Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 25
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Sandvík heitir elsta húsið á Þórs-
höfn og var byggt árið 1902. Það
hefur staðið autt og niðurnítt í
fjöruborðinu í tæp þrjátíu ár.
Húsið sér nú fram á uppreisn
æru sinnar því endurbygging
þess er hafin.
Guðjón Gamalíelsson er eigandi
Sandvíkur og var það æskuheim-
ili hans til fullorðinsára. Húsið
var orðið lélegt og festi hann því
kaup á öðru húsi fyrir þrjátíu ár-
um en hefur nú hafið endurbygg-
ingu á æskuheimilinu í fjöruborð-
inu. Þar með hafa ræst vonir
Halldóru Benediktsdóttur, móður
Guðjóns sem alltaf átti þá ósk
heitasta að húsið yrði endurbyggt
og er það nú gert í minningu
hennar, að sögn Guðjóns sonar
hennar.
Sandvík er á skrá Minjastofn-
unar eins og öll önnur hús sem
orðin meira en aldargömul og all-
ar framkvæmdir við húsið eru
gerðar í samráði við þá stofnun.
Þorpsbúar hafa sýnt verkinu
mikinn áhuga og þykir vel við
hæfi að nú sé komið að því að
viðhalda gömlum byggingum í
stað þess að rífa þær eins og
raunin hefur verið í þorpinu.
Vildi endurreisa horfin hús
Þessi endurbygging hússins
fellur einnig vel að hugmynd sem
kom fram hjá fyrrverandi sveit-
arstjórn Langanesbyggðar í upp-
hafi síðasta árs. Hún var sú að á
byggja upp gömul og löngu horf-
in hús á sjávarkambinum með
upprunalegu útliti og þau myndu
t.d. nýtast í ferðaþjónustu, svo
sem í gistingu, matsölu eða annað
ferðaþjónustutengt.
Það hefur sýnt sig víða um
land að gamlar byggingar með
slíkri starfsemi laða að sér ferða-
fólk, ekki síst ef þau standa við
fjöruna. Húsið Sandvík er þó ekki
hugsað til slíkrar starfsemi held-
ur sem íbúðarhús núverandi eig-
anda.
Sveitarstjórnin lét á sínum tíma
gera útlitsteikingar og mögulega
staðsetningu af nokkrum gömlum
húsum frá aldamótunum 1900
sem flest stóðu á eyrinni. Þar má
nefna verslunarhús Örum & Wulf
(1897), Verslunarhús Þorsteins
Arnljótssonar (1910) og Ingimars-
hús (1886) ásamt fleiri bygg-
ingum.
Hugmyndin vakti athygli þegar
hún var kynnt og sýndi áhuga
íbúanna á því að viðhalda sögu
þorpsins með endurreisn þessara
gömlu minja. Ekkert verður þó
gert án fjármagns en orð eru til
alls fyrst.
Í gegnum tíðina hefur ekki ver-
ið mikið hugað að varðveislu
gamalla bygginga á Þórshöfn og
húsin hafa týnt tölunni eitt af
öðru. Sandvík er eitt af fáum
húsum sem enn standa.
Húsið á sér einnig sögu því við
upphaf þriðja starfsárs barna-
skólans á Þórshöfn var hann í því
húsi, eins og fram kemur í Lang-
nesingasögu.
Elsta hús þorps-
ins gert upp
Vilja reisa aftur gamla byggð
Byggir upp Guðjón Gamalíelsson framan við æskuheimilið Sandvík.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
Sölustaðir:
Debenhams – Smáralind
Jói Útherji - Reykjavík
Rakarastofan – Faxafeni
Joe’s – Akureyri
Siglósport – Siglufirði
Hafnarbúðin – Ísafirði
Bjarg – Akranesi
Blómsturvellir – Hellissandi
Þú skorar í
CR7!
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
„Það var svo brjálað veður, eina leið-
in var að fara með varðskipinu.
Þetta var alveg svakalegt, við sigld-
um upp í storminn,“ segir ljósmynd-
arinn Ragnar Axelsson, RAX. Hann
er einn af ljósmyndurum Morgun-
blaðsins og var meðal þeirra fjöl-
miðlamanna sem fóru með varðskip-
inu Tý til Súðavíkur mánudaginn 16.
janúar 1995 eftir að snjóflóð féllu á
bæinn. Ragnar dvaldi í Súðavík í
viku. Þjóðin fylgdist með fréttum
full skelfingar en fjölmiðlar fengu þó
fyrst um sinn fá tækifæri til að festa
hörmungarnar á filmu. Ragnar segir
að skelfilegt hafi verið að koma á
staðinn. „Andrúmsloftið var dapurt
og sorglegt og þjóðin var auðvitað öll
í áfalli. Þetta er eitthvað sem situr í
manni alla ævi, það skilur eftir kökk
í hjartanu,“ segir Ragnar.
Fjölmiðlafólki var vel tekið af
fólkinu og segir Ragnar að hópurinn
hafi gætt þess að sýna nærgætni.
„Þú tekur kannski mynd af ein-
hverju en það er ekki þar með sagt
að hún birtist,“ segir Ragnar.
Þegar hópurinn kom til Súðavíkur
eftir langa siglingu með Tý var fjöl-
miðlafólkið lokað af, eiginlega sett í
stofufangelsi að sögn Ragnars.
Svæðið þar sem flóðið féll og leit
stóð yfir á hafði verið skilgreint sem
hættusvæði og fékk fjölmiðlafólk
ekki að mynda björgunarmenn við
störf sín. „Svona atburður er því
miður hluti af mannkynssögunni.
Hún verður skráð og ljósmyndun er
hluti af þeirri skráningu. Björg-
unarmenn bjarga fólki og hlutverk
fjölmiðla er að skrá söguna.“
Ragnar brá á það ráð að setja
filmu í myndavél eins björg-
unarsveitarmanns og bað hann um
að smella af fjórum myndum. Það er
eina myndin sem til er af björg-
unarmönnunum að moka,“ segir
Ragnar. „Fjölmiðlafólk er alveg jafn
sorgmætt og aðrir sem mæta á
þessa staði. Það hefur stundum ver-
ið lenska að væna okkur um að vera
með annarlegar hvatir, það er bara
ekki þannig. Það er óþolandi að sitja
undir því þegar það gerist.“
larahalla@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Björgunarstörf Ragnar setti filmu í myndavél eins björgunarmanns og eru
myndirnar sam hann tók þær einu sem til eru af leitinni.
„Þetta er eitthvað sem
situr í manni alla ævi“
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson var í Súðavík 1995
HB Gunnvör hefur uppi áform um
að hefja fiskeldi í Súðavík sem mun
skila um 6.800 tonnum af regnboga-
silungi og um 200 tonnum af þorski
á ári. Málið hefur verið í þrjú ár í
umhverfismati. „Þann 6. janúar
rann út kærufrestur og við teljum
okkur sjá fyrir endann á þessu fyrir
vorið,“ segir Einar Valur Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri HG
Gunnvarar. „Við höfum þvælst á
milli Umhverfisstofnunar og Skipu-
lagsstofnunar. Allir hagsmunaaðilar
geta kært ferlið, hvort sem það eru
þeir sem eiga veiðiréttindi í lax-
veiðiám eða í rækjuveiði. Við viljum
gera þetta í góðri sátt við náttúruna
en teljum að þetta hafi tekið of lang-
an tíma,“ segir Einar sem vonast eft-
ir jákvæðri niðurstöðu fyrir vorið.
Ef úr áformum verður skapar það
tugi starfa í Súðavík.
Verksmiðja rís 2018
Súðavíkurhreppur og Íslenska
kalkþörungafélagið hafa skrifað
undir viljayfirlýsingu um að reist
verði kalkþörungaverksmiðja á
Súðavík og starfsemin hefjist árið
2018. „Tryggja þarf aðstöðusköpun
áður en uppbygging hefst. Hún snýr
að betri hafnaraðstöðu og aðgangi
að raforku,“ segir Einar Sveinn
Jónsson, framkvæmdastjóri Íslenska
kalkþörungafélagsins. „Þröskuld-
urinn snýr að því að flutningskerfið
til Súðavíkur er gamaldags og þar af
leiðandi er flutningsgeta takmörk-
uð. Svo þurfum við land og hafn-
araðstöðu,“ segir Einar Sveinn. Að
sögn hans mun verksmiðjan veita
10-15 störf og verður fram-
leiðslugetan um 100 þúsund tonn á
ári. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskeldi HG Gunnvör hefur beðið í þrjú ár eftir leyfi til fiskeldis.
Tugir starfa gangi áform upp
Fiskeldi og þör-
ungaverksmiðja