Ægir - 01.01.2015, Side 18
18
Liður í undirbúningi byggingar á
nýju skipi
Málmey SK 1 mun hér eftir fiska
fyrir landvinnslu FISK Seafood á
Sauðárkróki. Gylfi Guðjónsson,
útgerðarstjóri FISK Seafood,
segir markmiðið með þeirri leið
sem valin var í breytingum á
skipinu að fá besta mögulega
hráefni fyrir landvinnsluna. Að
stærstum hluta er í fiskvinnslu-
stöð fyrirtækisins á Sauðárkróki
unninn frosinn, léttsaltaður
þorskur í flökum fyrir Spánar-
markað. Gylfi reiknar með að
þar verði einnig unnið úr karfa,
ufsa og ýsu úr Málmey.
„Við erum með þeirri leið
sem við völdum í breytingum
skipinu að horfa bæði til mögu-
leika fyrir okkur í þróun á land-
vinnslunni á komandi árum og
einnig að fá reynslu á þennan
búnað vegna nýs togara sem
við fyrirtækið hefur samið um
smíði á. Þegar fyrirliggjandi var
að breyta Málmey úr frystitog-
ara í skip fyrir hráefnisöflun
vegna landvinnslunnar lá bein-
ast við að fá í því skipi reynslu á
þessa lausn frá Skaganum og
3X Technology. Út frá henni
tökum við endanlega ákvörðun
um útfærslu á nýja skipinu. Við
höfum skoðað þessa útfærslu
vandlega og höfum innan okkar
raða rannsóknarfyrirtækið
Iceprotein sem er í eigu FISK
Seafood og vinnur með okkur
að þessu verkefni. Það er okkur
mjög mikilvægt í þróunarverk-
efni eins og þetta er,“ segir Gylfi.
Hráefni í hæsta gæðaflokki
Nú þegar aflinn kemur íslaus en
ofurkældur í land segir Gylfi að
gera þurfi nokkrar lagfæringar á
móttökuferlinu og kæliklefum.
„Við þurfum t.d. að tryggja að
við höldum áfram sama hita-
stigi á fiskinum eftir að hann er
kominn inn í kæligeymslur hjá
okkur og það er ýmislegt fleira
sem þetta hráefni kallar á. Fisk-
urinn er nokkuð frábrugðinn
hefðbundnu ísuðu hráefni sem
við erum vön að vinna með en
um leið hráefni sem er í hæstu
gæðum og ætti að skila okkur
meiri ávinningi og hærra verði í
endanlegri framleiðsluvöru,“
segir Gylfi og bætir við að frá
því undirbúningur breyting-
anna á Málmey hófst hafi marg-
ar hugmyndir þróast og tekið
breytingum með prófunum og
rannsóknum. „Starfsfólk Icpro-
tein og aðrir sem að verkefninu
hafa komið hafa skilað góðu
starfi og verður spennandi að
fylgjast með reynslunni á kom-
andi mánuðum.“
Strandgötu 1 Neskaupstað Sími:4700 800 Fax:4700 801
• Veiðarfæraþjónusta
• Gúmmíbátaþjónusta
• Fiskeldisþjónusta
Stöðug þróun veiðarfæra í samvinnu
við sjómenn og útgerðir.
Fjarðanet er aðili að Hampidjan Group
Neskaupstaður / Fjáskrúðsfjörður / Akureyri / Ísafjörður
www.fjardanet.is fjardanet@fjardanet.is
Víðtæk þekking og reynsla
í uppsetningu og gerð veiðarfæra
Alhliða veiðarfæraþjónusta í höndum fagmanna
Aflinn kemur úr móttöku að slægingarstöðvunum.
Þar er lifur skorin frá og beint í sérstaka vinnslu og
þaðan í lest. Hrogn eru líka tekin á hrygningartíma.
Færibönd og stýringarbúnaður leika stórt hlutverk í
kerfinu. Í heild eru um 4 kílómetrar af rafmagns-
köplum á vinnsluþilfarinu í Málmey!
Óskum FISK Seafood
til hamingju með
nýju snúnings-
böndin í lest
Málmeyjar SK-1.