Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í
raun er þinn hlutur. Taktu við því sem að þér
er rétt, jafnvel þótt það sé lítilsvert, því annað
getur valdið sárindum og reiði.
20. apríl - 20. maí
Naut Í dag gætir þú átt það til að gagnrýna
fólk um of. Líttu í kringum þig og sjáðu að þar
er ýmislegt, bæði fólk og verk, sem þú mátt
ekki vanrækja. Gefðu þér tíma til að sinna
þínum nánustu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt í innri baráttu og veist varla í
hvorn fótinn þú átt að stíga. Svo virðist sem
helsti áhrifavaldur þinn hafi haft óæskileg
áhrif á þig, en þetta eru frábærar fréttir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur tekið mjög skynsamlegar og
hagnýtar ákvarðanir í vinnunni í dag. Sýndu
sveigjanleika og láttu berast með straumnum
því óvænt röskun hins daglega amsturs getur
orðið spennandi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það hefur ekkert upp á sig að æpa á
aðra og slík ósanngirni lagar ekki stöðuna.
Gerðu þér grein fyrir því hvers vegna það
sækir á þig að breyta lífi þínu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hæfileikar þínir til þess að rannsaka
eitthvað í fortíðinni eru með mesta móti núna
og á næstu vikum. Láttu það eftir þér að leika
þér svolítið. Skoðaðu vandlega alla skilmála.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér hafa verið fengin völd yfir störfum
annarra. Hugsanlega talar það máli annarra
við stjórnendur. Gerðu það sem til þarf.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það kann ekki góðri lukku að
stýra ef þú hefur ekki samráð við þína nán-
ustu um hluti sem snerta ykkur öll. Brettu
upp ermarnar og láttu ekkert stöðva þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er jafn auðvelt að gera eitt-
hvað sem maður hefur ekki gert áður og að
endurtaka sig í sífellu. Stuttar ferðir, samtöl
við samstarfsfólk og samningaviðræður
munu halda þér við efnið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Viljirðu komast hjá óþægindum
skaltu ekki blanda saman starfi og leik.
Kannski er meðvitundin að tala.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Óvænt atvik verða oft til þess að
kenna okkur hvers virði það er sem okkur
finnst sjálfsagt. Skipstu á að beita
ímyndunaraflinu og hagnýtu viðhorfi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ferð í öfgaskap sem þú ert þekktur
fyrir; enginn millivegur þar. Rósemi og ein-
beiting eru lykilatriði til þess að ná árangri.
Björn Ingólfsson vék að því áLeirnum að á Boðnarmiði væri
fimmskeytlan rifjuð upp. Því væri
rétt að halda á lofti 6u-hættinum
svokallaða sem Ingi Steinar Gunn-
laugsson fann upp hér um árið. Sex
ljóðlínur, fimm bragliðir hver og
sjöunda línan undantekningarlaust
eitt u. Hann yrkist svona:
Sól úr austri á þessum þriðjudegi
þrotlaust heitum geislum sínum eys.
Jakob bóndi handa kúnni heyi
hefur lokið við að troða í meis.
Það er annars þokkalegur peyi
þrekvaxinn með rauðan skúf í peys-
u.
Þessa 6u kallar Björn Ingólfsson
„Konsert í 6u“:
Yfir salinn bylmingsraddir berast,
í bláu ljósi stendur mannakór.
Það er ljóst að bassinn syngur sverast
sem er gott, því tenórinn er mjór.
En hér er eitthvað undarlegt að gerast,
alltaf finnst mér heyrast mest í Þór-
u.
Bjarka Karlssyni þykir hátturinn
skemmtilegur. – „Hann verð ég að
prófa þó að sé svo rúinn hugmynda-
flugi að ég yrki alltaf um það
sama“:
Þó lífsins bók þú lengur ekki skrifir
svo laus við dagsins vandamál og
nauð,
í kaldri gröf, og ekki lengur lifir
þá logar minning björt um þveran sauð;
um þetta, hvernig afi minn fór yfir
allar lífsins krossgötur á rauð-
u.
Björn Ingólfsson getur ekki orða
bundist: „Aldrei fyrr hefur 6u-
hátturinn sannað jafn rækilega
mátt sinn. Alveg til loka sjöttu línu í
þessu eridi er afi sami gamli nagl-
inn á sama gamla Rauð en er
skyndilega kippt af reiðgötum 19.
aldar inn í umferðarljós nútíma-
umferðar í Reykjavík með þessum
eina litla bókstaf. Vel af sér vikið!“
Nú tekur hver vísnasmiðurinn af
öðrum þátt í leiknum. Pétur Stef-
ánsson lætur eina 6u í púkkið:
Ærið margt er hérna sagt og svikið.
Sóðaleg hún var en ekki löt,
því ána sína mjólkaði hún mikið
meir en flestir, enda býsna hvöt.
Samt skal nú að sannleikanum vikið;
Sigga vildi aldrei skipta um föt-
u.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Ekki er alltaf gott við því að gera,
en grjótfúlt þykir mörgum eilíft pex.
Þegar menn í bæjarlækinn bera
barmafulla skál í honum vex.
Skáldin hugsa: Skyldi ekki vera
skemmtilegt að gamna sér við sex-
u?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af 6u-hætti og gömlum
vísum í því ljósi
MEÐ AUKA OSTI
Í klípu
„HÚN VIRKAR LÍKA SEM KARAÓKÍ-VÉL“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VILTU SJÁ HVAÐA VIÐBÆTUR ERU
MÖGULEGAR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila yndislegasta
degi lífs ykkar.
HALLÓ, ER ÞETTA HJÁ HRAÐ-
PIZZUM? MIG LANGAR Í
STÓRA PEPPERÓNI...
UM... SJÚPPP MEÐ AUKAOSTI ÞESSIR KUNNASITT FAG
FYLGDU RÁÐUM MÍNUM,
OG GIFSTU RIDDARA MEÐ
SKÍNANDI BRYNJU!
AF HVERJU,
MAMMA?
ÞÚ MUNT SPARA STÓRFÉ Á
ÞVOTTASÁPUNNI EINNI SAMAN!
Nýjasta mynd Clints Eastwoodhefur slegið í gegn í Bandaríkj-
unum. Hún hefur einnig vakið harðar
deilur. Myndin fjallar um Chris Kyle,
sem var leyniskytta í Írak. Að sögn
bandaríska varnarmálaráðuneytisins
skaut hann 150 manns til bana.
Sennilega má bæta hundrað manns
við þá tölu. Í umsögn í blaðinu Nat-
ional Review, sem hallast til hægri,
sagði að Eastwood hefði fært Banda-
ríkjamönnum „stríðshetjuna“, sem
hefði vantað frá því að stríðið hófst.
Þegar kvikmyndagerðarmaðurinn
Michael Moore, sem er á vinstri
kantinum, leyfði sér að segja að í sín-
um huga væru leyniskyttur „heiglar“
og leyniskytta hefði skotið frænda
sinn í seinni heimsstyrjöld sagði New
Gingrich, fyrrverandi leiðtogi repú-
blikana í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings, að hann ætti að „verja nokkr-
um vikum með ISIS og Boko
Haram“. Sarah Palin, fyrrverandi
frambjóðandi repúblikana til vara-
forseta, sagði að Moore og aðrir
gagnrýnendur myndarinnar væru
„ekki hæfir til að bursta hermanna-
stígvél Chris Kyles“.
x x x
Eastwood vill greinilega ekki aðpólitísk öfl eigni sér myndina.
Hann segir að hún sé ádeila á stríð.
Hún sýni hvernig stríð sundri fjöl-
skyldum og rústi einstaklingum. Hún
sýni hvernig hermennirnir komi
heim örkumlaðir á sál og líkama.
Kyle lifði af átökin í Írak. Hann var
skotinn til bana á skotæfingasvæði í
Bandaríkjunum. Banamaður hans
var einnig fyrrverandi hermaður,
þjáður af áfallastreituröskun. Nú er
því haldið fram að vegna myndar-
innar og umtalsins um hana geti
réttarhöldin yfir banamanni Kyles
ekki orðið sanngjörn.
x x x
Víkverji hljóp á sig í síðustu vikueins og margir aðrir þegar hann
greindi frá því að tímamót hefðu orð-
ið í fjölmiðlun. Götublaðið The Sun
væri hætt að birta ljósmyndir af ber-
brjósta stúlkum á síðu þrjú. Þetta
reyndist auglýsingabrella. Blaðið
hætti að birta slíkar myndir í nokkra
daga, en tók svo aftur til við fyrri iðju
þegar fréttin hafði farið um heims-
byggðina. víkverji@mbl.is
Víkverji
Kunnan gerðir þú mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni að eilífu.
(Sálmarnir 16:11)