Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 67
67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 www.ferdin.is Alla daga - Allt árið Páskatilboð til Thailands 20. mars til 8. apríl 2015 Íslensk fararstjórn Verð 495.000 Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is „Meðal þess sem er framundan er ákveðin áherslubreyting á eldri áfangastað hjá okkur, sem er Costa Del Sol,“ útskýrir Þyri. „Þar erum við í raun að bjóða upp á fjóra áfangastaði í staðinn fyrir einn og um leið að dreifa fólki aðeins um svæðið. Við höfum verið með Costa Del Sol frá upphafi enda um að ræða einn af okkar vinsælustu áfangastöðum, og höfum hingað til einbeitt okkur að Torremolinos. En núna erum við með eina þrjá bæi til viðbótar. Það eru Benalmadena, Fuengirola og Marbella.“ Eins og Þyri bendir á hafa allir þessir sumarleyfisstaðir eitthvað sérstakt við sig og gerir úrvalið Heimsferðum kleift að koma betur til móts við óskir og þarfir hvers og eins. „Benalmadena er þekkt fyrir glæsilega snekkjubátahöfn, Puerto Marina, og ströndin þar hefur ár eftir ár verið valin hreinasta strönd Evrópu. Fuengirola býður upp á svolítið „lókal“ stemningu enda var bærinn áður fyrr lítið sjávarþorp en hefur þróast í líflegan og skemmti- legan strandbæ með mikinn karakt- er. Þar eru góðir tapas-staðir og góð spænsk vín eru aldrei langt undan. Marbella er svo auðvitað heimsfrægur lúxusdvalarstaður, þekktur til dæmis fyrir gamla bæ- inn, sem er heillandi sambland gamalla húsa, þröngra andalúsískra stræta, veitingastaða, verslana og mannlífs sem er einstakt í Evrópu, og hina frægu snekkjubátahöfn Pu- erto Banús, þar sem glæsilegustu snekkjur heimsins liggja við akkeri yfir sumartímann. Loks er það svo gamli góði áfangastaðurinn, sjálfur Torremolinos sem landinn þekkir vel enda hafa Íslendingar sótt þangað, aftur og aftur, síðan sólar- landaferðir hófust hér af krafti á árunum upp úr 1970.“ Marokkó heillar landann Meðal nýrra og áhugaverðra staða sem Heimsferðir bjóða upp á er Agadir í Marokkó, eins og Þyri bendir á. „Við fórum þangað í október og erum með aðra ferð þangað skipulagða í maí næstkom- andi. Haustferðin sló algerlega í gegn og sú sem farin verður í ár verður aðeins lengri, eða 13 nætur. Þetta er svona „einu sinni á æv- inni“-ferð, hreinasta ævintýri sem er ógleymanlegt öllum sem það upplifa.“ Þyri segir aðdráttarafl Marokkó felast einna helst í þeirri staðreynd að þarna er um að ræða land sem er í senn framandi og öruggt. Hún bætir við að Agadir sé einn þekktasti sólar-áfangastað- urinn í Marokkó enda þjón- ustustigið sérstaklega hátt á hót- elunum þar og ekki spilli að fræga fólkið hafi sótt þangað í stórum stíl. „Þarna er allt til alls fyrir sól- ardvalarstað, stór og breið strönd, en það sem gerir þennan áfanga- stað sérstakan eru andstæðurnar. Þarna upplifir maður yndislegt frí með góðu veðri, frábærum mat og víni og virkilega góðum hótelum, en um leið þarf ekki að fara langt til að komast í beina snertingu við marokkóska stemningu, með mörk- uðum sem heimamenn eru svo þekktir fyrir, úlfaldar á ferð og annað í þeim dúr. Þetta er upplifun í það heila sem ekki gleymist og talsvert meiri upplifun en dæmi- gerð ferð á sólarströnd.“ Þyri segir ennfremur að ýmiskonar kynn- isferðir séu í boði og gestir hafa því val um að vera bara í rólegheit- um á sólarströnd eða skella sér í skemmtilega ferð til að búa til enn fleiri minningar. Þar á meðal sé ferð til Marrakesh, sem er að hennar mati nánast ómissandi þeg- ar maður er á annað borð kominn til Marokkó. „Einhver sagði að það að koma til Marokkó og sleppa Marrakesh væri eins og heimsókn til Parísar þar sem Eiffel-turninum er sleppt,“ bætir hún við og kímir. „Enda var það svo að í þjón- ustukönnun sem við fram- kvæmdum meðal viðskiptavina eft- ir haustferðina kom í ljós að fólk hefði alls ekki viljað missa af dags- ferðinni til Marrakesh.“ Hin lokkandi Ljubljana Af öðrum sumarleyfisstöðum nefnir Þyri líka Krít og svo Tyrk- land, þar sem Heimsferðir bjóða upp á ferðir til Bodrum og Marm- aris. „Við erum með margar spenn- andi borgarferðir í vor og verðum þar áfram með vinsælar perlur á borð við Barcelona, Búdapest og Prag. Þá verð ég að nefna að við höfum verið að bjóða upp á ferðir til Ljubljana í Slóveníu og sú borg stendur satt að segja upp úr núna. Það vilja bara allir fara þangað. Yfirleitt er um þrjár eða fjórar næt- ur að ræða og borgin hefur eig- inlega slegið í gegn. Það hefur spurst út að borgin er þægileg að rata um, gamli bæjarhlutinn er gull- fallegur, verðlag hagstætt og gott að versla, og svo er stutt í óviðjafn- anlega náttúrufegurð við Bled-vatn, en fólk sem þangað hefur komið segir einfaldlega að það sé fallegasti staður sem það hefur séð á jarðríki.“ Ljósmynd/Wikipedia Perla Borgin Ljubljana í Slóveníu nýtur sívaxandi vinsælda meðal Íslendinga enda borgin gullfalleg, verðlag hagstætt og stutt að fara til að skoða óviðjafnanlega fegurð við Bled-vatn. Sól, sandur og ævintýraferðir  Costa Del Sol sýnir á sér nýjar hliðar í sumar og töfrar Marokkó eru líka í aðalhlutverki hjá Heimsferðum. Morgunblaðið/RAX Draumaferðir Meðal staða sem Heimsferðir bjóða upp á eru Costa Del Sol, Agadir og Ljubljana, segir Þyrí Kristínardóttir, sölustjóri hjá Heimsferðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.