gráður. Í þessum enda tankanna er svokölluð ofurkæling og úr henni fer fiskurinn í 300 kg.
skömmtum í rennuna fyrir miðri mynd og niður í lest.
Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans hf. og 3X Technology, er
sannfærður um að tækifæri séu nú að opnast til stórstígra tæknilegra
framfara í bolfiskvinnslu á borð við þær sem orðið hafa í vinnslu á upp-
sjávarfiski síðustu ár.
Skaginn hf - Bakkatún 26 - 300 Akranes - S. +354 430 2000 - sales@skaginn.is
3X TECHNOLOGY - Sindragata 5 - 400 Ísafjörður - +354 450 5000 - SALES@3XTECHNOLOGY.COM