Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 76
76 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Staða yfirhjúkrunarfræðings við heilsugæsluna á Akureyri er laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100%
og veitist starfið frá 1. febrúar 2015 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er til 5 ára í senn.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
• Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er æskileg
• Reynsla af heilsugæsluhjúkrun er æskileg
• Reynsla af stjórnun er æskileg
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðinni
• Stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður
• Skipuleggja og stjórna hjúkrunarþjónustu heilsugæslustöðvarinnar og taka þátt í klínísku starfi
• Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
Umsókn fylgi starfsferliskrá og vottfestar upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækendur eru auk þess
beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Guðný Friðriksdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar netfang: gudnyf@hsn.is. Gsm 860 7750
Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2015 og skal umsóknum skilað á sama netfang.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands auglýsir lausa stöðu
yfirhjúkrunarfræðings við Heilsugæsluna á Akureyri
Skipstjóra vantar
á farþegaferjuna Gísla í Papey
sem siglir frá Djúpavogi, frá 1. júní til 31.
ágúst. Viðkomandi þarf að hafa 30 tonna
réttindi auk vélavarðar.
Upplýsingar í síma 478-8119.
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Félagsfundur Búmanna
Félagsfundur Búmanna hsf. verður haldinn
á Grand Hóteli Reykjavík, Sigtúni 38, fimmtu-
daginn 29. janúar kl. 15.00. Fundurinn verður
í sal hótelsins er nefnist Hvammur.
Kynntar verða tillögur að fjárhagslegri endur-
skipulagningu félagsins.
Breytingar á samþykktum félagsins.
Stjórnin.
Aðalfundur ISNIC 2015
Aðalfundur Internets á Íslandi hf. (ISNIC)
verður haldinn föstudaginn 30. janúar 2015
kl. 16.00 í ISNIC-salnum, Katrínartúni 2, 18.
hæð, 105 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar skv. 14. gr. samþykkta
félagsins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
2014.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2014
lagður fram til samþykktar.
3.Tillaga um ráðstöfun hagnaðar og framlög
í varasjóð.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðanda.
6. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna.
7. Önnur mál löglega upp borin.
F.h. stjórnar Internets á Íslandi hf.
Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, gönguhópur kl. 10.15
og vatnsleikfimi í Vesturbæjarlauginni kl. 10.50. Myndmennt
kl. 15. Bókmenntaklúbbur kl. 13.15 og jóga kl. 18.
Árskógar 4 Smíðastofa útskurður með leiðbeinanda kl. 9-
16. Handavinnustofa kl. 9-16 með leiðbeinanda kl. 12.30.
Botsía kl. 9.30-10.30. Helgistund kl. 10.30-11. Myndlist með
Elsu kl. 13.30-16.30. Létt ganga um nágrennið kl. 13.30-14.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9.30. Bridge kl. 13. Kanasta kl. 13.
Harmonikkuspil og söngur kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 Handavinna, bókband og lesið og
spjallað með Hjördísi B. kl. 13. Spiladagur, handavinna og
glerlist. Laust pláss í glerlist, myndlist, útskurði og bókband.
Upplýsingar í síma 535-2760.
Bústaðakirkja Félagsstarf kl. 13. Kaffið á sínum stað.
Dalbraut 18-20 Bókabíllinn kl. 11.15, samverustund með sr.
Kristínu kl. 14.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, botsía kl.14.
Furugerði 1 Handavinnan er opin og leiðbeinandi er Laufey
Jónsdóttir. Leikfimi með Halldóru Björnsdóttir og léttar
æfingar með virkniþjálfa. Botsía í innri sal á miðvikudögum
klukkan 10 og fimmtudögum klukkan 14.
Garðabær Qi gong í Sjálandi kl. 9, vatnsleikfimi í Sjálandi
kl. 12, handavinnuhorn í Jónshúsi, karlaleikfimi í Ásgarði,
botsía í Ásgarði kl. 14. Vöfflukaffi í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Ýmis stutt námskeið,
fylgist með kl. 9-12. Helgistund kl. 10.30. Starf Félags
heyrnarlausra kl. 11-15. Perlusaumur og bútasaumur kl. 13-
16. Myndlist með leiðbeinanda kl. 13-16.
Gjábakki Handavinnustofan opin, leikfimi kl. 9.15,
silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, bókband kl. 13, bingó kl.
13.30, jafnvægisþjálfun kl. 14, létt hreyfing kl. 15. Dansleikur
verður í Gjábakka laugardagskvöldið 17. jan kl. 20. Haukur
Ingibergsson leikur fyrir dansi.
Gullsmári 13 Handavinna kl. 9, jóga kl. 9.30, handavinna og
brids kl. 13, jóga kl. 17.15.
Hraunbær 105 Handavinna kl. 9. Jóga kl. 10.10. Kaffi kl.
14.30.
Hraunsel Dansleikfimi kl. 9, Qi Gong kl. 10. Dýnuæfingar
Bjarkarhúsi kl. 11.20. Frjáls dagur, fræðsla kl. 14. Pílukast kl.
13.30. Vatnsleikfimi Ásvallalaug kl. 14.40. Skráning á
þorrablótið er hafin í Hraunseli.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin opin kl. 8-16, molasopi
í boði til kl. 10.30 og blöðin liggja frammi, opin vinnustofa án
leiðbeinanda, morgunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10. Hádegis-
verður kl. 11.30, félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi, fóta-
aðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, leikfimi kl. 10,
lífssöguhópur kl. 10.50, Selmuhópur kl. 13, sönghópur 13.30,
línudans kl. 15. Nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Í Kópavogsskóla Ringó kl. 17 og
línudans hópur II kl. 18, hópur IV kl. 19, Zúmba kl. 20. Uppl. í
síma 564-1490 og á www.glod.is
Korpúlfar Jafnvægisleikfimi hjá Nils í Hlöðunni við Gufu-
nesbæ kl. 11 í dag. Keila í Egilshöll kl. 11.Yndislestur hjá
bókmenntahópi Korpúlfa kl. 13.30 í dag í Borgum.
Norðurbrún Kaffi kl. 8.30. Útskurður kl. 9. Leirlistar-
námskeið kl. 9. Leikfimi kl. 9.45. Ganga kl. 10. Bókabíll kl. 10-
10.30. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Leirlistarnámskeið og
opin vinnustofa í Listasmiðju kl. 13.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Billjard
Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga Skólabraut
kl. 11. Bíó í dag kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kl. 14.
Skráningarblöð liggja frammi vegna óvissuferðarinnar 29.
janúar og leikhúsferðar 5. mars. Upplýsingar í s. 893-9800.
Sléttuvegur 11-13 Dagblöð og kaffi kl. 8.30. Hádegisverður
kl. 11.30. Soffíuhópur kl. 14, flutt erindi um Jakobínu
Sigurðardóttur. Kaffi að erindi loknu.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Ipad-námskeið kl. 13.
Bókmenntaklúbbur kl. 14, umsjón Sólveig Sörensen.
Síðdegisdans kl. 16. Matthildur og Jón Freyr stjórna
tónlistinni: Samkvæmisdansar, gömludansar, línudans og
hringdansar. Zumba-námskeið hefst 19. janúar kl.10.30. 6
vikna námskeið fyrir dömur og herra, uppl. og skráning í s.
588-2111 og feb@feb.is
Vesturgata 7 Setustofa/kaffi kl. 9. Vinnustofa opin kl. 9.
Hádegisverður kl. 11.30. Kóræfing kl. 13. kaffi kl. 14.30.
Vitatorg Bókband og postulínsmálun kl. 9, botsía kl. 10.
Upplestur kl. 12.30, frjáls spilamennska og stóladans kl. 13.
Prjónaklúbbur kl. 13. Laus pláss í glerbræðslu og leirlist.
Upplýsingar í síma 411-9450.
Hjólbarðar
Matador heilsárs- og vetrardekk
til sölu
Framleidd af Continental Matador
Rubber í Slóvakíu.
Frábær dekk á góðu verði.
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
Dalvegi 16b, 201 Kópavogur.
S. 544-4333.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Bresk gæðavara,
handskreyttur borðbúnaður
Mikið úrval – margar gerðir
25% afsláttur
Pipar og salt krús
Kr. 1.000 - Takmarkað magn
Emma
Bridgewater
Feels like home
Klassísk hönnun síðan 1985
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Smáauglýsingar
Óska eftir Land Cruiser 150 árg.
11/12 6-7 millj. stg.
Óska eftir Land Cruiser 150 árg.
2011-2012, 6-7 milljónir staðgreitt.
Ekki ekinn meira en 60-65 þús. km.
Upplýsingar í síma 894-2460.
Bílar
Ýmislegt
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Ég kynntist
Helga Jasonarsyni
árið 1981 þegar ég
var ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Vatnsvirkjans hf., en Helgi var
þá í stjórn félagsins og einn af
eigendum þess. Upp frá því hafði
ég mikil samskipti við Helga sem
stóðu yfir í nærri tvo áratugi –
nánast daglega. Okkur varð vel
til vina á þessum tíma þó ekki
værum við alltaf sammála um alla
hluti, en heilt yfir var samstarf
okkar mjög gott. Helgi hafði
mikla þekkingu á þeim vörum
sem fyrirtækið seldi og kom sú
þekking sér mjög vel fyrir ný-
græðing á þessu sviði.
Við fórum í fjöld ferða erlendis
á vegum félagsins á þessum árum
– t.d. á vörusýningar og eins til að
hitta birgja Vatnsvirkjans. Helgi
vildi lítið flíka tungumálakunn-
áttu sinni og lét mig því oft um að
spyrja mikið og nákvæmlega út í
hlutina. Hann var maður fróð-
Helgi Jasonarson
✝ Helgi Jas-onarson fædd-
ist 9. desember
1921. Hann lést 24.
desember 2014. Út-
för Helga fór fram
5. janúar 2015.
leiksfús og vildi vita
nákvæmlega um
gæði vörunnar enda
Vatnsvirkinn leið-
andi fyrirtæki á
sviði sölu á vörum til
pípulagna á þessum
tíma – og kynnti til
að mynda plaströr
til skolplagna.
Ein ferð var þó
öðrum minnisstæð-
ari en það var sýn-
ing í Dresden í A-Þýskalandi og
þá fórum við frá V-Berlín, gegn-
um Checkpoint Charlie yfir í
austrið. Sýningin var síðan sér-
kapítuli – allt frekar gamaldags.
Í fyrstu ferðum mínum með
Helga erlendis þá var ég lítið gef-
inn fyrir bjór, en það þótti Helga
óttalegur héraháttur. Einu sinni
þegar við komum vel þyrstir á
bjórkrá eftir mikið labb og ég
fékk mér kók, þá sagði Helgi –
þarna fór góður þorsti fyrir lítið.
Þessi héraháttur minn lagðist
síðan fljótlega af.
Ég kveð Helga og þakka hon-
um samfylgdina þessi ár í Vatns-
virkjanum.
Ég sendi Hafsteini, Kristínu
og fjölskyldum þeirra samúðar-
kveðjur.
Einar E. Guðmundsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar