Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 62

Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 62
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í sumar mun Úrval-Útsýn hér um bil leggja Spán undir sig. Mallorca er nýr áfangastaður en einnig verða hinir sívinsælu staðir Ten- erife, Almeria, Albír og Costa Brava áfram í boði Jónína Birna Björnsdóttir segir Mallorca komið aftur í ferða- framboðið vegna mikillar eft- irspurnar en ferðir þangað höfðu legið niðri hjá ÚÚ frá árinu 2012. Börnin una sér vel á Mallorca Jónína er markaðsstjóri Úrvals- Útsýnar og segir hún Mallorca upplagðan áfangastað fyrir barna- fjölskyldur. „Á þessari fallegu og sólbökuðu eyju er margt að gera og sjá. Á flestum hótelunum eru starfræktir barnaklúbbar þar sem foreldrarnir geta skilið börnin eftir áhyggjulausir. Dýragarðar og vatnsrennibrautagarðar bjóða upp á afþreyingu fyrir unga sem aldna og í borginni Palma má upplifa al- vöruborgarstemningu og þræða verslanir vinsælustu fatakeðjanna. Svo eru flugtímarnir mjög hent- ugir: á þeim tíma dags að ekki þarf að vekja börnin um miðja nótt til að komast á flugvöllinn í tíma.“ Að sögn Jónínu snúast ferðir til Mallorca ekki síst um að slaka rækilega á og njóta lífsins lysti- semda, verma kroppinn í sólinni og eiga dæmigerða sæludvöl á hvítri strönd. Þeir sem vilja ögn menningar- legri áherslur ættu að skoða Alm- eria á suðausturhluta Spánar. „Bærinn hefur á sér annað yfir- bragð en dæmigerðu sumarleyf- isstaðirnir. Almeria er bærinn þar sem Spánverjarnir sjálfir taka sín sumarfrí. Fallegur kastali gnæfir yfir byggðinni og staðurinn er þekktur fyrir hagstætt verðlag.“ Stórborg og strandslökun Costa Brava er síðan kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja blanda saman borgarferð og sól- strandasælu. „Costa Brava er stutt frá Barcelona og við erum með gististaði okkar á þremur stöðum; Lloret de Mar, Tossa de Mar og Santa Susanna. Þarna geta t.d. pör átt mjög notalega vist og skellt sér til Barcelona til að skoða söfnin, kirkjurnar og verslunargöturnar.“ Tenerife er hornsteinninn í áfangastöðum ÚÚ en þangað er farið allan ársins hring. „Í sumar verðum við eins og fyrr með viku- legt flug til Tenerife, eyjunnar sem allir elska. Tenerife býður upp á mikið úrval hótela og hver strönd hefur sínar áherslur. Þetta er eyja sem höfðar jafnt til ungs fólks í leit að miklu fjöri og til þeirra sem eldri eru og vilja hafa það náðugt í sólinni.“ Á öllum áfangastöðunum eru svo Íslenskir fararstjórar gestum til halds og trausts. „Þeir þekkja svæðið þar sem gist er og ná- grenni eins og lófann á sér og leysa úr hvers kyns vandamálum sem upp geta komið. Þetta skapar mikið öryggi fyrir farþega okkar.“ Jónína á von á góðri aðsókn í sólarstrandaferðirnar í ár. „Sólin er það sem Íslendingar vilja fyrst og fremst í sumarfríinu, sérstak- lega núna eftir slæm rigningar- sumur.“ Bestu bitar Ítalíu í einni atrennu Til viðbótar við reglulegar ferðir til sólarstranda skipuleggur Úrval- Útsýn sérferðir á spennandi áfangastaði. Er þá jafnvel aðeins ein ferð á hvern stað á árinu, dag- skráin skipulögð í þaula og oft ferðast yfir nokkuð stórt svæði. Í sumar má m.a. velja á milli sér- ferða til Ítalíu, Slóveníu og á slóðir Vestur-Íslendinga í Bandaríkj- unum og Kanada. „Þrjár sérferðir til Ítalíu eru í boði: Ítalía heillar, Ítalía – Garda- vatnið og ítalska rívíeran. Ferð- irnar eru um vikulangar og komið víða við. Sjá ferðalangarnir allt það besta sem landið hefur upp á að bjóða, kynnast sögunni, upplifa glæsibrag fallegra borga og njóta matar- og vínmenningar svæð- isins,“ útskýrir Jónína. Taka má ferðina um ítölsku riv- íeruna sem dæmi en þar er flogið á hátískuborgina Mílanó, svo hald- ið áfram til Genúa, San Remo, svo Mónakó, Portofino og Flórens áð- ur en stefnan er tekin á Pisa og Parma. „Er ferð af þessu tagi til- valin fyrir þá sem vilja upplifa töfra Ítalíu á áhyggjulausan og þægilegan hátt, í góðum félags- skap.“ Íslenski hluti Bandaríkjanna Egill Helgason sjónvarpsmaður leiðir hóp sem fer vestur um haf á slóðir Íslendinga. „Þar heimsækj- um við marga þá sömu staði og Egill fjallaði um í vinsælum sjón- varpsþáttum sínum um Vestur- Íslendinga. Viðbrögðin sýna, svo ekki verður um villst, að margir hafa mikinn áhuga á þessari merkilegu sögu og um leið upplifa þessi sjarmerandi héruð og borgir Norður-Ameríku.“ Flogið er til Minneapolis, haldið þaðan til Grand Forks og svo til Winnipeg þar sem íslensku hverfin eru heimsótt. Vitaskuld koma ferðalangarnir við í Nýja Íslandi, skoða Íslenska menningarsafnið og byggðasafnið í Árborg. Flogið er áfram til Vancouver og endað með Dragonboat-hátíðinni á Viktor- íueyju. Morgunblaðið/Þórður Þægindi Jónína Birna Björnsdottir segir Mallorca mjög barnavænan áfangastað. „Svo eru flugtímarnir mjög hent- ugir: á þeim tíma dags að ekki þarf að vekja börnin um miðja nótt til að komast á flugvöllinn í tíma.“ Skapti Hallgrímsson Stórvirki Sumir áfangastaðirnir blanda saman strandlífi og borgarsjarma. Ekki er amalegt að skjótast t.d. til Barcelona og skoða Sagrada Familia.  Íslendingar vilja glampandi sól og hita í sumarfríinu, hvað þá eftir tvö köld og blaut sumur heima  Fjölbreyttir áfangastaðir bíða eftir sólþyrstum t.d. á Spáni og Ítalíu. Hvítar strendur og sólbakaðar borgir við Miðjarðarhafið 62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 www.danco.is Heildsöludreifing Eingöngu selt til fyrirtækja Ljúffengt... Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna, mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar. Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira. ...hagkvæmt og fljótlegt Veilsuþjónustur Veitingahús - Mötuneyti Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum SUMARIÐ 2015

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.