Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Hæ sæti, hvað ert þú að borða? Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is Verð frá 2.494 kr. – fyrir dýrin þín Bragðgott, holl t og næringarr íkt Guðrún Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Íslandsvinir ferðaskrifstofa er með hjólaferðir í Suður-Evrópu á dag- skrá í sumar eins og verið hefur undanfarin ár við góðan orðstír. „Þess má geta að við erum með nokkuð sérhæfðar ferðir sem hreyfa við huga og hjarta, þetta tengist kannski upphafsstöfum í nafninu mínu,“ segir Halldór Hreinsson glettnislega þegar hann er spurður hvers konar ferðir um sé að ræða í sumar. „Hjólaferðir njóta sívaxandi vin- sælda. Við erum komin með einar fjórar hjólaferðir á dagskrá, hverja annarri skemmtilegri og þær höfða allar til ansi margra. Við eigum eftir að bæta í. Þessa dagana erum við að stilla upp og ljúka við gönguprógrammið okkar, en fyrst og fremst erum við með ferðir til Suður-Evrópu, svo sem Króatíu, Austurríkis, Ítalíu og Slóveníu.“ Tíu ára reynsla í hjólaferðum Hvaða fólk er það sem helst fer í hjólaferðir? „Mest eru það Íslendingar á ald- ursbilinu fjörutíu til sjötíu ára. Við erum einnig með sérferðir fyrir eldri borgara, 70 plús, en þá er lögð áhersla á göngur fremur en hjólatúra.“ Eruð þið í samstarfi við aðila er- lendis? „Já, að sjálfsögðu er það, en mismikið eftir ferðum og oftast eru það þá orðnir persónulegir vin- ir okkar sem eru með okkur við þetta og sem við treystum full- komlega til góðra verka.“ Hvað þarf fólk að hafa með sér í svona ferðalag? „Fyrst og fremst er það góður hjólafatnaður og það er farið vel ofan í það með útbúnaðarlista á fundum með farþegum fyrir hverja ferð. Á hverjum stað eru leigð ný- leg og vönduð hjól og þau valin með tilliti til hæðar og skreflengd- ar viðkomandi, svo að hver og einn fær hjól við hæfi.“ Hvað er langt síðan þið fóruð að bjóða upp á hjólaferðir? „Það eru orðin tíu ár síðan við hófum að bjóða líka upp á hjóla- ferðir, en fyrirtækið er fimmtán ára og áður buðum við eingöngu upp á skíða- og gönguferðir á fjar- lægum slóðum. Hjólaferðirnar hóf- ust með því að við fundum áhuga ferðafólks sem var í viðskiptum við okkur á að bæta við slíkum ferð- um. Við fórum fyrstu hjólaferðina til Ítalíu en höfum síðan fært út kvíarnar. Í sumar bjóðum við upp á viku til ellefu daga ferðir og allar ólíkar: Ein verður að norðurhluta Gardavatnsins á Ítalíu og önnur þar sem siglt verður á milli eyja í Kvarner-flóanum í Króatíu með skútu og hjólað svo um þær yfir daginn. Í Austurríki verður hjólað meðfram Dóná og svo verður ferð sem við köllum Perlur Slóveníu.“ Eru þetta erfið ferðalög? „Við leggjum meira upp úr því að fólk komi með okkur til þess að „njóta en ekki þjóta“ og okkar ferðir eru hugsaðar fyrir „venju- legt“ fólk til þess að upplifa eitt- hvað nýtt og spennandi. Það munu vissulega falla einhverjir svita- dropar en dagskrá hverrar ferðar er samt aldrei allt of krefjandi og reynt að tryggja að hver þátttak- andi geti hjólað á sínum hraða og eftir sinni getu. Það er haldið mjög vel utan um hópana, sem er afar mikilvægt.“ Gott að undirbúa sig og hjóla Fer fólkið að skoða athyglis- verða staði í leiðinni? „Já, alla daga er eitthvað mark- vert að sjá og við hverja þeirra sem er get ég nefnt landslagið og útsýnið þó svo að það segi ekki Hjólað um fjarlægar slóðir Morgunblaðið/Árni Sæberg Hugur og hjarta Halldór Hreinsson, hjá ferðaskrifstofu Íslandsvina. Fjölbreytni „Hjólaferðir njóta sívaxandi vinsælda. Við erum komin með einar fjórar hjólaferðir á dagskrá, hverja annarri skemmtilegri og þær höfða allar til ansi margra,“ segir Halldór um dagskrá Íslandsvina í sumar.  Halldór Hreinsson hjá Íslandsvinum er með hugann fullan af hugmyndum sem falla í kramið hjá ferðalöngum nær og fjær Ævintýri „Ein verður að norðurhluta Gardavatnsins á Ítalíu og önnur þar sem siglt verður á milli eyja í Kvarner-flóanum í Króatíu með skútu.“ SUMARIÐ 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.