Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 70

Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 70
70 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 ✝ Guðrún ÓlöfSvavarsdóttir fæddist á Sauð- árkróki 14. júní 1932. Hún lést á Heilbrigð- isstofnuninni á Sauð- árkróki 7. janúar 2015. Foreldrar hennar voru Svavar Guð- mundsson og Sig- urbjörg Ögmunds- dóttir. Guðrún ólst upp á Sauðárkróki á heimili afa síns og ömmu, þeirra Ögmundar Magnússonar og Kristínar Bjarg- ar Pálsdóttur. Árið 1951 flyst hún til Vopna- fjarðar með Björn son sinn. Guðrún giftist hinn 22. maí 1954 Þorsteini Lárusi Vigfússyni, f. 31.7. 1927, d. 24.6. 1995. Börn Guðrúnar eru: Drengur, f. 1948, d. 1948, Björn Jónsson, f. 1950, maki Sigríður Guðmundsdóttir, þau eiga fjögur börn. Auðbjörg Þorsteinsdóttir, f. 1952, maki Sigurður Guðjónsson, þau eiga þrjár dætur. Kristín Þorsteinsdóttir, f. 1954, hún á tvær dætur. Vigfús Þor- steinsson, f. 1957, maki Drífa Árna- dóttir, þau eiga þrjú börn. Margrét Helga Þorsteins- dóttir, f. 1963, maki Lúðvík Blöndal, hún á fjögur börn. Guðrún átti 16 barnabörn, 42 barnabarnabörn og tvö barnabarnabarnabörn. Guðrún og Þorsteinn hófu bú- skap í Lindarbrekku á Vopna- firði þar sem hún sinnti heim- ilisstörfum og vann í síld á sumrin. Árið 1973 fluttust þau á Sauðárkrók þar sem hún sinnti ýmsum störfum, lengst af í Loð- skinni. Árið 1985 keyptu þau húsið á Hólavegi 1 þar sem þau bjuggu til æviloka. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 15. jan- úar 2015, kl. 14. Mamma Guð þig leiði sérhvert sinn sólarvegi alla. Verndarengill varstu minn vissir mína galla. Hvar sem ég um foldu fer finn ég návist þína. Aldrei skal úr minni mér mamma, ég þér týna. (Jón Sigfinnsson) Ég elska þig og á alltaf eftir að sakna þín. Þú býrð í hjarta mínu svo lengi sem ég lifi. Þinn sonur, Vigfús. Mig langar að þakka þér, elsku mamma mín, fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman í gegnum tíðina. Þú varst mín besta vinkona og vinur, alltaf var hægt að hringja og spjalla við þig og fá ráð hjá þér. Læt hér fylgja fallegt ljóð til þín, elsku mamma: Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum.) Elsku mamma ég kveð þig með söknuði, ég veit að þú ert komin á góðan stað. Þín Margrét (Gréta). Takk elsku mamma mín fyrir allt sem þú varst mér og allt sem þú gafst mér. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Björn Jónsson (Bjössi). Með fáeinum orðum langar mig að minnast elsku ömmu minnar, Gunnu ömmu, sem ég var svo lánsöm að fá að kynnast og þekkja. Frá því ég man eftir mér hefur amma verið fastur punktur í mínu lífi, ég og Vopni bróðir minn vorum mikið hjá ömmu og afa á Hólaveginum fyrstu árin okkar á Króknum. Þegar grunnskólagangan hófst var nú ekki langt að fara, bara rétt yfir götuna. Þá spæjaði amma út um þvottahúsgluggann hvort það væru ekki örugglega allir góðir við hana nöfnu sína í frímínútum og gaf mömmu og pabba „rapport“ eftir daginn. Ég fór oft til ömmu eftir skóla, þá var hann afi minn nú fallinn frá. Við amma dúlluðum okkur við ýmislegt þessa eftirmiðdaga, helst þó að mála á tau með sér- stökum pennum. Amma var allt- af tilbúin með kaffi (eða mjólk) og með því, það var nú æði oft sem fólk leit inn og aldrei stóð á kræsingunum; krónukakan fræga sem amma gerði glass- úrlistaverk á, tekexkakan, osta- kakan með makkarónubotninum og að sjálfsögðu ömmuvöfflur, helst með rækjusalati. Hún amma var mikil húsmóðir og snyrtipinni með meiru, þó ekki svo að það mætti ekki leika sér og skoða allt fína dótið sem hún átti. Það lifir mjög sterkt í minningunni þegar ég var að vaska upp með ömmu, þá setti hún vatn í fat ofan í vaskinn, hún var vön því að vera ekki að spandera vatninu frá því að hún bjó á Vopnafirði, svo vaskaði hún upp og ég þurrkaði. Í seinni tíð vorum við meira í því að spjalla yfir kaffibolla, amma sagði frá gömlum tímum eins og þeir hefðu gerst í gær, hún mundi minnstu smáatriði og þó að ég fengi að heyra sömu sög- urnar oft fannst mér þær alltaf jafnáhugaverðar því amma lifði merkilegu lífi og hafði frá mörgu að segja. Það er alveg endalaust af minningum og tilfinningum sem kemur upp í hugann þegar ég rifja upp samband mitt við ömmu en fyrst og fremst er það þakklæti, ég er svo þakklát fyrir það að hafa kynnst henni ömmu og hafa átt hana að, ég er svo þakklát fyrir allt sem hún kenndi mér bæði meðvitað og ómeðvitað og síðast en ekki síst er ég þakklát fyrir að hafa getað verið hjá henni síðustu dagana hennar og upplifað með henni og fjölskyldunni að svona erfiðir tímar geta líka verið yndislegir. Amma sagði alltaf „við förum þegar við eigum að fara“ og ég veit að hún var tilbúin, sátt við að núna væri hennar tími kom- inn. Ég sakna þín elsku amma mín. Guðrún Björnsdóttir. Elsku hjartans amma Gunna okkar er fallin frá. Við sitjum hérna saman systkinin og minnumst góðu stundanna með þér og afa. Við hugsum til allra stundanna sem við áttum við eldhúsborðið á Hólaveginum, þau voru ófá skiptin sem við fengum glænýj- ar kleinur og (vatns)parta. Þegar við vorum lítil fengum við oft að gista hjá ömmu og afa, þá voru alltaf til breik-pinnar og það var passað upp á spýturnar úr þeim en með þeim var hægt að byggja ýmis listaverk. Stund- um fengum við líka popp, okkur þótti mjög fyndið þegar þið afi tókuð út úr ykkur tennurnar til að geta borðað það með okkur. Fáir voru eins færir með strauboltann og þú, elsku amma. Þú sást til þess að við bræðurnir værum í stífstraujuðum og pressuðum gallabuxum eftir að mamma og pabbi fluttu í sveit- ina og ekki má gleyma brotinu í sokkunum. Þegar kíkt var við á Hólaveg- inum fór maður sjaldnast þaðan tómhentur. Þá dróst þú fram nýjasta föndrið þitt, sem ýmist var handmálað postulín, serví- ettumyndir eða málaðir eða heklaðir dúkar. Langömmubörn- in fengu líka að njóta góðs af þessu föndri en til eru ófá dúkkuteppi og mottur sem mikið er búið að leika með í dúkku- og playmo-húsunum á okkar heim- ilum. Við munum minnast þín með þakklæti og gleði í hjarta fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman. Nú ert þú komin til afa Steina sem þú hefur saknað sárt og hann væntanlega tekið á móti þér með brosi og sprelli, við biðjum að heilsa honum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Harpa, Þorsteinn og Árni. Þessa síðustu daga hennar Gunnu ömmu hafði ég það ómet- anlega tækifæri að sitja hjá henni og rifja upp liðinn tíma, margar þær góðu stundir sem ég hafði átt með henni frá því ég fór að muna eftir mér. Allar ferðirnar á Krókinn þar sem amma og afi tóku á móti okkur á Aðalgötunni og svo seinna á Hólaveginum, hlaðin kaffiborð og kvöldkaffi áður en farið var í háttinn. Kappkapall spilaður við eldhúsborðið langt fram á kvöld og svo seinna, eftir að afi kvaddi þennan heim, spjall yfir kaffi- bolla og fallega handverkið hennar ömmu skoðað. Ósjaldan var setið í eldhúsinu á Hólaveginum þar sem amma sagði mér frá því þegar hún sem ung kona lagði af stað, ásamt Birni föður mínum, þá rétt árs- gömlum, með strandferðaskipi frá Skagafirði til Vopnafjarðar. Þetta var mikið ferðalag og seg- ir svo margt um staðfestu ömmu og ákveðni. Í smáatriðum sagði hún mér frá þessu ferðalagi, hvað hún hafði með sér, hvar var stoppað og hvernig koman var til Vopnafjarðar, hvaða líf tók þar við. Skemmtilegar voru sögurnar af síldarsöltun, sælu- vikum og öðrum atburðum sem voru ömmu hugleiknir. Þau afi voru mér mikil fyrirmynd, alltaf létt yfir þeim, mikið hlegið og gantast. En þegar ég hugsa um hana Gunnu ömmu þá er mér ein- hvern veginn efst í huga hvað ein manneskja, eitt hversdags- legt æviskeið, hefur að segja í þessari veröld. Hvað hennar líf og hennar ákveðni er stór áhrifavaldur í mínu eigin lífi. Hvernig við í daglega lífinu lær- um svo mikið af þeim sem við leitumst við að eyða tíma með, mikilvægi þess að eiga ömmu sem naut þess að fá okkur til sín og valdi að deila með okkur barnabörnunum sínum dýrmæta tíma. Ég er þakklát fyrir þá gjöf og met það mikils að hafa lært af henni Gunnu ömmu vægi þess að sitja saman, hlusta og segja frá. Ég kveð hana ömmu með þakklæti og virðingu, virðingu fyrir staðfestu hennar sem hefur svo ríkulega skilað sér inn í líf afkomendanna. Drottins í dýrðarhendi, drottins barn, sofðu vært, hann sem þér huggun sendi hann elskar þig svo kært, þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson) Guðmunda Björnsdóttir. Guðrún Ólöf Svavarsdóttir ✝ Jón Guð-mundsson, húsasmíðameistari fæddist á Kleifa- stöðum í Kollafirði í Austur- Barðastrand- arsýslu 24. febrúar 1923. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 2. janúar 2015. Foreldrar hans voru Þórey Jónsdóttir, f. 6.11. 1900, d. 14.6. 1965, og Guð- mundur Jónsson, f. 14.6. 1896, d. 25.8. 1973. Systkini Jóns eru: Svandís, f. 6.9. 1924, d. 25.7. 2005, Oddur, f. 14.12. 1925, d. 6.11. 2004, Ástvaldur, f. 28.5. 1940, d. 12.1. 2011, og Júlíus, f. 30.3. 1942. Jón giftist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Guðlaugu Kristbjörnsdóttur, f. 17.8. 1919, frá Birnustöðum Skeiðum hinn 24.12. 1948 og bjuggu þau í Reykjavík alla sína búskap- artíð. Dætur þeirra eru; 1) Valgerður Kristbjörg Jónsdóttir, f. 2.8. 1950, gift Sigurjóni Karlssyni, f. 12.5. 1950. Börn þeirra eru 3; a) Guðjón, f. 3.4. 1971, giftur Hrefnu Björk Sigurðardóttur, f. 6.8. 1975, dætur þeirra eru, Fanney Þula og Máney Þula. Fyrir átti Guðjón Völu Björgu, heimilisstörfum eins og þá var algengt og hafði hvert barn sínar skyldur og hlutverk á bænum. Skólaganga var ekki löng þar sem treyst var á far- andkennara sem komu í sveit- ina og þar námu börnin allt sem þeim bauðst. Um tvítugt fluttist Jón til Reykjavíkur og vann fyrst almenna verka- mannavinnu þar til hann hóf störf hjá Vagnasmiðjunni og í framhaldi af því fór hann í Iðn- skólann og lærði þar húsa- smíði. Að námi loknu vann hann við smíðar það sem eftir var starfsævinnar, ýmist í sam- starfi við aðra eða einn með sitt eigið verkstæði, lengst af í Tranavogi. Jón sinnti smíð- unum allt þar til hann seldi verkstæðið þá 79 ára að aldri. Jón og Guðlaug hófu búskap sinn í Laugarneshverfinu, fluttu síðan í Karfavoginn og bjuggu þar í 5 ár eða þar til fjölskyldan fluttist í Njörva- sund 8, þar sem hann byggði hús fyrir fjölskylduna í auka- vinnu sem var algengt á þeim árum. Þar bjuggu þau hjónin í 44 ár eða þar til þau fluttust að Skúlagötu 20 árið 2000. Jón hafði gaman af lestri og spilamennsku og fóru þau hjón í nokkur ár á ýmis spilakvöld og dansskemmtanir í bænum eða meðan heilsan leyfði. Útför Jóns verður gerð frá Grensáskirkju í dag, 15. janúar 2015, kl. 13. barnsmóðir Eva Björg Guðmunds- dóttir. Fyrir átti Hrefna Pálma Frey og Nóna Sæ. b) Hulda, f. 2.6. 1975, gift Óskari Vigni Eggertssyni, f. 27.4. 1972. c) Ei- ríkur, f. 22.4. 1977, sonur hans er Gunnar Ylur, barnsmóðir El- ínborg Þorsteinsdóttir. 2) Mar- grét Jóna Jónsdóttir, f. 29.8. 1957, gift Inga Þór Þorgríms- syni, f. 28.5. 1957. Börn þeirra eru 5; a) Helgi Marteinn, f. 18.6. 1982, börn hans eru Húnbogi Bjartur og Hulda Rún. barns- móðir Hlín Pálsdóttir. b) Guð- laugur, f. 17.8. 1983, sambýlis- kona Anna Björk Magnúsdóttir, f. 28.5. 1986, dóttir þeirra er Sóley Rut. c) Jóhann Óli, f. 8.3. 1988, giftur April Lee Ingason, f. 24.2. 1988, sonur þeirra er Thor- grímur Lee. d) Elísabet María, f. 27.12. 1992, unnusti hennar er Birkir Rafn Þorvaldsson, f. 18.6. 1989. e) Katrín Þórey, f. 4.8. 1994. unnusti hennar er Guðjón Reynisson, f. 25.2. 1994. Jón ólst upp á Kleifastöðum og sinnti þar búverkum og Elsku pabbi minn kvaddi þennan heim 2. janúar, tæpra 92 ára gamall. Ekki eru allir svo heppnir að njóta þess að fá að hafa foreldra sína svo lengi. Ég var svo heppin að fá að hafa hann, manninn sem kenndi mér svo margt af sinni kostgæfni og rólyndi, hafði hann þolinmæði og tíma þótt vinnudagurinn væri langur. Þó að vinnudeg- inum á verkstæðinu væri lokið þá voru verkefni heima; sinna bókhaldi, og ýmis útköll, bilaðir lásar, hurðir eða hvað annað sem kom uppá, þessu var sinnt á kvöldin eftir langan vinnudag. Stelpuskottið fékk stundum að koma á verkstæðið til að sópa og setja sag í poka, hjálpa til við að þvo bílinn eða hvað ann- að sem til féll. Ég hélt að ég væri að hjálpa til en í dag held ég að ég hafi verið meira að tefja hann, en stolt var ég að fá að dinglast í kringum hann. Þó missi ég heyrn og mál og róm og máttinn ég þverra finni, þá sofna ég hinst við dauðadóm, ó, Drottinn, gef sálu minni að vakna við söngsins helga hljóm í himneskri kirkju þinni. (Ólína Andrésdóttir) Í dag kveð ég hann með söknuði og þakklæti fyrir þá lífsreglu sem hann kenndi mér; að læra vel grunnreglur og þá væru allir vegir færir hvað sem ég tæki mér fyrir hendur. Margrét Jóna. Í dag kveð ég tengdaföður minn, Jón Guðmundsson, hinstu kveðju eftir tæpra 37 ára kynni. Á þeim tíma hef ég notið aðstoðar hans, ráðgjafar og leiðbeininga auk fræðslu og góðs félagsskapar. En þótt við kveðjum góða aðstandendur á enda þeirra langa ævidags þá lifir minningin og það sem numið er í samfélagi við þá á samferðartímanum. Af tengda- föður mínum lærði ég dýrmæt fræði sem ég mun varðveita allt til enda, en ráðgjöf hans þegar tekist var á við krefjandi verk- efni hljóðaði oftar en ekki upp á einfalda og heilbryggða skyn- semi: „meira vinnur vit en strit“. Á þessari stundu þegar sam- einast söknuður og þakklæti er hinsta kveðja mín: hvíl í friði. Ingi Þór Þorgrímsson. Mér er það einstaklega ljúft að minnast Jóns Guðmundsson- ar trésmíðameistara. Í hugann koma fram ótal myndir og minningar og ekki síst þakk- læti fyrir að hafa átt samfylgd með honum. Hann var af hag- leiksmönnum kominn og sem ungur drengur fór hann snemma að bjarga sér. Hann var til dæmis í vegavinnu sem kúskur með hestakerru við lagningu þjóðvegar eitt um Bólstaðarhlíðarbrekku. Eftir það fór hann að starfa við að hnoða skipsskrokka í Stáls- miðjunni. Var það fyrir tíma suðutækni við skipasmíðar. Hann var af þeirri kynslóð sem átti meiri kröfur á sjálfa sig en aðra. Ungur að árum komst hann í lærlingsnám í húsa- smíði. Námið sóttist honum vel og lauk hann því með stakri prýði. Að námi loknu starfaði hann með mágum sínum við ýmis verkefni. Þeir stofnuðu síðar Trésmíðaverkstæðið Listann sf. sem var á þeirra tíma mæli- kvarða talsvert umsvifamikið í smíði innréttinga. Svo fór að lokum að Jón yfirtók rekstur- inn einn. Starfrækti hann tré- smíðaverkstæðið langt fram yf- ir sjötugasta aldursárið. Trésmíðaverkstæði þetta var einstakt hvað varðaði þjónustu við endurgerð gamalla húsa. Á tímum hraðans máttu menn ekki vera að því að sinna svo- leiðis verkum. Við sem um- gengumst hann á þessum tíma vitum að sum verk voru meira unnin af hugsjón en hagnaðar- von. Ekki má gleymast að minn- ast á að Jón kom sér upp myndarlegu iðnaðarhúsi í Tranavogi 5. Byggði hann það í mörgum áföngum. Er það upp á mörg hundruð fermetra að grunnfleti og þriggja hæða. Þetta vann hann nær eingöngu einsamall og utan venjulegs vinnutíma. Auk alls þessa var Jón tals- vert umsvifamikill bygginga- meistari við nýbyggingar. Við gerð steinsteyptra mannvirkja koma oft upp vandamál við út- færslur á því sem hönnuðir hafa lagt til. Þá kom í ljós að Jón hafði hlotið drjúgan skerf af smiðshæfileikum í vöggugjöf. Birtist þetta í því hversu lausnagóður hann var. Oft var sagt: „Þetta er ekki hægt að framkvæma.“ Þá sagði hann með hægð: „Ef þú getur teiknað það þá er líka hægt að smíða það.“ Um 1975 stóð Jón sem húsa- smíðameistari ásamt öðrum að innleiðingu kerfismóta og notk- un byggingakrana við húsagerð í Reykjavík. Með þessari nýju tækni ávannst mikill sparnaður og aukinn byggingarhraði.Var sérstaklega ánægjulegt að fylgj- ast með hvað hann nálgaðist verkefnin með opnum huga og hversu fljótur hann var leysa mörg séríslensk vandamál sem á vegi urðu. Mörgum ungum mönnum hjálpaði Jón til að öðlast rétt- indi í trésmíði. Lærlingum hans farnaðist vel í náminu enda höfðu þeir unnið við smíði húsa allt frá fyrstu skóflustungu til fullbúins húss. Auk þess sem þeir höfðu öðlast reynslu á tré- smíðaverkstæði. Margir skóla- bræður þeirra höfðu ef til vill aldrei gert neitt annað en vinna við mótasmíði allan námstím- ann. Við samstarfsmenn Jóns minnumst hans með þakklæti og virðingu og vottum eiginkonu hans og dætrum svo og fjöl- skyldum þeirra dýpstu samúð. Eggert Atlason. Jón Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.