Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 64

Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 64
Morgunblaðið/Kristinn Valmöguleikar „Á næsta ári munum við kynna fleiri áfangastaði vestanhafs en hvaða borgir það verða liggur ekki endanlega fyrir að svo stöddu,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir. Ætli New York verði þar á meðal? Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Leiðakerfi WOW air hefurstækkað hratt á und-anförnum árum og ennfjölgar spennandi áfanga- stöðum. Í ár eru það Boston og Washington DC sem bætast við úr- valið og auka um leið samkeppnina á flugleiðum vestur um haf. Einnig verður með vorinu byrjað að fljúga á fjóra nýja staði í Evrópu: Dublin, Róm, Tenerife og Billund. Svanhvít Friðriksdóttir er upp- lýsingafulltrúi WOW. Hún segir viðtökurnar við flugleiðunum til Bandaríkjanna hafa verið svo góð- ar að ákveðið hafi verið að auka tíðni og fljúga þangað allt árið. „Flogið verður til Washingotn DC fimm sinnum í viku og sex sinnum til Boston, allan ársins hring. Verð- ur jómfrúflugið til Boston hinn 27. mars en 8. maí til Washington.“ Á slóðum Franks Underwoods Bandarísku áfangastaðirnir hafa upp á margt að bjóða fyrir íslenska ferðamenn. Höfuðborg Bandaríkj- anna er skemmtilegur staður heim að sækja og m.a. hægt að verja löngum stundum í hinu fræga Smithsonian-safni eða upplifa póli- tíska andrúmsloftið við Hvíta húsið og í sjálfu þinghúsinu. „Við fljúg- um á Baltimore-Washington- flugvöll sem þýðir að farþegar geta tekið hraðlest beint inn í miðborg Washington. Þessi flugvöllur þjón- ar líka Baltimore-svæðinu og ekki úr vegi að kíkja þangað til að skoða t.d. söguslóðir sjónvarpsþátt- anna The Wire.“ Svanhvít segir Baltimore- Washington-flugvöll líka mjög góð- an upp á flugtengingar að gera en þaðan fljúga bandarísk lággjalda- flugfélög vítt og breitt um álfuna. „Southwest hefur þar bækistöð og býður upp á hagstætt verð á flug- sætum um allt landið. Lendingar- tími okkar vestanhafs er þannig að auðvelt er að ná tengingum.“ Fæðingarstaður sjálfstæðisins Boston er líka agalega skemmti- leg borg. „Kalla má borgina fæð- ingarstað Bandaríkjanna en þessi rótgróna borg er líka að margra mati „evrópskasta“ bandaríska borgin. Boston er þekkt fyrir fal- lega garða, risastórt sædýrasafn, og gestir borgarinnar geta farið eftir merktri gönguleið, The Free- dom Trail, sem leiðir fólk á milli sögulegra staða þar sem sjálfstæð- isbaráttan fór fram. Rétt hinum megin við Charles River er svo bærinn Cambridge með Harvard- háskóla þar sem ganga má um á milli sumra helstu snillinga og hugsuða samtímans,“ útskýrir Svanhvít. „Einnig er að finna í borginni iðandi mennngarlíf, söfn og tónlistarstarf, og kennileiti á borð við barinn Cheers, sem allir þekkja úr Staupasteinsþáttunum.“ Ferðalangar höfðu margir von- ast til að WOW myndi fljúga á New York og virtist slíkt flug vera í kortunum. Úr varð þó að byrja á Washington DC og Boston en Svanhvít segir ekki loku fyrir það skotið að flogið verði á New York- borg seinna meir. „Á næsta ári munum við kynna fleiri áfangastaði vestanhafs en hvaða borgir það verða liggur ekki endanlega fyrir að svo stöddu.“ Guinness og viskí WOW verður eina flugfélagið með reglulegt flug frá Íslandi til Dublin. Svanhvít reiknar með að borgin muni hitta í mark hjá Ís- lendingum enda eigum við góða samleið með frændum okkar Írum. „Dublin er skemmtileg borg þar sem verðlag er mjög hagstætt, verslunarmöguleikar góðir og líf- legir pöbbar þar sem Guinness er teygaður og dansað við írska tón- list. Ef haldið er af stað út úr bæn- um tekur við fallegt írskt sveita- landslagið, golfvellir og viskíframleiðendur.“ Róm er annar áfangastaður WOW á Ítalíu en áður hefur flug- félagið flogið til Mílanó í norður- hluta landsins. Flogið verður viku- lega, á föstudögum, til Rómaborgar þar sem mörg árþús- und af merkilegri sögu setja svip sinn á daglegt líf. „Auðvelt er að fara fótgangandi um miðborg Rómar þar sem alla helstu sögu- legu staðina er að finna, og maður tímir því varla að taka neðanjarð- arlestina því þegar gengið er um göturnar veit maður ekki fyrri til en komið er fyrir horn og staðið andspænis íðilfögrum menning- arverðmætum eins og Trevi- gosbrunninum, Spænsku tröpp- unum eða Pantheon-hofinu,“ segir Svanhvít. „Þegar Róm er heimsótt verður vitaskuld að taka hús á páfanum í Vatíkaninu, skoða þar Péturskirkj- una og óviðjafnanlegt listaverka- safn Páfagarðs. Hægt er að finna hótel í öllum verðflokkum og þarf ekki að vera dýrt að fara út að borða ef sneitt er hjá túristagildr- unum.“ ai@mbl.is Boston og Washington DC oft í viku  WOW air byrjar loks að fljúga vestur um haf og tek- ur Bandaríkin með trompi  Í Evrópu bætist við flug til borga á borð við Dublin á Írlandi og Róm á Ítalíu Ljósmynd / Wikipedia - Urban (CC) Söguslóðir Boston er gömul borg og vettvangur margra sögulegra við- burða. Old State House er ein af elstu byggingum borgarinnar. Ljósmynd / The White House Valdamiðstöð Washington DC iðar af pólitíkusum. Þar eru framúrskarandi söfn, sögufrægar byggingar og minnisvarðar um þjóðarhetjur. 64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Kauptúni 3 / Garðabæ / Sími: 564-3364 Ævintýraleg gæludýrabúð kíktu í heimsókn – með morgunkaffinu SUMARIÐ 2015

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.