Ægir - 01.01.2015, Page 28
28
Snemma árs 2010 stóðu Pro-
mens Dalvík ehf. og sjávarút-
vegsfyrirtæki í Noregi að stofn-
un fyrirtækisins iTUB AS í Nor-
egi um útleigu á fiskikerum til
útgerðarfyrirtækja og fisk-
vinnslna þar í landi. Síðan þá
hefur fyrirtækið vaxið jafnt og
þétt og er það í dag með um
16.000 ker í útleigu, að stærst-
um hluta í Noregi en einnig vítt
um Evrópu. Fyrirtækið er í
meirihlutaeigu Promens Dalvík
og er því stýrt frá Dalvík en
framkvæmdastjóri iTUB er
Hilmar Guðmundsson. Þessa
dagana hann er ýta úr vör
starfsemi fyrirtækis hér á landi
undir sama merki og hliðstærri
þjónustu. Hilmar segir að víða
séu tækifæri til vaxtar í útleigu
á kerum, bæði í Noregi, á meg-
inlandi Evrópu og á Íslandi.
Fyrstu kerin í útleigu frá iTUB-
hér á landi verða í ísfisktogar-
anum Málmey SK á Sauðárkróki
sem er nú að hefja veiðar eftir
gjörbyltingu á vinnslu- og kæ-
lifyrirkomulagi um borð.
Starfsstöðvar iTUB AS eru í
Álasundi í Noregi og á Dalvík en
Hilmar segir stofnun fyrirtækis-
ins í Noregi hafa verið rökrétt
framhald framleiðslu og mark-
aðssetningar Promens á fiski-
kerum fyrir norskar útgerðir.
Keraleiga af þessum toga hafði
ekki þekkst þar í landi fyrr en
iTUB var stofnað.
„Með stofnun iTUB AS var
fyrst og fremst horft til þjón-
ustu við útgerðir í Noregi, sér í
lagi til togskipaútgerða. Smám
saman hefur viðskiptavinum
okkar fjölgað, bæði í Noregi og
öðrum löndum og að sama
skapi einnig bæst við fjölbreytt-
ari fyrirtæki, bæði útgerðir og
landvinnslufyrirtæki. Þjónusta
við útgerð Norway Seafood er
stór þáttur í starfseminni en
það fyrirtæki er mjög stórt og
með útgerð víða í Norður-Nor-
egi. Til viðbótar við útleigu á
kerunum sjálfum er flutnings-
kerfið mjög mikilvægur þáttur í
okkar starfsemi. Við sjáum
þannig um að taka kerin hjá
kaupanda á fiskinum erlendis,
þau eru þrifin og síðan flytjum
við þau til baka til Noregs á nýj-
an leik, til sama viðskiptavinar
eða annarra notenda,“ segir
Keraleiga iTUB
á Íslandi að taka
til starfa
iTUB AS í Noregi leigir nú út um 16.000 ker þar í landi, að stærstum hluta í Norður-Noregi.
Þ
jón
u
sta