Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 28

Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922 Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is Gripahúsagluggar á góðu verði svo langur tími er mjög íþyngjandi fyrir starfsfólk og starfsemi. Þegar stofnanirnar voru sameinaðar í eina var loks farið að huga að sameig- inlegu framtíðarhúsnæði. Forstjóri einnar eldri stofnunarinnar, Her- mann Guðjónsson, var fenginn til að stýra sameiningunni og sinnti því erf- iða verki vel. Þegar hann ákvað að stíga til hliðar ári síðar sótti ég um en hefði að líkindum ekki gert það ári fyrr þegar verkefnið var enn of laust í reipunum. Ýmislegt ávannst fyrsta árið, þannig að á fyrsta heila rekstr- arárinu náðist til dæmis að sýna fram á töluverða hagræðingu. Mesta hætt- an við jafn mikið umrót og verður í breytingum sem þessum er sú að missa sérhæft starfsfólk til annarra verkefna, en blessunarlega gerðist það ekki og öll þjónusta við viðskipta- vini hélst óskert allan tímann. Fyrir það erum við einkar þakklát. Í sept- ember síðastliðnum fluttum við hing- að í Ármúla 2. Mitt verkefni er að leiða fólkið hér innandyra til sam- stöðu og sameiginlegrar sýnar um heildstæðar, öruggar samgöngur, hvort sem þær eru í lofti, á láði eða legi.“ Árangur í slysavörnum „Mat mitt er að það hafi verið rétt ákvörðun að sameina stjórnsýsluna í eina sterka stofnun því einar og sér hefðu eldri stofnanirnar ekki haft sömu möguleika á þróun og fram- förum og varla lifað af hagræðing- arkröfu fjárveitingavaldsins. Ákvarð- anir um svipaðar sameiningar hafa verið teknar í nokkrum löndum í kringum okkur sem við horfum mikið til, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku og við hjá Samgöngustofu leggjum okkur líka fram um að læra af reynslu þeirra þjóða. Við væntum áframhaldandi árangurs af sam- hentri vinnu í einni stofnun fyrir allar gerðir samgangna í lofti, á sjó og landi en eins og komið hefur fram var fjöldi banaslysa á Íslandi sögulega lágur á síðasta ári. Ekkert banaslys varð í flugi eða á sjó og í umferðinni létust fjórir sem þó er auðvitað fjór- um mannslífum of mikið. Margir eiga þátt í þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur og eiga heiður skilinn. Aukin vitund og fræðsla til þeirra sem eru á ferðinni, vegfarenda, sjófarenda og flugfólks hefur mikið forvarnargildi, farartækin eru orðin öruggari, mann- virkin betri, eftirlitið skilvirkara og slysarannsóknir skila sínu svo eitt- hvað sé nefnt.“ Alvarleg slys allt of mörg En það er mikilvægt að skoða töl- fræðina frá fleiri hliðum. Nú þegar flugmálin, siglingarmálin og umferð á vegum eru undir sama þaki hér í Samgöngustofu er auðveldara að skoða hana og þróunina á undan- förnum árum og áratugum. Því þó að banaslysum hafi sem betur fer fækk- að gífurlega þá eru alvarlegu slysin enn allt of mörg og afleiðingar þeirra geta haft mjög mikil og langvarandi áhrif á fólk sem fyrir þeim verður og fjölskyldur þeirra. „Mörg undanfarin ár hafa stjórn- völd varið fé til öryggisáætlana, ég nefni sérstaklega áætlun um öryggi í umferðinni. Árangurinn af starfinu sem unnið hefur verið með þeim stuðningi hefur ekki látið á sér standa, en að þessu sinni var engum fjármunum varið til umferðarörygg- isáætlunar í fjárlögum. Þetta kom okkur á óvart því góður árangur í samgönguöryggi á einu ári er ekki sjálfgefinn á því næsta. Árangri verð- ur stöðugt að viðhalda og helst af öllu að setja markið sífellt hærra. Í ljósi fjárhagslegs niðurskurðar til mála- flokksins þurfum við nú að finna nýj- ar leiðir til að halda áfram því góða starfi sem er undirstaða framfaranna og vonandi tekst okkur það með sam- vinnu við aðra, jafnt opinbera aðila, fyrirtæki, almenning og félaga- samtök.“ Þórólfur segir meðal annars að vit- undavakningin sé fólgin í því að hvetja alla þá sem eru þátttakendur í umferðinni til að vera virkir. „Það er til dæmis ekki svo langt síðan farið var að tala um að ábyrgðin lægi ekki Ný ferð á hverjum degi  Öryggi í samgöngum kemur ekki af sjálfu sér, segir forstjóri Samgöngustofu Þórólfur Árnason  Sameiginleg sýn um heildstæðar, öruggar samgöngur, hvort sem þær eru í lofti, á láði eða legi Morgunblaðið/Golli Forstjórinn Þórólfur Árnason stýrir nú Samgöngustofu. Umferðarslys á Íslandi í tíu ár *Flugslys: 8, alvarleg flugatvik: 16, alvarleg flugumferðaratvik: 5 Ár Látnir Alvarlega slasaðir Samtals 2005 19 129 148 2006 31 153 184 2007 15 195 210 2008 12 200 212 2009 17 170 187 2010 8 205 213 2011 12 154 166 2012 9 136 145 2013 15 177 192 2014 4 170 174 Samtals 142 1519 1831 Banaslys í umferðinni Ár Látnir 1995 24 1996 10 1997 15 1998 27 1999 21 2000 32 2001 24 2002 29 2003 23 2004 23 2005 19 2006 31 2007 15 2008 12 2009 17 2010 8 2011 12 2012 9 2013 15 2014 4 Banaslys á sjó Ár Látnir 1995 3 1996 10 1997 6 1998 2 1999 2 2000 2 2001 6 2002 2 2003 1 2004 3 2005 3 2006 4 2007 5 2008 0 2009 1 2010 1 2011 0 2012 4 2013 2 2014 0 Banaslys loftfara Ár Látnir 1995 5 1996 0 1997 0 1998 3 1999 0 2000 4 2001 0 2002 0 2003 0 2004 0 2005 0 2006 0 2007 0 2008 0 2009 1 2010 0 2011 0 2012 2 2013 2 2014 0* VIÐTAL Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Þórólfur Árnason hóf störf sem nýr forstjóri Samgöngustofu í ágúst á síðasta ári. Samgöngustofa annast stjórnsýslu og eftirlit með öryggi í flugi, siglingum, umferð, samgöngu- mannvirkjum og leiðsögu. Öll verk- efni sem áður heyrðu undir Flug- málastjórn Íslands og Umferðarstofu hafa færst til Samgöngustofu, sem og stjórnsýslu- og eftirlitsverkefni Sigl- ingastofnunar Íslands auk leyfisveit- inga og umferðareftirlits sem áður voru á hendi Vegagerðarinnar. Fyrstu mánuðir Þórólfs í starfi hafa verið annasamir við að kynnast starf- seminni, innviðum og nýju samstarfs- fólki auk þess að hitta fjölmarga við- skiptavini og heyra þeirra sjónarmið. Hann vill að Samgöngustofa sé þjón- ustumiðstöð fyrir atvinnulífið og al- menning og að fólk geti leyst sem flest af sínum málum sjálft í gegnum netið. „Almenningur og atvinnulífið vill eðlilega hafa gegnsæi í stjórnsýsl- unni og líka jafnræði. Að einn fái leyfi sem hinn fær ekki án málefnalegra ástæðna er ekki í boði. Ég hef gert mér ferðir út úr stofnuninni til að hitta viðskiptavini og heyra í þeim. Allir þeir fundir hafa undantekning- arlaust verið góðir. Tilfinning mín er að verkefni hjá Samgöngustofu í þágu öryggis og þjónustu séu unnin af fagmennsku og metnaði en vissu- lega má alltaf bæta sig.“ Hefði ekki sótt um ári fyrr Þórólfur hefur komið víða við á sín- um ferli en nú vill svo skemmtilega til að skrifstofa hans hjá Samgöngu- stofu er í sama húsi og þegar hann var forstjóri Skýrr. Við ráðninguna vó reynsla Þórólfs úr atvinnulífinu þungt en hann segist ekki viss um að hafa sóst eftir starfinu hefði það verið auglýst ári fyrr. „Sameiningin gekk formlega í garð 1. júlí 2013, eftir a.m.k. fjögurra ára aðdraganda en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.