Ægir - 01.01.2015, Síða 31
31
Mælingar Hafrannsóknastofn-
unar á veiðistofni loðnu nú í
janúarmánuði leiddu til tillögu
hennar til sjávarútvegsráð-
herra um aukningu á áður
leyfðum heildarafla um 320
þúsund tonn. Hafrannsókna-
skipið Árni Friðriksson og Birt-
ingur NK voru við mælingar á
svæðinu norður af Vestfjörðum
og austur fyrir land, hið fyrr-
nefnda fyrir Norðurlandi fram-
an af mánuðinum og Birtingur
úti fyrir Austfjörðum síðari
hluta mánaðarins. Lagt er til að
heildaraflinn verði 580.000
tonn á vertíðinni, að meðtöld-
um þeim afla sem búið var að
landa áður en janúarmæling-
arnar voru gerðar.
Með stærstu vertíðum síðasta
áratugar
Mikill viðsnúningur er í loðnu-
veiðunum frá síðasta ári þegar
veidd voru 142 þúsund tonn.
Gangi veiðar eftir í takti við ráð-
gjöfina mun aflinn verða lítið
eitt meiri en fiskveiðiárið
2012/13 en minni en fiskveiði-
árið 2011/12. Síðan þarf að leita
allt aftur til fiskveiðiársins
2004/05 til að finna stærra ár í
loðnuveiðum hér á landi. Í
sögulegu samhengi síðasta ára-
tugar stefnir því í eitt af stærri
árunum í loðnuveiðum. Langt
er þó í land að ná stærstu
loðnuveiðiárunum en frá árinu
1984 hefur aflinn 10 sinnum
náð yfir milljón tonn á fiskveiði-
ári. Hið stærsta þeirra var
1996/97 þegar aflinn nam hátt í
1.600 þúsund tonnum.
Loðna mæld á stóru svæði
Líkt og áður er byggt á aðferð í
loðnumælingum sem tekin var
upp árið 1980, þ.e. að berg-
málsmælingar eru notaðar til
að kanna útbreiðslu og magn
loðnu. Í leiðangri að hausti er
mælingum beint að ungloðnu
og niðurstöður þeirra leggja
grunn að upphafsaflamarki
næstu vertíðar. Eftir áramót eru
síðan gerðar bergmálsmæling-
ar á fullorðinni loðnu, þ.e. veiði-
stofninum, og endanleg ráðgjöf
um aflamark gefin út, líkt og nú
var gert.
Í ástandsskýrslu fiskistofna,
sem Hafrannsóknastofnun gaf
út í júní síðastliðnum, segir að
veiðin á yfirstandandi vertíð
byggi að mestu á árgöngunum
frá 2011 og 2012 og samkvæmt
upplýsingum stofnunarinnar
mældist loðna á öllu mælinga-
svæðinu fyrir Norður- og Aust-
urlandi en hún var víða mjög
dreifð. Mest reyndist magnið
fyrir Vestfjörðum og Norður-
landi á þessum tíma en í heild
er veiðistofninn metinn 969
þúsund tonn. Að viðhafðri
þeirri reglu að 400 þúsund tonn
séu skilin eftir til hrygningar
gáfu útreikningarnir niðurstöðu
um 580 þúsund tonna afla-
mark.
Gera má ráð fyrir að af þess-
um afla komi yfir 400 þúsund
tonn í hlut íslenskra útgerða og
sá afli gæti skilað um og yfir 25
milljörðum króna í útflutnings-
verðmætum.
L
oðn
u
v
eiða
r
Góð loðnuvertíð í uppsiglingu
Eins og sjá má mældist loðna á stóru hafsvæði við landið norðan- og
austanvert nú í janúar.
Verði afli í samræmi við aflamark á vertíðinni stefnir í að hún verði sú næststærsta frá loðnuvertíðinni
2004/05.
www.isfell.is
Sjófatnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is