Ægir - 01.01.2015, Page 24
24
markað en sá þáttur er lítill hluti
heildarstarfseminnar því okkar
aðal verkefni er framleiðsla á
reyktum laxi fyrir markaði í
Bandaríkjunum og Kanada. Um
90% af framleiðslu okkar er út-
flutningur og hann hefur farið
vaxandi frá því við tókum við
rekstrinum. Við erum fyrst og
fremst að framleiða reyktan lax
í heilum flökum fyrir hótel og
veitingahús. Á Bandaríkjamark-
aði seljum við undir merkjum
Icelandic en undir merkjum
stórfyrirtækisins High Liner
Foods í Kanada en það fyrirtæki
tók árið 2012 yfir rekstur Ice-
landic í Bandaríkjunum. Í raun
er því High Liner Foods kaup-
andi allra okkar afurða fyrir
Norður-Ameríkumarkað þó svo
að við framleiðum undir þess-
um tveimur vörumerkjum. Við
framleiddum áður fyrir Ice-
landic í Bandaríkjunum en eftir
að High Liner Foods tók það
fyrirtæki yfir þá fórum við að
framleiða líka fyrir þá á Kanada-
markað. Þetta hefur reynst okk-
ur mjög gott og traust við-
skiptasamband enda er fyrir-
tækið það langstærsta í sölu
sjávarafurða í bæði verslunum
og hótelum í Kanada og
einnig mjög stórt og
þekkt á Bandaríkjamark-
aði,“ segir Gústaf.
Lof borið á framleiðsluna
Eins og áður segir framleiðir
Egils sjávarafurðir ehf. reykta
síld í neytendapakkningum og
selur í verslunum á Íslandi en
einnig er fyrirtækið nú komið
með einn vöruflokk á reyktum
laxi í Hagkaupsverslanirnar. Þá
bauð fyrirtækið nú fyrir jólin í
verslunum Hagkaups sérstaka
jólapakkningu með fram-
leiðsluvörum sínum en síðustu
tvö ár hefur fyrirtækið selt
þessa pakkningu til fyrirtækja
og stofnana til starfsmanna-
gjafa.
„Við höfum einnig verið að
selja reyktan lax undir eigin
vörumerki til hótela og veit-
ingahúsa á Íslandi og þar er um
hliðstæða framleiðslu að ræða
og við seljum til Bandaríkjanna
og Kanada. Við höfum fengið
mikið lof og viðurkenningar fyr-
ir þessa afurð. Reykti fiskurinn
okkar þykir bæði bragðgóður
og reykbragðið milt og fyrir
hótelin og veitingahúsin hentar
hann mjög vel því útlendingar
eru síður hrifnir af þessari miklu
reykingu og saltbragði sem við
hér á Íslandi aðhyllumst. En eins
og ég segi þá er þessi fram-
leiðsla okkar fyrir innanlands-
markað nánast aukaverkefni við
hliðina á útflutningnum,“ segir
Gústaf.
Verndartollar útiloka
Evrópumarkað
Frá því Gústaf tók við fyrirtæk-
inu síðla árs 2011 hefur útflutn-
ingur þess á reyktum laxi tvö-
faldast og hann segir markað-
ina trausta. Ástæða sé til að
ætla að hægt verði að auka út-
flutninginn enn frekar.
„Markaður fyrir reyktan
lax er mjög stór, t.d. í Evr-
ópu. Inn á þann markað
þarf hins vegar að greiða
12% toll, sem er verndartollur
sem Evrópusambandið er með.
Með öðrum orðum yrði mikil
breyting fyrir okkur í aðgengi
að þeim markaði ef Ísland
gengi í Evrópusambandið því
þá félli þessi verndartollur nið-
ur. Af þessum ástæðum er Am-
eríkumarkaður betri fyrir okkur
en við þurfum ekki að greiða
innflutningstoll á Kanada en
hann er 5% á Bandaríkjamark-
að. Best væri auðvitað að
sleppa alfarið við innflutnings-
tollinn í Bandaríkjunum en
þetta er þrátt fyrir það mun
betri kostur en Evrópusam-
bandslöndin,“ segir Gústaf.
Allt frá heilum fiskum til
fullunninnar vöru
Öll framleiðslan fyrir Ameríku-
markað er fryst og þannig fara
sendingar að jafnaði mánaðar-
lega frá Siglufirði vestur um haf.
Vinnudagarnir í Egils sjávarafurðum hefjast á því að laxfiskarnir eru handflakaðir, flökin beinhreinsuð og síðan lögð í saltpækil. Síðar á morgninum
tekur síðan reykingin við en hér eru þeir Gústaf og Steinar Svavarsson að raða flökunum í grindurnar sem síðan fara í reykofninn. Reykingu lýkur
samdægurs og síðan bíða flökin í kæli næsta dags og pökkunar.
Þetta lógó hefur fylgt fyrirtækinu
í 60-70 ár og er líkast til meðal
elstu framleiðslumerkja í fisk-
vinnslu hér á landi.