Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
B 60 W
Vinnslubreidd 550/650
Afköst 2200/2600 m2
Útskiptanlegur haus
Hægt að nota keflabursta
600-1300 sn/mín
eða diskabursta 180 sn/mín
BR 35/12 C
Vinnslubreidd
350/1400 mm/fm
Hraði á bursta
700-1500 sn/mín
BD 40/12 C
Vinnslubreidd
385/1100 mm/fm
Hraði á bursta
150 sn/mín
BR 40/10 ADV
Vinnslubreidd
400/400 mm/fm
Hraði á keflabursta
1100 sn/mín
Afkastamikil atvinnutæki fyrir
allar gerðir gólfefna
BD 50/40 RS
Vinnslubreidd
508/2200 mm/fm
Hraði á bursta
180 sn/mín
Gólfþvottavélar
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Ég tel nánast útilokað miðað við
hvernig mál hafa þróast að við getum
opnað höfuðstöðvar á Akureyri 1. júlí
2015,“ sagði Eyþór Björnsson fiski-
stofustjóri að-
spurður í gær um
hvað liði undir-
búningi flutnings
höfuðstöðva Fiski-
stofu til Akureyrar
fyrir 1. júlí, eins og
miðað hefur verið
við. Hann sagðist
ekki útiloka ef mál
þróuðust hratt á
næstu vikum að takast mætti að flytja
hluta starfseminnar norður síðar á
árinu.
Eyþór vísar til þess að lagalegri
óvissu hafi ekki verið eytt varðandi
flutning stofnunarinnar og ráðherra
ekki tekið formlega ákvörðun um
flutninginn. Þá er Umboðsmaður Al-
þingis með málið til skoðunar. Af
starfsfólki hefur aðeins fiskistofustjóri
tilkynnt að hann hyggist flytja með
skrifstofum Fiskistofu til Akureyrar.
Hægt hefur á undirbúningi
Eyþór segir að í störfum verkefnis-
stjóra og starfshóps um flutninginn
hafi í haust verið reiknað með að málið
yrði afgreitt með lagasetningu á Al-
þingi fyrir jól. Sömuleiðis hafi á sama
tíma verið unnið að þarfagreiningu og
athugun á húsnæðismálum í samvinnu
við Framkvæmdasýslu ríkisins. Þar
sem málið hafi ekki verið afgreitt og
ráðherra ekki tekið formlega ákvörð-
un hafi hægst á þessari vinnu það sem
af er ári og verkefnisstjórinn sé kom-
inn til sinna fyrri starfa í forsætisráðu-
neytinu.
Eyþór segir að hann hafi greint
starfsfólki Fiskistofu frá því fyrir jól
að í ljósi þess að enn liggur ekki fyrir
formleg ákvörðun um flutning stofn-
unarinnar muni enginn starfsmaður
þurfa að taka ákvörðun um að flytja til
Akureyrar eða að öðrum kosti hætta
hjá Fiskistofu á árinu 2015.
Annir við fiskveiðiáramót
Spurður hvort ekki sé hæpið að
reikna með flutningi veigamikilla
hluta starfseminnar næsta haust, en
áramót í fiskveiðistjórnarkerfinu eru
1. september, segir Eyþór að þær ein-
ingar starfseminnar sem mest koma
að verkefnum tengdum fiskveiðiára-
mótum verði ekki færðar á milli lands-
hluta á sama tíma. Samtals eru 75
stöðugildi á Fiskistofu og þar af 43 á
skrifstofunni í Hafnarfirði.
„Ég hef miðað við að um 20 stöðu-
gildi verði á Akureyri,“ segir Eyþór.
Til að byrja með sá ég fyrir mér að við
byrjuðum með lítinn hóp á Akureyri
og síðan stækkaði hópurinn smám
saman, en þetta yrði ekki gert með
einni holskeflu. Eyþór dregur ekki dul
á að erfitt hafi verið á Fiskistofu und-
anfarið og óvissan hafi sett stofnunina
í mjög erfiða stöðu, hvað varðar alla
skipulagningu og framtíðaráætlanir.
Frestun líkleg á
flutningi Fiskistofu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mótmæli Starfsfólk Fiskistofu er ekki sátt við flutninginn til Akureyrar og
mætti með áskorun í sjávarútvegsráðuneytið í byrjun síðasta mánaðar.
Eyþór Björnsson
Nánast útilokað miðað við hvernig mál hafa þróast að við
getum opnað á Akureyri 1. júlí 2015, segir fiskistofustjóri
Mestur þungi 2015
» Í lok júní í fyrra kynnti Sig-
urður Ingi Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra áform um að
efla starfsemi Fiskistofu á Ak-
ureyri og flytja höfuðstöðvar
þangað. Þá kom fram að stefnt
væri að því að flutningum verði
lokið í lok þessa árs.
» Verkefnisstjórn um verk-
efnið var sett á laggirnar og
gerði m.a. tillögur um flutn-
ingana. Í bréfi ráðherra til
starfsmanna 10. september sl.
segir að stefnt skuli að því að
höfuðstöðvar Fiskistofu verði
fluttar til Akureyrar fyrir 1. júlí
2015 og að flutningum ljúki
eigi síðar en 1. janúar 2017.
» Mestur þungi flutninganna
verði 2015 en nánari útfærsla
verði í höndum fiskistofu-
stjóra.
Í fyrirspurn á þingi fyrir jól spurði
Birgitta Jónsdóttir Sigurð Inga Jó-
hannsson sjávarútvegsráðherra
hvort hann teldi að lagaheimild
þyrfti til að flytja
höfuðstöðvar
Fiskistofu frá
Hafnarfirði norð-
ur til Akureyrar.
Ef svo væri, hvar
slíka heimild væri
að finna í lögum.
Ráðherra hefur
svarað fyrir-
spurninni og seg-
ir að svarið sé já.
Annars vegar
hafi ráðherra talið ótvírætt að afla
hafi þurft heimildar í fjárlögum til
að standa undir kostnaði við fyrir-
hugaðan flutning höfuðstöðva Fiski-
stofu og boðaði í sumar að leitað yrði
slíkra heimilda bæði í fjárlagafrum-
varpi fyrir 2015 og einnig fyrir 2016.
Tillögur þar að lútandi hafi verið
samþykktar sem hluti af fjárlögum.
Hins vegar sé staðan ekki eins ljós
varðandi lagaheimild til að flytja
stofnunina. Eftir að ráðherra hafi til-
kynnt þau áform og boðað ákvörðun
um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu
til Akureyrar hafi komið fram efa-
semdir um að fullnægjandi lagaheim-
ild væri fyrir hendi. Málið er rakið í
svari ráðherra en síðan segir:
Í Hafnarfirði en ekki Reykjavík
„Í þessu sambandi er rétt að hafa í
huga að höfuðstöðvar Fiskistofu eru
í Hafnarfirði en ekki Reykjavík, og
því alls ekki ljóst hvort sérstaka
lagaheimild þurfi til að flytja þær
frá Hafnarfirði til Akureyrar …
Engu að síður ákvað ráðherra, eftir
að umræddar efasemdir höfðu verið
settar fram og til að taka af allan
vafa um þetta atriði, að beita sér fyr-
ir ótvíræðri lagaheimild til að flytja
höfuðstöðvar Fiskistofu frá Hafn-
arfirði til Akureyrar.“
Þá segir að forsætisráðherra hafi
nú lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um breytingu á lögum nr. 115/
2011, um Stjórnarráð Íslands, þar
sem lagt er til að tekið verði upp á
nýjan leik ákvæði frá 1999 um for-
ræði ráðherra yfir staðsetningu
stofnana, en frumvarpið fjalli einnig
um ýmis önnur atriði.
„Verði framangreint frumvarp
forsætisráðherra að lögum mun það
fela í sér ótvíræða heimild fyrir
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra til að taka ákvörðun um að
flytja höfuðstöðvar Fiskistofu til Ak-
ureyrar,“ segir í svari ráðherra.
Ráðherra aflar
lagaheimilda
Ótvíræð heimild í nýju lagafrumvarpi
Sigurður Ingi
Jóhannsson