Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Reglan er sú að það þurfi ekki fjórar akreinar nema umferðin sé komin yfir tuttugu þúsund bíla á sólarhring. Umferðarspár til næstu áratuga segja að bílaumferðin á Grensásvegi muni aldrei ná því marki,“ segir Hjálmar Sveins- son, borgar- fulltrúi og for- maður umhverfis og skipulags- sviðs, og bætir við að í dag aki tíu til tólf þúsund bílar á sólarhring um veginn. Til stendur að þrengja Grensásveg sunnan Miklubrautar úr fjórum akreinum í tvær og gera hjólastíga sitt hvorum megin göt- unnar til að auka öryggi í umferð- inni og lyfta undir hjólreiðar. Júl- íus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, efaðist um ágæti hugmyndarinnar í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í gær en Hjálmar segir þar hlaupið yfir ýmis rök til stuðnings þrenging- anna. Umferð langt undir viðmiðum „Tillaga um endurhönnun Grens- ásvegar suður er hluti af Hjólreiða- áætlun Reykjavíkurborgar frá árinu 2010 og í samræmi við stefnu borgarinnar í umferðarmálum og Aðalskipulag Reykjavíkur. Aðgerð- in mun hægja á bílaumferð, auka umferðaröryggi og bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi barna og fullorðinna í hverfinu. Umferðarflæði götunnar mun ekki raskast enda er metin umferð á þessum kafla Grensásvegar langt undir viðmiðum fyrir fjögurra ak- reina götu. Hönnun tekur tillit til athugasemda hagsmunaaðila þ.á m. frá Slökkviliði sem komu fram í samráðsferlinu,“ segir með- al annars í bókun meirihlutans á fundi umhverfis- og skipulagsráðs hinn 21. janúar síðastliðinn. Íbúar vilja hægja á umferð „Þarna er vísað í mjög metn- aðarfulla hjólreiðaáætlun frá árinu 2010 sem unnin var undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Þar er gert ráð fyrir að lagðir verði tíu kíló- metrar hjólastíga á hverju ári, fimmtíu kílómetrar fyrir árið 2015 og hundrað kílómetrar fyrir árið 2020. Þegar þessi stefna var sam- þykkt lá fyrir kostnaðaráætlun sem sýnir að þetta eru býsna dýrar aðgerðir,“ segir Hjálmar. „Þarna er líka vísað til þess að aðgerðin verður til að hægja á bíla- umferðinni, en það hefur komið fram á fundum með íbúum í hverf- inu að þeim finnst bílaumferðin of hröð. Umferðin klippir hverfið í sundur,“ segir hann. „Í þriðja lagi er vísað til þess að haft var samráð við hagsmunaaðila og einnig Slökkvilið. Tekið var tillit til athugsemda, meðal annars með því að taka hraðahindranir og hafa útskot fyrir strætó við biðskýli, svo strætó stöðvi ekki umferðina í göt- unni á meðan farþegar stíga inn. Þetta fyrirkomulag er reyndar til bráðabirgða. Þegar bráðamót- tökudeildin fer frá Borgarspítala verður það tekið til endurskoð- unar,“ segir Hjálmar að lokum. Segir fjórar akreinar of mikið  10 til 12 þúsund bílar dag hvern Hjálmar Sveinsson Niðurstöður nýrrar rannsóknar Vinnumálastofnunar og velferðar- ráðuneytisins sýna að meirihluti þeirra sem þátt tóku í könnuninni og fullnýtt höfðu rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins höfðu hafið þátttöku á vinnumark- aði að nýju þegar könnunin var gerð, eða 57,8% svarenda, skv upp- lýsingum velferðarráðuneytisins. Þar kemur fram að þessu til við- bótar höfðu 5,8% hafið nám við lok bótatímabilsins. Þannig sögðust 63,6% svarenda vera annaðhvort launamenn í fullu starfi, launa- menn í hlutastarfi, í sjálfstæðum rekstri eða í námi. Af þeim sem svöruðu voru 22% enn í atvinnuleit. Að auki sýnir rannsóknin að 27,1% þeirra at- vinnuleitenda sem fullnýtt hafa rétt sinn innan atvinnuleysistrygg- ingakerfisins hafa fengið fjárhags- aðstoð frá hlutaðeigandi sveitarfé- lagi í kjölfarið en rannsóknartímabilið náði frá árs- byrjun 2013 til haustsins 2014. Alls fengu 9,9% greidda fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi þegar rannsóknin var gerð. Rannsókn Vinnumálastofnunar og ráðuneytisins var unnin af rannsóknarfyrirtækinu Maskína hf. 57,8% á vinnumarkaði við lok bótatíma VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 60% þolenda segja ekki frá kynferðislegu ofbeldi á þeim tíma sem það á sér stað eða fljótlega á eftir. En ef við göngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum við samfélag við hvert annað og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar okkur af allri synd. • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Vertu vinurokkará facebook -50% af öllum fatnaði og skóm Árin segja sitt1979-2014 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sýnum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi. )553 1620 Verið velkominn STÓRÚTSALA Laugavegi 63 • S: 551 4422 Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir FRÁBÆRAR VETRARYFIRHAFNIR OG GÆÐA DÖMUFATNAÐUR www.laxdal.is ALLT AÐ 60% 40-60% afsláttur mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.