Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Hágæða flísar frá Ítalíu 60 x 60 cm Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Það er ratbjart akkúrat núna, en svo fer að dimma mjög hratt,“ sagði Friðrik Ingason, stýrimaður á frystitogaranum Þerney RE 101, undir hádegi í gær, en Þerney er eitt skipa HB Granda. Skipið er að veið- um í Barentshafi og var um 30 mílur norður af Noregi, austarlega í norsku lögsögunni. „Í tæplega tvo tíma birtir aðeins þannig að það er rökkur yfir, en mér finnst daginn lengja hratt og tel mig sjá mun frá því að við komum á miðin fyrir viku,“ sagði Friðrik. Á fésbókarsíðu Þerneyjar mátti í gær lesa kveðju frá áhöfninni þar sem sagði að það kæmi birtuskíma í kringum hádegi, en svo væri bara kolsvart myrkrið. „Það er hins vegar mjög bjart yfir áhöfninni eins og alltaf, aflabrögðin eru aðeins að glæðast dag frá degi þannig að við erum bara ánægðir með okkur,“ sagði þar. Um aflabrögðin sagði Friðrik að þetta hefði byrjað rólega, en samt aðeins verið stígandi. Þeir hefðu fengið 1-1½ tonn á tímann og væru komnir með um 170 tonn. Vanir meiri veiði „Menn eru vanir meiri veiði hér og þeir sem hafa verið hér í mörg ár og þekkja vel til segja að fiskurinn sé seinna á ferðinni hérna núna en áður,“ segir Friðrik. Þerney er eina íslenska fiskiskipið í Barentshafinu, en einhverjir fleiri munu vera að hugsa sér til hreyfings. Friðrik sagði að leiðindaveður hefði verið í fyrrinótt, svartabylur og upp í 27 metra á sekúndu. Í gær hafði veður gengið niður og vind- hraðinn var kominn í fimmtán metra á sekúndu. Hann sagði að á þessum slóðum yrði ölduhæð hins vegar ekki sú sama og t.d. á Vestfjarðamiðum. Sömu skip í efstu sætum Á vefnum aflafrettir.is er greint frá því hvaða skip komu með mestan afla að landi á síðasta ári. Á toppnum trónir Brimnes RE með 11.755 tonn, Kleifaberg RE er í öðru sæti með 11.008 tonn og Þerney er í þriðja sætinu með 9.140 tonn. Í sætum þar á eftir koma Örfirisey RE, Vigri RE og Guðmundur í Nesi og hafa tvö síðastnefndu skipin skipst á sætum á milli ára, en annars er röð efstu skipa óbreytt. Athygli vekur að öll þessi skip eru skráð í Reykjavík. Á vefnum er bent á að þó að Brim- nes hafi verið aflahæst frystitogar- anna sé rétt að hafa í huga að Brim- nes var með 6.200 tonn af makríl, sem skekki myndina, en flest frysti- skipin stunduðu makrílveiðar í fyrra. Aflaverðmæti Kleifabergsins var yfir þrír milljarðar á síðasta ári að því er fram kemur á aflafrettir.is. Ratbjart um miðjan dag  Samt bjart yfir áhöfninni á Þerney RE og daginn lengir hratt  Veiðar í Barentshafi fara rólega af stað á nýju ári Ljósmynd/Guðni Jónsson Erfiðar aðstæður Þerney RE er eina íslenska skipið sem er að veiðum í myrkrinu í Barentshafinu þessa dagana. Á myndinni er skipið að veiðum innan um hafís á Halamiðum í desember fyrir rúmu ári. Um 997.000 ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll, Seyðisfjörð og aðra flugvelli landsins árið 2014 en um er að ræða 190 þúsund fleiri ferðamenn en árið 2013. Þetta kem- ur fram í nýjum tölum sem Ferða- málastofa birti í gær. Aukningin milli ára nemur 23,6%. Bretar og Bandaríkjamenn voru flestir eða um þriðjungur allra ferðamanna. Met voru slegin í öll- um mánuðum ársins 2014 á Kefla- víkurflugvelli, þar sem talningar á vegum Ferðamálastofu hafa verið frá árinu 2002. Aukning milli ára fór yfir 25% sjö mánuði ársins en hlutfallslega var hún mest milli ára í janúar, þar var aukning um 40,1%. Bretar flugu mikið til Íslands á síðasta ári og komu 43.400 fleiri Bretar árið 2014 en árið 2013. Farþegar með skemmtiferða- skipum voru rúmlega 105 þúsund og komu í höfn með 90 skipum. Er það fjölgun upp á 13,4% frá 2013 þegar þeir voru 92 þúsund talsins. Nánast öll skemmtiferðaskipin, eða 96%, höfðu viðkomu í Reykja- vík. Þjóðverjar voru langfjölmenn- astir eða 42,5% af þeim ferðamönn- um sem ferðuðust með Norrænu en þar á eftir komu Færeyingar og Danir fá bronsið. Ljóst er að umfjöllun um Ísland erlendis í gegnum kvikmyndir og sjónvarpsþætti, hagstætt gengi krónunnar og aukið framboð á flugsætum hingað til lands skilar auknum fjölda ferðamanna og að ferðamannastraumurinn er enn mikill. benedikt@mbl.is 190 þúsund fleiri ferðamenn í fyrra  Ísland er vinsælt meðal Breta 2013 2014 Fjöldi Breyting milli ára % Keflavíkurflugvöllur Seyðisfjörður Aðrir flugvellir Samtals 781.016 16.637 9.696 807.349 969.181 18.115 10.260 997.556 188.165 1.478 564 190.207 24,1% 8,9% 5,8% 23,6% Heimild: Ferðamálastofa Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, segir að það að raforkan sé að verða uppseld, séu bæði góð og slæm tíðindi. Hún telur nauðsynlegt að fleiri virkj- anakostum verði komið á fram- kvæmdastig. „Að hluta til var þetta jákvæð frétt, vegna þess að hún sýnir að hjól atvinnulífsins eru farin að snú- ast, sem kallar á aukna raforkunotkun. Við sjáum aukna eftirspurn í ráðuneytinu,“ sagði Ragnheiður Elín í samtali við Morgunblaðið í gær. Iðnaðarráðherra segir að það sem menn þurfi að átta sig á, sé að á und- anförnum árum á meðan eftirspurn eftir raforku hafi verið að aukast, hafi lítið bæst við framboð rafork- unnar. „Að Búðarhálsi frátöldum hefur ekki verið mikið um nýjar virkjanir, þannig að þessi frétt kem- ur ekki á óvart, en við verðum að taka þessa þróun alvarlega og bregð- ast við með skilvirkum hætti,“ sagði Ragnheiður Elín. Ráðherra sagði að skýrt hefði komið fram á haustfundi Landsvirkj- unar að nauðsynlegt væri að koma rammaáætluninni aftur í gang, en hún hefði verið alveg stopp síðustu ár. „Ef við horfum á núgildandi rammaáætlun, þá eru nokkrir álit- legir virkjanakostir í nýtingarflokki nú þegar og þar af aðeins tveir í vatnsafli, Hvalárvirkjun og Blöndu- veita. Hinir kostirnir eru í jarð- varma, að stórum hluta til á Reykja- nesi. Ef aðeins þessir kostir væru virkjaðir, þá væru virkjanakostir sem gæfu um átta teravattstundir á borðinu, samanborið við þær 18 TWst sem við framleiðum í dag, en af öllum þessum kostum eru það bara Þeistareykir sem eru komnir á fram- kvæmdastig,“ sagði iðnaðarráðherra. Ragnheiður Elín segir að þings- ályktunartillaga frá umhverfis- ráðherra frá í haust sé til meðferðar í þinginu. „Ráðherrann fór að tillögu verkefnisstjórnarinnar um að bæta við efstu virkjuninni í neðri hluta Þjórsár og því er það spurning hvort fleiri virkjanakostum verði bætt í þann hóp, sem ég myndi telja mjög skynsamlegt. Að minnsta kosti Þjórsárvirkjanir,“ sagði ráðherra. Hún bendir á að þeir virkjana- kostir séu skynsamlegir, bæði út frá hagkvæmni og út frá náttúruvernd- arsjónarmiðum. „Ef það verður nið- urstaða þingsins þá erum við komin með fleiri virkjanakosti, sem er nauð- synlegt, þannig að við getum farið að gera áætlanir fram í tímann og koma kostunum á framkvæmdastig.“ Morgunblaðið/RAX Búðarhálsvirkjun Landsvirkjun kynnti virkjunina árið 2010. Ráðherra vill fjölga virkjana- kostunum  Hjólin farin að snúast og eftirspurn eftir raforku farin að aukast á ný Ragnheiður Elín Árnadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.