Reykjalundur - 01.06.1947, Page 30
BJORN GUÐMUNDSSON:
Framkvæmdir og ijáröflun
í stað þess að birta hér reikninga síðasta
árs, vil ég í fáum dráttum skýra lesendum
blaðsins frá fjárhag sambandsins, fram-
kvæmdum þess og framtíðarhorfum.
Árið 1946 var mesta tekjuár sambandsins
til þessa. Nettótekjur þess námu alls kr.
1.127.857.98. Stærstu liðirnir í þeirri upp-
hæð eru: Tekjur af happdrætti kr. 546.689.-
34, tekjur af Berklavarnadeginum og happ-
drætti því, sem honum fylgdi kr. 242.116.69,
stofnframlag ríkisins til bygginga að Reykja-
lundi kr. 280.000.00 og gjafir og minningar-
gjafir kr. 124.780.34. Allt þetta fé hefur
gengið til bygginganna að Reykjalundi. Þar
er nú verið að gera stórt átak, sem er bygg-
ing aðalhússins. Á því var byrjað sumarið
1946, og er það nú svo langt komið að það
er tilbúið til að setja á það þakjárn, og verð-
ur byrjað á því næstu daga eða jafnskjótt
og þakjárnið er fyrir hendi. Vonandi verður
það verk langt komið um það leyti, sem
blaðið kemur út. Byrjað er að húða húsið
utan. Þegar því er lokið og þakið komið á,
er húsið úr allri hættu vegna veðráttu, og
verður þá jafnskjótt hafizt handa með að
fullgera húsið innan, eftir því sem fjárhags-
ástæður leyfa. Hvort því verki miðar mikið
eða lítið áfram, fer eftir því, hversu skipast
um fjáröflun til þeirra framkvæmda. En tví-
mælalaust er það þjóðhagslegur ávinningur,
að bygging hússins tefjist ekki meira en
nauðsyn ber til. Þetta verður myndarleg
bygging þegar hún verður fullgerð. Henni
hefur áður verið lýst hér í blaðinu, eins og
fyrirhugað er að hún verði, en geta má þess,
lesendum til glöggvunar, að húsið er þrjár
hæðir og heldur stærra að flatarmáli en
Landsspítalinn, sem á sínum tíma var talinn
stór bygging. Má óhætt fullyrða, að verkinu
hafi miðað vel áfram á svona stuttum tíma,
miðað við allar aðstæður og nokkra óvissu
um fjáröflun til framkvæmdanna. Fram-
lagður stofnkostnaður Vinnuheimilisins
nemur í ágústlok ca. 3,7 miljónum króna.
Þar af hefur ríkið lagt fram kr. 800 þúsund
á tveim árum.
Sambandinu er og hefur verið ljóst, að til,
þess að standast straum af þessum bygginga-
framkvæmdum, þurfti að hefjast handa um
stórfellda fjáröflun. Happdrætti varð aftur
fyrir valinu. Hitt hafði gefið góða raun, og
vonir standa til þess, að þetta gefi af sér all-
miklar tekjur. Eins og lesendum er kunn-
ugt, er þetta 20 bíla happdrætti og er þegar
búið að draga í því, einu sinni, um 5 bíla.
Af þessum 5 bílum gengu 4 þegar út, en
eins vinningsins hefur ekki verið vitjað
ennþá.
Fyrir fyrsta drátt í happdrættinu, — en
þeir eru alls fjórir —, seldust rúmlega 45
þúsund miðar, það þýðir ca. 450 þúsund
brúttótekjur, sem er óneitanlega falleg tala.
En hún þarfnast skýringar.
Eins og áður hefur verið getið, er þetta
aðeins önnur hliðin, hin hliðin er kostnað-
urinn. Þegar á það er litið, að af þessari upp-
hæð þarf að greiðast andvirði allra bílanna,
kr. 270 þús., prentunarkostnaður og sölu-
laun til hinna fjölmörgu sölumanna víðs
vegar um land. Allmargir taka þeir þó ekk-
ert fyrir störf sín í þágu sambandsins. Þegar
allt kemur til alls, er því þessi þóknun, sem
greidd er fyrir sölu happdrættismiða, hverf-
andi lítil samanborið við þá miklu fyrirhöfn,
sem margir umboðsmenn sambandsins taka
á sig þegar til þeirra er leitað um aðstoð við
12
Reykjalundur