Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 80

Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 80
80 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 0 KR. ÚTBORGUN AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is Losnaðu við vesenið með langtímaleigu AVIS Á R N A S Y N IR LANGTÍMALEIGA Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Leggðu þitt af mörkum og vertu óhræddur við að mæta hinum á miðri leið. 20. apríl - 20. maí  Naut Fjárhagslegt mat þitt á undir högg að sækja í dag. Dragðu þig í hlé og andaðu djúpt ef það er eina lausnin til að bjarga geðheils- unni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér finnst einhvern veginn eins og þú sért að missa tökin á hlutunum. Léttúð er lykillinn að árangri ef þú kannt að beita henni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú meðtekur orku þess sem er helst í fréttum. Innsæið hjálpar manni við að leysa vandamálin og krefst ekki allt of mikillar áreynslu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Mistök fortíðarinnar voru víst lexíur. Rifjaðu upp hvers þú óskaðir þér fyrir tíu ár- um. Skoðaðu málin og vittu hvort þú þarft ekki að breyta einhverju. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Styrkur þinn er sköpunarmátturinn. Tryggðu þér sæti í fremstu röð, þar sem menn veita þér og þínum málum nægilega athygli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er góður tími til að taka upp nýjan þráð og bæta fjölskyldusamskiptin. Vertu viss um að viðleitni þín sé ekki byggð á mis- skilningi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sparsemi er dyggð en níska ekki. Finndu þér eitthvert áhugamál því þá er möguleiki á að kynnast nýju fólki og allt verð- ur einfaldara. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Fyrst þú ert að nálgast það sem þú vilt er kominn tími til þess að hugsa lengra. Keyptu eitthvað fallegt fyrir heimilið eða fjölskylduna. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert að hressa upp á heiminn þinn, eitt umhverfi í einu. Kannski kemur fjöl- skyldumeðlimur þér á óvart. Sláðu á létta strengi til að laga andrúmsloftið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur reynst varasamt að tengja sig um of við einstaka hluti. Reyndu að draga þig í hlé í smástund og njóta þess að vera í einrúmi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Í dag er heillandi dagur. Sýndu þolin- mæði og þá mun allt leysast farsællega. Sinntu hjálparbeiðni gamals vinar. Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðiá Leirinn á mánudaginn að hún sæti uppi með mikla afganga að loknum hátíðum – „sem betur fór var ekki vandi að koma þeim í lóg“: Feita ketið fáir meta, feikna rest. Heldur betur gleður gest af græðgi éta dýrin flest. Himins fugla fæðið ruglar, fituríkt. Kroppað, þruglað, kvakað, skríkt, af kjöti ugglaust meira sníkt. Sætar kökur, brauð og bökur, býsnin öll upp á þök og út á völl útdeilt stöku skipti í mjöll. Í lofti þytur, hringahnitur, hrafn á ferð. Að völdum situr vargamergð, veröld bitur þannig gerð. Krílin doka, krummi vokar, krunkar hátt, Flýr að lokum liðið smátt ljótar rokur og vængjaslátt. Skírnir Garðarsson sagðist sjálf- ur hafa verið að gefa krumma af- ganga í gær – „sendi páfanum tölvupóst um þetta en hann hefur ekki svarað“. Vatíkanið virðist ekki vísu svara, vond er tíðin, vesæll krummi, von er að hann Píus hummi. Það er gaman að því að nafn Píusar páfa skuli lifa í tækifæris- vísum nýjum og gömlum og kemur þá hin alkunna vísa Starra í Garði upp í hugann, sem hann orti eftir að Pétur hafði farið til Rómar í til- efni af sextugsafmæli sínu og ekki erindisleysu: Í Vatíkani að Kristi ég gái og kvittun synda þar eftir bíð. – „Sæll og blessaður, Píus páfi, ég er Pétur Jónsson í Reynihlíð!“ Bragarhátturinn á vísum Sigur- línar kallast valhenda og sker sig frá braghendu með því að rímorðin eru stúfur í staðinn fyrir tvílið. Í Bragfræði séra Helga Sigurðarsonar er þetta dæmi úr Esterar rímum: Aman drakk með öðling frægum ágætt vín, hótar Júðum heljar pín, en hugsar gott til ráða sín. Sveinbjörn Beinteinsson yrkir: Jörðin grær og líka lifna ljóð í hug. Vetrartíðin vék á bug. Vonarhaukar þreyta flug. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af vargfugli, páfa og valhendu Í klípu „ÞEGAR SPURT ER UM VERÐ, VILJUM VIÐ ALLTAF VERA AÐ SLÁST VIÐ KEPPINAUTA OKKAR. ÞAR KEMUR ÞITT STARF INN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HEF ÞAÐ AÐ REGLU AÐ LÁNA ALDREI PENING TIL FÓLKS SEM FÆR AÐ LÁNI!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera ekki með lesgleraugun á stefnu- mótinu ykkar. HVERNIG ER MÍN KRÚTTÍ-MÚTTÍ, SÆTA- SKVÍSA LÍSA? SMELL SMELL SMELL SMELL SMELL SMELL SMELL SMELL SMELL SMELL HVAÐ SEGIR LITTLA ÁSTARALDINIÐ MITT? AFSAKAÐU MIG AÐEINS HEIMSKA FJARSTÝRING HELGA! HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA HÉRNA? ÞEIR SEGJA AÐ ÞÚ MUNIR VERÐA HÉRNA Í DÁGÓÐA STUND, ÞANNIG AÐ ÉG VAR AÐ SPÁ Í AÐ SELJA BÁTINN ÞINN! Nú er tíð ljóss og friðar lokið, ogtíð slabbs og hálku hafin. Vík- verji hefur reyndar sloppið merki- lega vel við allt slíkt, en lenti þó í því um daginn að festa bíl sinn á hér um bil versta stað sem hægt var að hugsa sér, við innkeyrslu sem liggur að fjórum mismunandi húsum. x x x Ekki stóð þó á náungakærleik-anum, og fyrr en varði var Vík- verji kominn með aðstoð frá fjórum aðilum, þar á meðal móður sinni og bróður, en einnig tveimur ein- staklingum sem Víkverji veit engin deili á. Bíllinn spólaði og spólaði og dekkin spýttu og spýttu snjó á björgunarsveitina, en loksins hreyfðist hann og Víkverji komst leiðar sinnar, sæll, en kannski ekki svo glaður. x x x Víkverji verður nefnilega að játaað honum þykir það alltaf frekar vandræðalegt þegar ókunnugt fólk hjálpar honum úr aðstæðum sem þessum, því að þegar búið er að ýta bíl upp úr hjólförum getur verið mikilvægt að stöðva ekki bifreiðina að óþörfu, heldur bruna áfram og nýta skriðþungann til þess að kom- ast í gegnum snjóruðningana. Nið- urstaðan varð því sú að um leið og fólkið hafði ýtt Víkverja af stað að var hann horfinn á braut og gat ekki einu sinni vinkað til þess að sýna þakklæti sitt, því aðstæðurnar leyfðu það ekki. x x x Víkverji horfði gáttaður á íþrótta-fréttirnar um daginn, þar sem formaður knattspyrnudeildar FH mætti í viðtal og mótmælti hástöfum ráðstöfunum KSÍ vegna úrslitaleiks- ins í Íslandsmótinu síðasta haust. Hann vildi nefnilega meina að ekki hefði átt að setja leikmann félagsins í fjögurra leikja leikbann fyrir að hafa reynt að gera aðsúg að dóm- aranum, því að hann hefði verið stoppaður af áður en hann komst á leiðarenda. Það væri því engin leið að fullyrða það að aumingja mað- urinn hefði ætlað sér í dómarann. Undir tali formannsins birtust síðan sjónvarpsmyndir af umræddu atviki. Styrktu þær ekki vondan málstað. víkverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn. (Lúkasarguðspjall 1:68)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.