Reykjalundur - 01.06.1947, Síða 37

Reykjalundur - 01.06.1947, Síða 37
JÓHANN. J. E. KÚLD: Landkynning byggð á menningarstarfsemi Mitt í hinum blóðugasta hildarleik ver- aldarsögunnar, þegar vinnuorku og verð- mætum var sóað í algjöru brjálæði, í hinum menntaða heimi og mannslífin voru að engu metin, en þeim tortímt á þann djöfullegasta hátt, sem siðlaust mannkyn gat upphugsað, þá var hér á íslandi lagður grunvöllur að einu allra mesta afreksverki, sem unnið hefur verið síðan þetta land byggðist. Það voru hvorki ríkir menn að veraldarauði, né voldugir á venjulegan mælikvarða þess orðs, sem hér hófust handa, heldur fátækir og sjúkir menn, fyrrverandi og þáverandi berklasjúklingar landsins. Getur nokkuð gott komið frá Nazaret, er sagt að einhvern tíma hafi verið spurt. Það er heldur ekki ólíklegt að einhverjir hafi hugsað sem svo: Hvers er hægt að vænta af slíkum mönnum? Þegar S. í. B. S. hóf fyrst göngu sína, eða undirbúningur var hafinn að stofnun þess og starfi, þá mættu forgöngumenn þess máls alls staðar velvilja, en á þá var jafnhliða htið sem draumóramenn, sem ekki gerðu sér nægilega grein fyrir veruleikanum. „Það væri kraftaverk, ef h'ægt væri í tíð núver- andi kynslóðar, að hrinda slíkri stofnun af stað, sem þið talið um“, sögðu ýmsir góð- hjartaðir menn, sem vildu styðja málefnið. Nú hefur kraftaverkið skéð. Að Reykja- lundi í Mosfellssveit hefur risið af grunni heilt þorp, þar sem sjúklingar af heilsuhæl- unum hafa stofnað myndarlegan iðnrekstur og vinna að hagnýtum störfum, hver eftir sinni getu. A þessum sama stað, er nú langt komið að reisa eina mestu stórbyggingu Jóhann J. E. Kúld. landsins. Allt vitnar þarna um glæsibrag, stórhug og myndarskap þeirra, sem for- göngu hafa. Trúin á sigur hins góða er hér greypt í steininn á hinn eftirminnilegasta hátt. Þetta kraftaverk, sem hér hefur verið sagt fi;á, mun um alla framtíð standa sem óbrotgjarn minnisvarði þess, hvað hægt er að gera í þjónustu góðs málefnis, þegar eld- móður og óbilandi trú haldast í hendur. „Þegar Guð er með mér, hver er þá á móti mér?“ Þessi orð komu mér ósjálfrátt í huga, þegar ég skoðaði hinar stórbrotnu framkvæmdir að Reykjalundi, nú í sumar. Þetta mikla menningarafrek, sem hér ér verið að framkvæma, það hefur orðið til þess, að vekja athygli á Islandi sem menn- ingarríki, víða um lönd. Fyrirspurnir um Reykjalundur 19

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.