Reykjalundur - 01.06.1947, Side 44

Reykjalundur - 01.06.1947, Side 44
Nokkrar hugleiðingar í gamni og alvöru BLAÐAMAÐUR: Sá, er veit mjög lítið um allmikið og heldur áfram að læra minna og minna um meira og meira, unz hann veit hér um bil ekkert um allt. • BANKI: Stofnun, sem gjarnan lánar fé, þeim, er sannað geta, að þeir þurfi ekki á láni að halda. • SKRIFSTOFUSTJÓRI: Sá, er mætir stundvíslega á skrifstofunni, þegar vélritunarstúlkan kemur of seint, en of seint þegar hún kemur stundvíslega. • STJÓRNMÁLAMENN: Menn, sem alla ævf strita við að jafna ágreininga, er aldrei hefðu komið fram ef engir stjórnmálamenn væru til. • GJALDÞROT: Þegar öllum peningunum er troðið i buxnavasana en treyjan afhent lánardrottnunum. • FJÁRMÁLASNILLINGUR: Maður, sem getur aflað fjár með meiri flýti en fjölskyldan getur ausið þeim út. • EINSTEFNUAKSTUR: Fer fram á vegi, sem þekk- ist á því, að þar er ekið á fólkið aftan frá. ÁHRIFAVALD: Fjársjóður, sem menn telja sig eiga þar til reynt er að njóta góðs af honum. SÍGILDAR BÓKMENNTIR: Bækur, sem allir hrósa og segjast hafa lesið, þótt þeir aldrei hafi litið í þær. ÍHALDSSEMI: Vera sammála frjálslyndum mönn- um, er uppi voru á öldinni sem leið. , LÁNSTRAUST: Vara, sem nóg er af á meðan menn þurfa ekki á henni að halda, vandfengin þegar hennar er þörf, en ófáanleg ef hún er ómissandi. GENTLEMAÐUR: Sá, er ekki þekkir til vanmeta- kenndar, er kurteis án þótta, temur sér rólegar hreyf- ingar, snýr sér ekki við þótt kallað sé, lætur sér hvergi bregða þótt framið hafi verið hið herfilegasta glappa- skot. í einu orði sagt: Veitingaþjónn. • HEIMSPEKINGUR: Lærdómsmaður, sem veit all- mikið um mjög lítið og heldur áfram að læra meira og meira um minna og minna, unz hann veit nær allt um ekkert. • LISTAVERK: Verkt er menn geta ekki af hendi leyst, því að geti menn það, er það ekkert listaverk. KONA: Snilldarlegasta missmíði náttúrunnar. Getur hlustað á þrjár kynsystur án þess að tapa einu orði af ræðum þeirra og jafnframt sagt söguna af því, er hún var skorin upp við botnlangabólgu. • AUGLÝSING: Andlitsduft og varalitur kaupsýslu- manna. • LÍFTRYGGING: Skuldbinding, sem veldur basli og bágindum alla ævi, svo menn geti orðið ríkir þegar þeir deyja. REYKJARPÍPA: Tréhólkur með ágætum haus á báðum endum. • TÍZKA: Harðstjóri, sem greindir menn skopast að en hlýða skilyrðislaust. • HERKÆNSKA: Leyna óvinina því, að öll skotfærin eru upp gengin og halda bara áfram að skjóta á þá. • PIPARMEY: Kona, sem allar stundir býr sig undir að svara spurningu, sem aldrei er fram borin. , 26 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.