Ægir - 01.01.2015, Síða 23
23
Egils sjávarafurðir ehf. á Siglu-
firði er eitt af elstu starfandi
fiskvinnslufyrirtækjum hér á
landi, státar af tæplega 95 ára
samfelldri sögu. Vörumerki fyr-
irtækisins er 60-70 ára gamalt
og reykta síldin frá Egils sjávar-
afurðum hefur verið seld í
verslunum á Íslandi í óbreytt-
um neytendapakkingum í ára-
tugi. Í dag starfa sjö manns að
jafnaði í Egils sjávarafurðum og
er framleiðsla á reyktum laxi
fyrir markaði í Norður-Ameríku
stærsta verkefni þess og vax-
andi. Gústaf Daníelsson er
framkvæmdastjóri og aðaleig-
andi Egils sjávarafurða ehf.
Hann segir að þrátt fyrir að
reyktar afurðir hafi alla tíð ver-
ið rauður þráður í framleiðsl-
unni hafi fyrirtækið á þessari
tæpu öld í starfsemi sinni kom-
ið víðar við.
Lengstum bar fyrirtækið
nafnið Egilssíld en stofnandi
þess var Egill Stefánsson sem
hóf að reykja síld á Siglufirði ár-
ið 1921. Þá var blómaskeið
Siglufjarðar hafið með upp-
gangi í síldveiðum fyrir Norður-
landi. Uppsveiflan í síldinni og
bæjarbragnum á Siglufirði varði
allt fram yfir miðja öldina þegar
að því kom að síldin hvarf en á
gullaldarárum síldveiðanna óx
Siglufjörður úr fámennu þorpi í
yfir 3000 manna bæ. Egill
byggði á þessum tíma upp fyr-
irtæki sitt og vann við það allt
til dauðadags árið 1978. Þá tók
sonur hans, Jóhannes Egilsson,
við rekstrinum og stýrði fyrir-
tækinu þar til hann féll frá árið
2011. Nýir eigendur komu þá
að fyrirtækinu og fékk það
nafnið Egils sjávarafurðir ehf. en
áfram er haldið á sömu braut í
rekstrinum, þ.e. í framleiðslu á
afurðum úr laxi og síld, að
stærstum hluta reyktum afurð-
um.
90% framleiðslunnar til
útflutnings
„Á ákveðnu tímaskeiði var mik-
ið framleitt af niðursoðnum
vörum, allt frá rauðrófum yfir í
þorsklifur, samhliða reyking-
unni á síld,“ segir Gústaf. „Við
framleiðum enn þann dag í dag
reyktu síldina fyrir innanlands-
Egils sjávarafurðir ehf. á Siglufirði á að baki sér tæplega
100 ára sögu í fiskvinnslu:
Reykja lax fyrir
Ameríkumarkað
Gústaf Daníelsson, framkvæmdastjóri og aðaleigandi Egils sjávarafurða ehf. Hér stendur yfir pökkun
á reyktum laxi í neytendapakkningar fyrir Kanadamarkað en framleiðslan er undir merkjum High
Liner Seafoods sem er það stærsta í sölu sjávarafurða þar í landi.
Að morgni eru reyktu laxaflökin roðdregin og hér taka þær Auður Sigurgeirsdóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir og Irina Lucaci við þeim í pökkunar-
salnum þar sem þau eru snyrt, sneidd, viktuð í 1 kg einingar og loks pakkað í lofttæmdar umbúðir. Ferlinu er síðan lokað með frystingu í heilum
kössum.
Auður snyrtir flökin áður en þau eru sneidd.