Ægir - 01.01.2015, Page 20
20
F
isk
isk
ip
„Það eru allir spenntir í áhöfn-
inni fara á sjó og kynnast þessu
nýja fyrirkomulagi um borð. Við
erum vonandi að stíga mikið
framfaraskref í sjávarútvegin-
um og ég er sérstaklega
ánægður með að fyrirtækið
stígi þetta metnaðarfulla skref
til fulls og láti reyna á ofurkæl-
inguna. Miðað við rannsóknir
sem gerðar hafa verið er mikill
ávinningur í gæðum hráefnis-
ins að ná að kæla fiskinn með
þessum hætti,“ segir Sæmund-
ur Hafsteinsson, 1. stýrimaður
á Málmey SK 1, þegar Ægir fór
um borð í skipið skömmu fyrir
fyrstu reynslusjóferð á dögun-
um.
Sæmundur segir að vitan-
lega sé stærsta breytingin fyrir
áhöfnina fólgin í því að skipið
breytist nú úr frystitogara í ís-
fisktogara. Bæði fækki í áhöfn
úr 26-27 mönnum í 15 og í stað
hátt í mánaðarlangra veiðiferða
verða þær nú 5-7 dagar að há-
marki. En síðan er búið að
skipta um allan vinnslubúnað
og breyta verkferlunum um
borð þar með.
„Við fyrstu sýn er þetta auð-
vitað mikið af búnaði sem búið
er að setja í skipið og fyrir-
komulagið í daglegri vinnu
áhafnarinnar allt annað en áður
var. Spenntastir erum við
auðvitað að sjá þessa ofurkæl-
ingu virka en bæði við í áhöfn-
inni og allir sem að þessu verk-
efni koma eigum eftir að finna
út hvar nákvæmlega bestur ár-
angur næst í kælingunni á fisk-
inum. Við erum að fara að
ákveðnum mörkum þar sem
spilað er á dauðastirðnunina í
fiskinum og hámarkskælingu.
Ég geri ráð fyrir að við komum
til með að verða í miklum sam-
skiptum við vinnsluna í landi
meðan á veiðiferðum stendur
því allt þarf þetta að vinna
mjög vel saman. Það getur ekki
verið annað en áhugavert og
skemmtilegt að vera þátttak-
andi í svona frumkvöðlastarfi
sem gæti markað ákveðin kafla-
skil í útgerð ísfisktogara á Ís-
landi,“ segir Sæmundur.
Spennandi tími
framundan
- segir Sæmundur Hafsteinsson, 1. stýrimaður á Málmey SK 1
Stýrimaðurinn Sæmundur Hafsteinsson segist sérstaklega ánægður með að skrefið í breytingum á skipinu sé stigið til fulls og látið reyna á allra nýj-
ustu hugmyndir í vinnslutækni í þeim tilgangi að skila besta mögulega hráefninu í land.
Í lestinni eru rösklega 600 fiskiker frá keraleigu iTUB á Dalvík. Tvö
snúningsbönd frá Vélaverkstæðinu Þór í Vestmannaeyjum eru einnig
tækninýjung í flutningi aflans í lestinni.