Reykjalundur - 01.06.1947, Síða 48

Reykjalundur - 01.06.1947, Síða 48
ODDUR ÓLAFSSON: 43. ársþing N.T.A. Fertugasta og þriðja ársþing Bandaríska berklavarnasambandsins (National Tub. association, N. T. A.) var háð í San Frans- isco, dagana 15.—22. júní síðastliðinn. Na- tional Tuberculosis ass. er félagsskapur allra þeirra í U. S. A., sem vilja vinna að og styrkja berklavarnir og berklalækningar þar í landi. Flestir eru meðlimirnir leik- menn, en deild innan félagsskaparins er Trudeau Society þ. e. Félag bandarískra berklalækna. N. T. A. hefur haft forgöngu í berklavörn- um og berklalækningum Bandaríkjanna allt frá stofnun sambandsins árið 1903, og frá þeim tíma hafa fulltrúar frá hinum ýmsu félagsdeildum komið saman árlega, til þess að ræða árangur síðasta starfsárs og skipu- leggja framtíðina. — Eg, sem þessar línur rita, sat þetta þing sem gestur, og mun ég nú með fáum orðum drepa á tvö af þeim málum, sem þar voru til umræðu. Fyrsta málið og það, sem mesta athygli vakti, var Streptomycin; annað var BCG., þ. e. bólu- setning gegn berklaveiki. I. Streptomycin: Allir berklasjúklingar og allir þeir, sem áhuga hafa á þeirra málum, kannast nú orðið við streptomycin. Eg mun því ekki orðlengja um upphaf streptomycin- rannsókna, en aðeins geta þess, að síðustu 2—3 árin hafa margir alið þær vonir í brjósti, að streptomycin kæmi að haldi sem læknislyf gegn berklaveiki, enda flest, sem <um lyfið hefur verið skrifað, verið þrungið bjartsýni um mátt þess gegn Tbc. Síðasta ársþing N.T.A. hafði falið sérstakri nefnd sérfræðinga, að safna öllum gögnum, sem til næðist, um lækningatilraunir á berklasjúklingum með streptomycin, og einnig skyldi hún sjálf sjá um víðtækar til- raunir með lyfið. Árangur varð sá, að lagð- ar voru fram í þessu þingi skýrslur og rönt- genmyndir um yfir 1000 berklasjúklinga, sem höfðu fengið streptomycin í tilrauna- og lækningaskyni. Vegna þess hve oft berklaveiki læknast án aðgerða eða lyfja, þurfti sérstaka var- færni, ef dæma átti um það hvort bati væri lyfinu að þakka eða ekki. Sex sérfræðingar lásu hver í sínu lagi úr öllum röntgenmynd- um og sendu skriflegt álit um hvert tilfelli, síðan voru álit allra sérfræðinganna borin saman og samræmd. Hælin, sem strepto- mycinið notuðu, fengu ákveðnar fyrirskip- anir frá nefndinni um, hverjum gefa mætti streptomycin og hvernig, t. d. Rutland-hæli í Massachussets. Þau tilfelli, sem gefa mátti streptomycin, urðu að uppfylla eftirtalin skilyrði: 1. Hafa berklasýkla í hráka; 2. Versnandi . sjúkdómur eða, a. m. k. ekki batnandi eftir 2ja mán. hælisvist; 3. að sjúkl- ingnum sé ætlað líf a. m. k. í 1 ár; 4. sjúk- dómurinn sé nýlegur. — Röntgenmyndir og fjölda rannsókna átti að gera á 1—4ra vikna fresti. Gefið var af lyfinu 2 gr. 5 s. á dag, þ. e. á 4ra tíma fresti, nema á nóttunni, þá sleppt. Onnur hæli fengu fyrirskipanir um annað fyrirkomulag, bæði hvað snerti sjúkl- ingaval og magn lyfsins. Álit þessara manna á streptomycin var það, að við vissar tegundir berklaveiki væri það mikils virði; en við aðrar tegundir kæmi það ekki að neinu haldi. Þær tegund- ir, þar sem vænta má árangurs, eru þessar: 1. heilahimnubólga, 2. bráðaberklar, 3. barka- og lungnapípuberklar, 4 berkla- lungnabólga, 5. útvortisberklar, 6. garna- berklar. Einskis verulegs árangurs má vænta við algengustu og mikilvægustu teg- 30 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.