Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Fulltrúar frá yfir hundrað ríkjum
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) höfðu boð-
að komu sína á Rakarastofu-
ráðstefnuna svokölluðu sem hófst í
gær í höfuðstöðvum SÞ í New York.
Fulltrúar Íslands og Súrínam hjá SÞ
standa að ráðstefnunni sem hefur
vakið heimsathygli og lýkur í kvöld.
„Við erum mjög sátt með þátttökuna
og vonandi verður hún svona góð á
morgun líka. Mér sýnist vera töluvert
mikill áhugi á þessu hérna miðað við
það sem maður sér og heyrir,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson utanrík-
isráðherra, staddur í New York.
Segir viðbrögðin jákvæð
Gunnar kveður viðbrögðin úti hafa
verið góð, en ráðstefnan hefur sætt
gagnrýni, bæði hérlendis og erlendis,
vegna þess að þátttakendur ráðstefn-
unnar eru allir karlar. Þá er nafn ráð-
stefnunnar tilvísun til þess að karlar
hittast oft á rakarastofum og ræða
málin en hugsunin á bak við ráðstefn-
una er að fá karla til að taka meiri
þátt í umræðunni um kynjamisrétti.
Ákveðið var að halda ráðstefnuna í
kjölfar frægrar ræðu leikkonunnar
Emmu Watson á síðasta ári, sem
markaði upphaf #HeforShe-átaksins,
þar sem hún benti á að karlmenn
þyrftu að taka þátt í umræðunni um
kynjamisrétti. „Auðvitað eru ein-
hverjir sem hafa efasemdir um að
þessi hugmynd sé til þess fallin að
bæta stöðu málaflokksins en almennt
eru viðbrögðin jákvæð og fólki finnst
þetta spennandi tilraun sem við erum
að gera hérna,“ segir Gunnar.
Þá vonar Gunnar að ráðstefnan
skili sér í aukinni umræðu meðal
karla um jafnréttismál. „Við vonum
að þetta skili umræðu um þátttöku
karla í jafnréttismálum og ofbeldi
gegn konum. Við vonumst líka eftir
því að þetta styðji við #HeforShe-
verkefnið sem Íslendingar hafa tekið
opnum örmum. Og ef þetta tekst vel
þá vona ég að aðrir taki þessa hug-
mynd upp og noti hana heima hjá sér,
hvort sem það verður gert í ráð-
stefnuformi sem þessu eða í bæj-
arfélögum, klúbbum, fyrirtækjum
eða hvar sem er.“
Lagt var upp með að Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís-
lands, færi með ræðu á ráðstefnunni
en hún þurfti að boða forföll. Mun
hún því ávarpa ráðstefnuna í gegnum
netið.
Karlar ræða jafnréttismál
Rakararáðstefnunni í New York lýkur í dag Fulltrúar frá yfir hundrað
ríkjum taka þátt Gunnar Bragi segir áhugann mikinn og þátttökuna góða
Ljósmynd/Urður Gunnarsdóttir
Jafnrétti Ráðstefnan hófst í gær. Frá vinstri: Gréta Gunnarsdóttir, fyrrv. fastafulltrúi Íslands hjá SÞ, Bragi Sveins-
son, forveri hennar, Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og aðstoðarmaður hans, Sunna Gunnars Marteinsd.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Hvalaskoðunarfyrirtækið Norður-
sigling á Húsavík vinnur að því að raf-
magnsvæða eitt skipa sinna, skonn-
ortuna Opal, þannig að seglbúnaður
skipsins verði notaður til að hlaða raf-
hlöðurnar sem knýja áfram skipið.
„Við erum að þróa alveg nýtt kerfi
sem byggist á því að seglin og raf-
magnið vinna saman. Ef það er góður
vindur getum við notað seglin og
skrúfuna til að hlaða rafhlöðurnar.
Við ákveðnar aðstæður getum við því
framleitt rafmagn,“ segir Árni Sigur-
bjarnarson, einn eigenda Norðursigl-
ingar. „Það gefur miklu meiri upplif-
un að vera á hljóðlausum bát heldur
en að vera á báti með vélarhljóð. Fyr-
ir utan það að allt vélarhljóð hefur
áhrif á lífríkið.“
Nota seglbúnaðinn til að
hlaða rafhlöðurnar
Ljósmynd/Norðursigling
Skonnorta Opal er tveggja mastra seglskip og tekur 60 farþega í dagsferðir.
Báturinn hljóð-
látari en vélbátur
Þyrla Landhelg-
isgæslunnar
lenti á Akureyri
um klukkan 20 í
gærkvöldi eftir
að hafa verið
kölluð á vett-
vang í Hlíð-
arfjalli til að
flytja þaðan vél-
sleðamann sem
hafði slasast í
Litlahnjúki, sem er nyrst í fjallinu.
Björgunarsveitir í Eyjafirði voru
kallaðar út síðdegis í gær eftir að
tilkynning barst um að maður hefði
slasast í Hlíðarfjalli og fóru á stað-
inn á vélsleðum og snjóbíl, en þarna
er svæðið talsvert grýtt og ekki
þótti ráðlegt að flytja hann niður í
bíl og var því kallað á þyrluna.
Maðurinn slasaðist talsvert og
hlaut m.a. beinbrot en er ekki sagð-
ur vera í lífshættu. Hann var ásamt
fimm öðrum í vélsleðaferð í fjall-
inu.
Þyrla Gæslunnar
sótti slasaðan
vélsleðamann
Þyrla Maðurinn var
sóttur í Hlíðarfjall.
Gert er ráð fyrir stormi norðaust-
antil á landinu í kvöld með vindi
meira en 20 metrar á sekúndu sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands. Tekið er fram að víða verði
slæmt ferðaveður af þeim sökum.
Spáð er norðlægri átt 8-15, það
verður éljagangur norðantil, en
bjartviðri syðra. Hvessir heldur og
bætir í ofankomu nyrst seint í kvöld
og nótt. Norðvestan 13-20 og fer að
snjóa á Norður- og Austurlandi seint
á morgun, en annars hægari og úr-
komulítið. Norðvestan og vestan 15-
23 norðaustantil í kvöld. Frost yfir-
leitt 0 til 8 stig en kaldast verður í
innsveitum.
Á morgun er spáð 10-18 metrum á
sekúndu norðaustantil og snjókomu
norðvestantil. Bjartviðri verður þó
fyrir sunnan. Frost yfirleitt 1 til 8
stig og kaldast inn til landsins, sam-
kvæmt upplýsingum Veðurstofu.
isb@mbl.is
Stormi spáð á Norð-
austurlandi í kvöld
Spáð er bjartviðri fyrir sunnan
Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir
Óveður Víða verður slæmt veður.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Edda Heiðrún Backman, leikari og
málari, er ein af þeim sem nýta sér
ferðaþjónustu fatlaðs fólks sem legið
hefur undir miklu ámæli að undan-
förnu. Strætó tók yfir rekstur þjón-
ustunnar alls staðar á höfuðborgar-
svæðinu, nema í Kópavogi, um
áramótin og innleiddi nýtt kerfi sem
hefur ekki virkað sem skyldi.
Edda bættist í stóran hóp þeirra
sem eru ósáttir við þessa þjónustu
eftir gærdaginn. Hún hringdi þá á bíl
til að koma að heimili sínu því hún átti
að mæta í sund.
Bíllinn hinsvegar
kom ekki á tilsett-
um tíma, heldur
klukkutíma of
seint og missti
Edda því af sund-
inu – sem er henni
svo mikilvægt.
Ekki var raun-
um hennar lokið
því síðar um dag-
inn þurfti hún aftur að panta ferð með
þjónustunni. „Þá þurfti ég líka að bíða
og bíða. Ég beið svo lengi að ég missti
af klósettferð og átti bara að bíða og
pissa á mig,“ segir hún og það má
heyra á rödd hennar hversu reið hún
er út í kerfið og þessar breytingar.
„Ég verð ekki oft reið en ég er mjög
reið eftir þennan dag. Mér féll allur
ketill í eld, brotnaði niður og fór að
gráta. Það er erfitt að panta bíl og
bíða eftir einhverju sem kannski kem-
ur ekki.“
Óöryggi, hræðsla og röskun
Starfandi formaður velferðarráðs
Reykjavíkurborgar hefur gefið for-
ráðamönnum Strætó frest til 23. jan-
úar að skila áætlun um hvernig ráðin
verði bót á þeirri stöðu sem er uppi
vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Í
yfirlýsingu sem réttindagæslumenn
fatlaðs fólks í Reykjavík og á Sel-
tjarnarnesi sendu frá sér á mánudag
kom fram að fólkið hefði upplifað óör-
yggi, hræðslu og mikla röskun á sínu
daglega lífi vegna ófullnægjandi þjón-
ustu Strætó. Þá hefur Dagur B. Egg-
ertsson beðið fatlað fólk afsökunar á
þróun mála. „Það hefur valdið mikl-
um vonbrigðum hvað breytt fyrir-
komulag og tölvukerfi hefur farið illa
af stað eins og fjölmörg dæmi sanna.
Strætó baðst í gær velvirðingar og
bað notendur þjónustunnar afsökun-
ar á þeim óþægindum sem þeir hefðu
orðið fyrir – og það geri ég sömuleið-
is.“
Samráðshópur frá Strætó, sveitar-
félögum og hagsmunasamtökum fatl-
aðs fólks, Þroskahjálp og Öryrkja-
bandalaginu, fundaði í gær til að fara
yfir framkvæmdina á samningnum en
hópurinn á að hittast á fjögurra mán-
aða fresti. Honum var ekki lokið þeg-
ar Morgunblaðið fór í prentun í gær.
Í næstu viku hefur verið boðað til
annars fundar með notendum nýja
kerfisins þar sem hægt verður að
koma með ábendingar og spyrja
spurninga um hið nýja kerfi sem
skellt var á kynningarlaust.
„Brotnaði niður og fór að gráta“
Leikkonan Edda Heiðrún Backman er afar ósátt vegna seinagangs ferðaþjónustu fatlaðs fólks
Strætó hefur frest til 23. janúar að taka til í nýja kerfinu sínu sem legið hefur undir miklu ámæli
Edda Heiðrún
Backman
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur lokið rannsókn á láti konu í
Stelkshólum í lok september. Málið
er komið til ríkissaksóknara sem
tekur ákvörðun um útgáfu kæru,
hvort málið verði fellt niður eða
sent lögreglu til frekari rann-
sóknar. Maður konunnar sem lést
var handtekinn á vettvangi og er í
öryggisgæslu á réttargeðdeild
Landspítalans á Kleppi.
Rannsókn lögreglu
á mannsláti lokið