Ægir - 01.01.2015, Page 26
26
Scanmar í Noregi er um þessar
mundir að ljúka áralangri þró-
un á botnstykki fyrir fiskiskip
og tilheyrandi hugbúnaði sem
metur hávaða og hljóðtíðnir frá
fiskiskipum og segir til um áhrif
þeirra á þær fiskitegundir sem
viðkomandi skip er að veiða
hverju sinni. Petter Pettersen,
markaðsstjóri Scanmar, segir
þennan búnað nýjung á heims-
vísu og í þróunarferlinu hafi
Scanmar átt náið samstarf við
m.a. rannsóknaraðila hvað
varðar þekkingu á hvernig ein-
stakar fisktegundir skynja há-
vaða og hljóðbylgjur og hvernig
þær bregðast við þeim.
„Í þróun búnaðarins höfum
við byggt á rannsóknum um all-
an heim. Niðurstöður þeirra
sýna að fiskar hafa mjög mis-
munandi skynjun á hljóð og
hljóðbylgjur. Sem dæmi þá
heyrir síld bæði mjög vel, skynj-
ar hávaða og er líka næm fyrir
hljóðbylgjum. Aftur á móti virð-
ist þorskur ekki hafa góða
heyrn og því má segja að það
sé auðvelt að styggja síldina
með hljóðum en síður þorskinn.
Þetta eru aðeins tvö dæmi en
það má líka nefna t.d. ufsa og
sardínur sem dæmi um fiskteg-
undir sem hafa mjög góða
heyrn. Allar þessar upplýsingar
höfum við sett í búnaðinn,“
segir Petter.
Sagt fyrir um áhrif hljóða á
viðkomandi veiðitegund
Í stuttu máli má segja að nýja
botnstykkið og hugbúnaðurinn
frá Scanmar geri tvennt. Annars
vegar skynjar búnaðurinn hljóð
frá fiskiskipinu; mælir bæði
hljóð í desíbelum og metur
hljóðbylgjur sem skipið gefur
frá sér. Þessar upplýsingar birt-
ast á skjá fyrir búnaðinn sem
staðsettur er í stjórnborði skip-
stjóra og birtast þær þar í raun-
tíma. Hitt aðalatriði búnaðarins
eru innbyggðu upplýsingarnar
um áhrif hljóðanna á fiskiteg-
undir og þannig geta skip-
T
æ
k
n
in
ý
ju
n
g
a
r
Tímamótanýjung frá Scanmar í Noregi að koma á markað:
Búnaður vaktar hljóð frá
skipum og metur áhrif
þeirra á veiðitegundirnar
Þórir Matthíasson, framkvæmdastjóri Scanmar á Íslandi. „Útgerðar- og
skipstjórnarmenn á Íslandi bíða spenntir eftir nýja búnaðinum enda
hefur lengi verið beðið tæknilausna sem hjálpa til við að meta áhrif sem
hljóð frá skipum hefur á fiskimiðunum.“
Per Kolbjorn Soglo er einn af mörgum starfsmönnum Scanmar sem tek-
ið hefur þátt í þróun nýja botnstykkisins en búnaðurinn er nú í prófun-
um í Noregi og víðar í Evrópu.
Nýtt botnstykki frá Scanmar fer í almenna sölu nú á fyrri helmingi árs-
ins. Öll ný skip sem eru í smíðum í Noregi verða með þessum búnaði.