Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Upphafi árs ljóssins á Íslandi og stórafmæli Sam-
einuðu þjóðanna, sem fagna 70 ára afmæli í ár,
var fagnað með samkomu í hátíðarsal Háskóla
Íslands í gær. Þar var dagskrá ársins kynnt auk
þess sem ráðherrar mennta- og utanríkismála
fluttu ávörp. Nemendur Alþjóðaskólans á Íslandi
sýndu jafnframt verk sem tengdust ljósinu og
kynnt voru ljósleiðarahljóðfæri sem hafa verið í
þróun. Eitt af markmiðum Sameinuðu þjóðanna
með ári ljóssins er að bæta skilning almennings á
því hvernig ljós og tækni sem byggist á ljósi
snertir líf okkar allra.
Ljósinu fagnað á afmæli Sameinuðu þjóðanna
Morgunblaðið/Kristinn
Unnið að því að bæta skilning almennings á því hvernig ljós og tækni sem byggist á ljósi snertir líf okkar
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eftir gloppótta vertíð virtist aðeins
skárra hljóð í loðnuskipstjórum í gær.
Skipin voru dreifð á miðunum, flest
voru vestur af Rauðanúp, önnur vest-
ur af Grímsey og síðan á Bakkaflóa-
og Héraðsflóadýpi. Eftir brælu á
mánudag var þokkalegt veður í gær
og frést hafði af einhverjum afla á öll-
um svæðum. Loðnan virtist fara mjög
grunnt með landinu í austurátt, en
fram til þessa hefur loðnan ekki verið
í þéttum göngum. Svo virðist samt
sem talsvert meira sé af loðnu í vetur
heldur en var í fyrravetur.
Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni SU, sagði að engar
tvær loðnuvertíðar væru eins, en von-
andi tækist að mæla sem allra mest
svo úr yrði góð vertíð. Hjörvar
Hjálmarsson, skipstjóri á Berki NK,
sagði að loðnan hefði lengi í vetur ver-
ið mjög vestarlega og virtist vera
seinna á ferðinni en venjulega. Auk ís-
lenskra skipa voru norsk og græn-
lensk skip á miðunum í gær.
Leiðangri lýkur á föstudag
Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangurs-
stjóri á rannsóknaskipinu Árna Frið-
rikssyni, sagði um hádegi í gær að
megnið af því sem mælst hefði í loðnu-
leiðangri til þessa hefði verið á vest-
urhluta svæðisins. Skipið kemur
væntanlega til hafnar á föstudag og í
kjölfarið verður tilkynnt um veiðiráð-
gjöf. Þegar hefur verið tilkynnt að
ráðgjöfin verði aukin úr 260 þúsund
tonnum í 360 þúsund tonn miðað við
varfærnar forsendur. Þá hafa verið
tekin frá 400 þúsund tonn til hrygn-
ingar. Sveinn vill ekki tjá sig frekar
um hverjar endanlegar tillögur verði,
enda sé leiðangrinum ekki lokið.
Sérkennilegt ástand
Hann segir að sjálfsagt sé eitthvað
af því sem mælt var vestan Kolbeins-
eyjar að síga austur á bóginn og sé
komið vestur fyrir Grímsey. Loðnan
hafi hagað sér undarlega í vetur, eins
og hún hafi einnig gert í fyrravetur.
Nánast ekkert hafi verið að sjá í land-
grunnsköntunum til þessa.
„Sannast sagna veit ég ekki hvar
loðnan sem við mældum á vesturhluta
mælingasvæðisins heldur sig,“ sagði
Sveinn. „Hvort hún er að síga austur
á bóginn eða hefur stoppað og tekur
hugsanlega vesturgöngu. Á vestur-
svæðinu er enginn til að fylgjast með,
því ég veit ekki til þess að veiðiskipin
hafi kíkt á þetta og við þurfum að
klára mælingar suður með Austfjörð-
um. Ástandið er skrýtið og erfitt að
geta ekki fylgst með þessu.
Ástandið var líka sérkennilegt í
fyrra og þá fannst eiginlega ekki neitt
í janúar fyrir Austurlandi og það var
ekki fyrr en viku af febrúar að loðnu
varð vart við Ingólfshöfða og eitthvað
fór að veiðast. Þá náðist í raun aldrei
nein mæling og mælingin sem gerð
var um haustið var látin standa.“
Loðnan seinna á ferðinni
Gengur grunnt austur með landinu Mest mælt á vestursvæðinu í loðnuleiðangri
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Leiðangur Rannsóknaskipið Árni
Friðriksson siglir út Eyjafjörð.
Tæp 10% nemenda í 8., 9. og 10.
bekk á höfuðborgarsvæðinu segjast
hafa fengið
andstyggi-
leg eða
særandi
skilaboð
frá ein-
staklingi
eða hópi á netinu þrisvar sinnum eða
oftar og tæp 11% nemenda á lands-
byggðinni. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í skýrslu mennta- og
menningarmálaráðuneytisins, Ungt
fólk 2014, en þar eru niðurstöður
rannsókna á högum nemenda í
þremur efstu bekkjum grunnskóla
kynntar.
Þegar kom að því svara hvort
nemendurnir hefðu sent andstyggi-
leg eða særandi skilaboð til ein-
staklings eða hóps á netinu sögðust
3,1% nemenda á höfuðborgarsvæð-
inu hafa gert það þrisvar sinnum eða
oftar og 3,5% nemenda á lands-
byggðinni. Töluvert fleiri viður-
kenndu að hafa sent slík skilaboð
einu sinni eða tvisvar, 10,6% nem-
enda á höfuðborgarsvæðinu og
11,7% nemenda á landsbyggðinni.
Neysla kannibisefna á
niðurleið skv könnuninni
Niðurstöður skýrslunnar, sem
kom út í gær, eru meðal annars þær
að áfram dregur úr lestri bóka, ung-
lingar verja sífellt meiri tíma með
foreldrum sínum og stúlkur í 9. og
10. bekk telja andlega heilsu sína
lakari nú en áður. Hinsvegar virðist
ofbeldi og einelti fara minnkandi og
færri vinna með námi en áður.
Þá kemur fram að 42% unglinga
sögðust hafa orðið ölvuð einu sinni
eða oftar síðastliðna þrjátíu daga ár-
ið 1998, en um 6% árið 2014. Neysla
kannabisefna er áfram á niðurleið og
daglegar reykingar standa að mestu
í stað, eru nú um 3% skv. þessari
könnun. Einnig benda niðurstöð-
urnar til að sá fjöldi unglinga í efstu
bekkjum grunnskóla sem finnur fyr-
ir þunglyndis- og kvíðaeinkennum,
hefur aukist undanfarin ár.
Æskulýðsrannsóknirnar Ungt
fólk hófu göngu sína árið 1992. Að
þessu sinni fór gagnasöfnun fram
með spurningalistakönnun í febrú-
armánuði 2014.
10% hafa
orðið fyr-
ir netníði
Ofbeldi og einelti
minnkar meðal barna
Hæstu tilboð í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og
læknastofurnar samsvara aðeins fjórðungi eða fimmt-
ungi af fasteigna- og brunabótamati eignanna. Ríkis-
kaup senda tilboðin til fjármálaráðuneytisins sem
ákveður framhaldið í samráði við Hafnarfjarðarbæ.
Ríkiskaup auglýstu húseignir St. Jósefsspítala til
sölu í tvennu lagi. Annars vegar húsnæði sjúkrahúss-
ins sem staðið hefur ónotað frá árinu 2011 og hins
vegar læknastofurnar sem standa hinum megin göt-
unnar. Ríkiskaup gefa aðeins upp hæstu tilboð í eign-
irnar. Byggingafyrirtækið Stofnás ehf. bauð hæst í
spítalann, 85 milljónir kr. Byggingarverktakinn
Skrauta ehf. átti hæsta boð í læknastofurnar, 37,6
milljónir kr.
Ekki var gefið upp verðmat við sölu eignanna en
bent á fasteigna- og brunabótamat. Fasteignamat
beggja húsanna var 470 milljónir og brunabótamat um
560 milljónir kr.
Áhugi hefur verið fyrir því í Hafnarfirði að fá heil-
brigðisþjónustu í húsnæði St. Jósefsspítala á ný.
Í auglýsingu Ríkiskaupa var tekið fram að við mat á
tilboðum yrði horft til fleiri þátta en hagstæðasta til-
boðs og óskað eftir að tilboðsgjafar gæfu upp hvaða
starfsemi þeir áformuðu að hefja í húsunum. Ríkis-
kaup veita ekki upplýsingar um þann hluta tilboðanna.
helgi@mbl.is
Byggingafyrirtæki býður
85 millj. í St. Jósefsspítala
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spítali St. Jósefsspítali er að nálgast nírætt en viðbygg-
ingar hans eru nýrri. Húsið er í ágætu standi.
Hæstu tilboð aðeins brot af
fasteigna- og brunabótamati
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Öllum átta sviðsstjórum Reykjanes-
bæjar verður sagt upp störfum í
tengslum við breytingar á stjórn-
skipulagi bæjarins sem samþykktar
voru á bæjarstjórnarfundi í gær. Tvö
af núverandi sviðum, þ.e. Íþrótta- og
tómstundasvið og Menningarsvið,
verða lögð niður en verkefni þeirra
flutt annað. Að sögn Kjartans Más
Kjartanssonar, bæjarstjóra í Reykja-
nesbæ, verða stöður sviðsstjóra aug-
lýstar. Samkvæmt nýja skipuritinu
verða sviðin fimm í stað átta áður.
Auk þess að leggja niður Íþrótta- og
tómstundasvið og Menningarsvið
verður Reykjaneshöfn rekin sem sér-
stök deild, eða B-hluta stofnun, í stað
sviðs. Atvinnuþátturinn verður af-
markaður við hafn-
tengda starfsemi
en önnur atvinnu-
mál munu færast á
stjórnsýslusvið.
„Fimm af átta stöð-
um sviðsstjóranna
eru að breytast og
því þótti hreinleg-
ast að losa um
ráðningarsam-
bandið við alla sviðsstjórana. Ekki
þótti sanngjarnt gagnvart heildinni
að þrír myndu sitja eftir. Allir sitja við
sama borð. Sumir þessara þriggja
hafa sagt að þeir muni sækja um. Ég
geri ráð fyrir því að það verði eins
með hina. Bæði er verið að breyta
störfum og starfsheitum og meirihlut-
anum fannst eðlilegast að gera þetta
með þessum hætti,“ segir Kjartan.
Öllum átta sagt
upp störfum
Skipulagsbreytingar í Reykjanesbæ
Kjartan Már
Kjartansson