Ægir - 01.01.2015, Síða 21
21
F
réttir
Samningar hafa verið undirrit-
aðir á milli HB Granda og Skag-
ans á Akranesi og 3X Techno-
logy á Ísafirði um nýjan og bylt-
ingarkenndan vinnslu- og lest-
arbúnað í Engey RE, Akurey AK
og Viðey RE, nýja ísfisktogara
félagsins sem verða smíðaðir á
næstu árum. Samningarnir
byggja á þróunarsamstarfi HB
Granda við félögin á undan-
förnum árum. Samningarnir
eru tveir, annars vegar um bún-
að á vinnsludekki og hins vegar
um sjálfvirkt flutningakerfi á
körum. Verðmæti samning-
anna er um 1.190 milljónir
króna, samkvæmt upplýsingum
frá HB Granda.
Vinnslubúnaðurinn byggir í
grunninn á hliðstæðri tækni og
nú er verið að taka í notkun í
togaranum Málmey SK. Mark-
miðið er að auka verulega nýt-
ingu og gæði fisks, lágmarka
kostnað og bæta vinnuaðstæð-
öðu sjómanna en í togurum HB
Granda verður allt slóg hirt,
sem og lifur og hrogn.
Búnaður á vinnsludekki
Búnaður á vinnsludekki er
byggður á nýsköpun og þróun
Skagans á Akranesi og 3X
Technology á Ísafirði í samstarfi
við iðnaðinn og rannsóknarað-
ila s.s. Matís og Iceprotein á
Sauðárkróki.
Helstu eiginleikar búnaðar á
vinnsludekki eru:
• Afkastamikil blóðgunar- og
slægingarlína sem tryggir
bætta meðhöndlun fisks.
• Myndgreiningartækni sem
tegundagreinir og stærðar-
flokkar fisk með sjálfvirkum
hætti.
• Tveggja þrepa Rotex blæð-
ingarferli sem tryggir rétta
blæðingu og eykur gæði.
• Tveggja þrepa Rotex kæli-
ferli sem hægir á dauða-
stirðnun mun tryggja betri
og lengri ferskleika.
• Sjálfvirk stærðarflokkun og
Rotex kæliferli fyrir karfa.
• Meðhöndlun og kæling á
hrognum, lifur og slógi verð-
ur framkvæmd í Rotex kæli-
ferlinu.
• Röðun og frágangur fisksins
í kör mun fara fram á
vinnsludekki.
Sjálfvirkni í lest
Lestin verður byltingarkennd í
nýju skipinum hjá HB Granda
hvað það varðar að manns-
höndin kemur þar hvergi nærri.
Fiskikerin koma sjálfvirkt úr
lestinni og á sama hátt sér síð-
an búnaður um að færa þau aft-
ur á sinn stað þegar fiskur er
kominn í þau. Þetta kerfi hafa
Skaginn og 3X Technology þró-
að með tæknmönnum HB
Granda og Nautic, hönnuða
nýju skipin þriggja.
Helstu kostir lestarflutninga-
kerfisins eru:
• Mannlaust lestarkerfi
• Sjálfvirkur flutningur tómra
kara upp úr lest skipsins.
• Röðun og frágangur fisks
mun fara fram á vinnslu-
dekki.
• Karastöflun og flutningur frá
vinnsludekki niður í lest
verður sjálfvirkur.
• Lagerkerfi í lest verður sjálf-
virkt.
• Lestun og losun skipsins
verður sjálfvirk.
Í kjölfar samningsins mun
þegar hefjast smíði á frumgerð
flutningakerfisins og mun tím-
inn fram að afhendingu fyrsta
togarans nýttur í að reyna kerf-
ið í aðstöðu Skagans á Akranesi.
„Að HB Grandi velji okkar
metnaðarfullu og um margt
byltingarkenndu lausnir í ný
skip sín er mikil viðurkenning á
nýsköpun og þróunarstarfi okk-
ar á síðustu misserum. Við höf-
um í gegnum tíðina átt farsæl
samskipti við starfsfólk HB
Granda, m.a. í okkar þróunar-
vinnu. Það farsæla samstarf er
staðfest með þessum samningi.
Við erum að gera eitthvað rétt,“
segir Ingólfur Árnason fram-
kvæmdastjóri Skagans og 3X
Technology, um samninginn.
Fyrsti ferksfisktogarinn, Eng-
ey RE, er væntanlegur til lands-
ins síðla sumars 2016.
Nýir togarar HB Granda:
Samið um byltingarkenndar vinnslu-
línur og sjálfvirkan búnað í lestum
Skýringarmynd sem gefur hugmynd um vinnufyrirkomulagið í nýjum
togurum HB Granda eftir að fiskur er kominn í gegnum vinnslulínuna
og kælingu. Raðað er í fiskikerin á vinnsluþilfari og þaðan fara þau
sjálfvirkt í lest. Mannshöndin er þar með óþörf í lestinni sjálfri.
Verðmæti samnings HB Granda við Skagann og 3X Technology, nemur
1,1 milljarði króna. Fyrsti togarinn af þremur kemur til landsins frá
Tyrklandi sumarið 2016. Mynd: Heimasiða HB Granda.