Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 28. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Bengal-kettirnir komnir heim
2. Neyðarástand í New York
3. Árni Páll sprakk úr hlátri
4. „Veðurteppt“ á Barbados
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Són-
ar Reykjavík, sem fram fer í Hörpu
12.-14. febrúar, liggur nú fyrir og
munu alls 68 hljómsveitir og lista-
menn koma fram á hátíðinni í ár.
Meðal þeirra sem koma fram á hátíð-
inni í ár eru Jamie xx og SBTRKT frá
Bretlandi, TV On the Radio og Jimmy
Edgar frá Bandaríkjunum, Todd Terje
og Kindness frá Noregi, hin rúss-
neska Nina Kraviz og Daninn Paul
Kalkbrenner. Fjöldi íslenskra hljóm-
sveita og tónlistarmanna treður einn-
ig upp, m.a. Mugison, Prins Póló, og
Samaris einn þekktasti flytjandi
danstónlistar á heimsvísu, Skrillex,
sem sést á myndinni, kemur fram á
lokakvöldi hátíðarinnar en hann er
vanur því að spila á mun fjölmennari
hátíðum en Sónar Reykjavík.
68 hljómsveitir og
listamenn á Sónar
Stuttmynd Guðmundar Arnar
Guðmundssonar, Hvalfjörður, hlaut
í fyrrakvöld verðlaun í Serbíu á
kvikmynda- og tónlistarhátíð leik-
stjórans Emirs Kusturica, Kusten-
dorf International Film and Music
Festival, og nefnast þau Brons-
eggið. Eru það 18. alþjóðlegu verð-
launin sem Hvalfjörður hlýtur.
Samningur var gerður um sýningu
myndarinnar á 500 hátíðum og
hefur hún þegar verið sýnd á 100
hátíðum. Nýjasta stuttmynd Guð-
mundar Arnar, Ártún,
hefur verið valin á 20
hátíðir og unnið til
tvennra verðlauna.
Tökur á fyrstu kvik-
mynd Guðmundar
í fullri lengd,
Hjartasteinn,
hefjast í
sumar.
Hvalfjörður hlýtur
18. verðlaunin
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snjókoma eða él á Norðurlandi og Vest-
fjörðum, annars hægur vindur og úrkomulítið. Frost 0 til 10 stig.
VEÐUR
Íslenska landsliðið í hand-
knattleik stendur fljótlega
á krossgötum. Framundan
er lokaspretturinn í undan-
keppni EM í vor og í byrjun
sumar. Eins og staðan er
nú er síður en svo gefið að
íslenska landsliðið vinni
sér sæti í lokakeppni EM
sem haldin verður í Pól-
landi eftir ár. Ef svo fer er
nokkuð ljóst að breytingar
munu eiga sér stað á
landsliðinu. »2
Landsliðið á
krossgötum
„Það er ekkert farið að ræða fram-
hald. Allt er í góðu á milli okkar. Við
erum ekkert farnir að ræða framhald
ennþá enda var
þessu stóra verk-
efni á HM rétt að
ljúka og alls ekki
tímabært að ræða
framhaldið
strax,“
sagði Guð-
mundur B.
Ólafsson,
formaður
HSÍ. »1
Þjálfaramálin hafa ekki
verið rædd
„Við ætlum að koma fólki á óvart,“
segir Craig Pedersen, þjálfari karla-
landsliðs Íslands í körfubolta, sem
hefur þegar eytt drjúgum tíma í að
íhuga hvaða leikmenn fari fyrir hönd
þjóðarinnar á fyrsta stórmótið í
körfubolta, EM í Berlín, í september:
„Það verða kannski nokkrir leik-
menn í lokahópnum sem teljast ekki
endilega til 14 bestu á landinu.“ »4
Ekki endilega 14 bestu
sem fara til Berlínar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni,
segir máltækið. Adam Omarsson,
sjö ára aldursflokksverðlaunahafi á
Íslandsmóti 10 ára og yngri, tefldi
tvö fjöltefli í fyrradag og sigraði í
öllum 27 skákunum. Hann er sonur
hjónanna Lenku Ptácníková, stór-
meistara í skák frá Tékklandi og
landsliðskonu Íslands, og Egyptans
Omars Salama, skákmeistara, al-
þjóðlegs dómara í skák og fyrrver-
andi landsliðsþjálfara kvenna í skák.
Skákdagurinn er 26. janúar til
heiðurs Friðriki Ólafssyni stór-
meistara. Umrædd fjöltefli fóru
fram þann dag í leikskólanum Lauf-
ásborg þar sem Omar hefur kennt
börnunum skák síðan 2009. Adam,
sem var áður í leikskólanum en er
nú í Háteigsskóla, tefldi fyrst við 15
drengi og síðan 12 stúlkur. „Það var
starfsdagur í skólanum hjá honum
og því notuðum við tækifærið og
buðum upp á fjöltefli,“ segir Omar,
en Lenka, sexfaldur Íslandsmeist-
ari, lék fyrsta leikinn fyrir soninn.
Börnin áhugasöm
Omar segir að börn á Laufásborg
séu mjög áhugasöm um skák, fylgist
með umræðunni og þekki nöfn á
helstu meisturum. Fimm ára börnin
eigi það val að tefla tvisvar á dag, en
farið sé hægar í sakirnar með þau
yngri. Þeim sé kennt að raða mönn-
unum á skákborðið og manngang-
inn.
„Mér finnst skemmtilegast að
hugsa,“ segir Adam og Omar bætir
við að sonurinn hafi lært manngang-
inn þriggja ára, sigrað í sínum ald-
ursflokki sex og sjö ára og fengið
sex vinninga af níu mögulegum á
síðasta Íslandsmóti 10 ára og yngri.
„Hann er mjög áhugasamur og við
sjáum til um framhaldið,“ segir Om-
ar, sem er í dómaranefnd Alþjóða-
skáksambandsins, FIDE, og verður
yfirdómari á Reykjavíkurmótinu í
mars næstkomandi.
Með 1.000 Elo-stig
Adam er með 1.000 Elo-skákstig.
Hann er í læri hjá Stefáni Bergs-
syni, framkvæmdastjóra skákaka-
demíu Reykjavíkur og skákkennara,
og hefur þegar keppt á tveimur
barnamótum í Tékklandi og sótt þar
sumarskákbúðir. Hann æfir einnig
fótbolta með Val og talar fimm
tungumál; íslensku, tékknesku, ar-
abísku, ensku og frönsku.
Fjölskyldan fylgdist spennt með
sínum liðum á heimsmeistaramótinu
í handbolta, en Tékkland, Egypta-
land og Ísland voru saman í riðli.
„Adam, sem er mikill keppnis-
maður, stóð harður með Íslend-
ingum í innbyrðisleikjunum,“ segir
Omar.
„Skemmtilegast að hugsa“
Sjö ára tefldi
fjöltefli við 27
yngri börn
Fjöltefli Adam Omarsson teflir við strákana á Laufásborg í fyrradag. Hvort fjöltefli tók um einn og hálfan tíma.
Reykjavíkurmótið 2014 Lenka Ptácníková, Adam og Omar Salama.
Á fimmtudag Norðan og norðaustan 13-23 m/s, hvassast við
austurströndina. Snjókoma eða él, þurrt suðvestantil á landinu.
Frost 0 til 5 stig.
Á föstudag Norðanátt, víða 5-10 m/s, en 10-15 austast. Létt-
skýjað á Suður- og Vesturlandi, annars dálítil él. Harðnandi frost.