Ægir - 01.01.2015, Blaðsíða 30
30
Hilmar en þungamiðja í þessu
kerfi eru afgreiðslu- og þvotta-
stöðvar á vegum iTUB í Bret-
landi, Frakklandi og Danmörku,
auk lagerafgreiðslna á kerum
vítt um Noreg. Náið samstarf er
einnig við flutningsaðila en al-
farið er byggt á landflutningum
á kerum í þessari þjónustu.
Hilmar segir það þjónustunet
sem fyrirtækið hafi nú þegar
byggt upp skapa iTUB mikla
möguleika til þjónustu fyrir
sjávarútvegsfyrirtæki í Evrópu.
„Viðskiptavinum okkar bjóð-
ast tveir möguleikar í leigufyrir-
komulagi á kerum. Annars veg-
ar að leigja kerin án þjónustu
og þá er um að ræða að gerður
er samningur um útleigu á
ákveðnum kerafjölda sem
leigutaki hefur til umráða á
samningstíma og skilar síðan
að honum loknum. Hins vegar
er leiga með þjónustu þar sem
viðskiptavinir leigja ker af iTUB
samkvæmt rammasamningi
um fjölda kera en iTUB stýrir
síðan tómu kerunum eins og
áður er lýst og sér til þess að
umsaminn fjöldi kera sé alltaf til
ráðstöfunar fyrir viðskiptavin á
fyrirfram skilgreinum lagerum
okkar. Þetta er fyrirkomulag
sem hefur reynst viðskiptavin-
um okkar vel,“ segir Hilmar.
Gæði keranna og öryggið
mikilvægir þættir
iTUB byggir sitt útleigukerfi að
mestu leyti á 460 lítra kerum frá
Promens með PE fyllingu í
veggjum en þau eru bæði
sterkbyggð, draga ekki í sig
vökva þó skemmd verði kerun-
um og eru því góður valkostur
gagnvart hreinlætiskröfum. Að
auki eru PE fylltu kerin endur-
vinnanleg og þannig umhverf-
islega hagkvæmur valkostur.
„Þetta eru ker sem við þekkj-
um af reynslunni að henta
mjög vel fyrir flutning á fersk-
um fiski. En samhliða leggjum
við mjög mikið upp úr öryggi
hvað varðar stöflun og hífingar,
hagkvæmni í rekstri þeirra og
aðra þætti sem snúa að áreið-
anleika. Við erum líka með
Mind rekjanleikakerfi á kerun-
um sem er mikilvægt gagnvart
því umhverfi sem seljendur á
fiski starfa í. Rekjanleikakerfið
býður einnig upp á möguleika
á mælingum á umhverfishita-
stigi keranna og í því er fólgið
ákveðið öryggi fyrir notend-
urna.“
Inn á íslenska markaðinn
Hilmar segir að í kjölfar stofn-
unar iTUB í Noregi hafi margar
fyrirspurnir borist frá íslenskum
sjávarútvegsfyrirtækjum um
hvort vænta megi hliðstæðrar
starfsemi hér á landi. Nú sé
komið að þeim tímapunkti.
„Við komum til með að
byggja okkar þjónustu hér á
landi á sama grunni og iTUB
gerir í Noregi, þ.e. fasta leigu á
kerum til fyrirtækja og hins veg-
ar útleiga með þjónustu þar
sem við önnumst flutning á
kerum frá fiskaupendum til not-
enda. Við höfum þegar samið
við flutningsaðila og útfært
aðra þætti í þjónustunni hér á
landi sem við komum til með
að kynna okkar viðskiptavinum
á komandi misserum. Líkt og í
Noregi munum við alfarið nota
PE ker hér á Íslandi og leggja
mikið upp úr áðurnefndum
þáttum sem snúa að öryggi,
styrk keranna, hreinlætisþætt-
inum og rekjanleikakerfinu. Allt
eru þetta atriði sem við finnum
að eru ofarlega í huga við-
skiptavina,“ segir Hilmar.Skipulag flutninga er stór þáttur í kerfi iTUB en fyrirtækið tekur við
kerum hjá fiskkaupendum erlendis, sér um að þau séu þvegin og síðan
flutt á ný til notenda.
Norskur lax ísaður í keri frá iTUB. iTUB notar sterkbyggð PE fyllt ker frá Promens Dal-
vík í útleigu.