Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Fyrirtaka í meiðyrðamáli 365 miðla
ehf. gegn þeim Reyni Traustasyni,
fyrrverandi ritstjóra DV, og Inga
Frey Vilhjálmssyni, fyrrverandi
fréttastjóra, verður í Héraðsdómi
Reykjavíkur hinn 18. febrúar nk.
Einar Þór Sverrisson hæstarétt-
arlögmaður sækir málið fyrir hönd
365 miðla.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að stefnan hefði verið
þingfest 26. nóvember 2013, en fyrir-
taka hafi dregist úr hófi, vegna þess
að dómarinn, sem upphaflega átti að
dæma í málinu, sagði sig frá því
vegna vanhæfis.
„Þetta snýst um nokkrar fréttir
og Sandkorn í DV
frá því haustið
2013, sem þeir
Ingi Freyr Vil-
hjálmsson og
Reynir Trausta-
son skrifuðu.
Þetta voru um-
mæli sem lutu að
meintum rekstrarörðugleikum 365
miðla, sem áttu sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Þetta voru gengdar-
lausar og endurteknar ruglfréttir
haustið 2013 sem eigendur og
stjórnendur 365 voru ekki tilbúnir
að sitja undir,“ sagði Einar Þór.
agnes@mbl.is
365 miðlar í
meiðyrðamál
Stefna fyrrverandi yfirmönnum DV
Sameiginlegur skíðapassi fyrir
ferðamenn í Stafdal og í Odds-
skarði eykur möguleika fyrir iðk-
endur í Skíðalandinu Austurlandi,
sem er í mótun. Þrjú sveitarfélög
koma að rekstri þessara skíða-
svæða á Austurlandi, Fjarðabyggð,
sem er með Skíðamiðstöð Austur-
lands í Oddsskarði, og Fljótsdals-
hérað og Seyðisfjörður, sem koma
í sameiningu að skíðasvæðinu í
Stafdal á austanverðri Fjarðar-
heiði.
Samkvæmt upplýsingum frá
sveitarfélögunum er með samstarf-
inu verið að nýta þau tækifæri sem
nálægðin á milli svæðanna felur í
sér, en yfirleitt er greiðfært á milli
Egilsstaða og Seyðisfjarðar annars
vegar og Fjarðabyggðar hins veg-
ar. Fyrir ferðamenn gefa tvö
skíðasvæði fyrir eitt kost á fjöl-
breyttri skíðaferð til Austurlands.
Auk þess sem samstarfið getur fal-
ið í sér eins konar skíðatryggingu,
en reynslan sýnir að svæðin tvö
eru sjaldan lokuð bæði í einu
vegna veðurs eða færðar.
Bæði svæðin eru í um og yfir
800 metra hæð og bjóða ólíka upp-
lifun og áskoranir, hvort með sínu
móti, segir í fréttatilkynningu.
Stafdalur er sem dæmi með
lengstu skíðasvigbraut landsins.
Oddsskarð er eitt af fáum skíða-
svæðum á landinu sem gefa kost á
óslitinni ferð beint frá fjallstindi
niður í fjöru.
Sameiginlegur skíða-
passi eykur möguleika
Samvinna milli skíðasvæða eystra
Ljósmynd/Nicolas Grabar
Í Stafdal Það er ekki amalegt að svífa í brekkunum á góðum degi.
Fyrirhuguðum fundi sem halda átti í
Grímsey í dag, miðvikudaginn 28.
janúar, og blaðamannafundi á Akur-
eyri morguninn eftir hefur verið af-
lýst af óviðráðanlegum orsökum.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Akureyrarbæ í gær.
Fram kemur í tilkynningunni að
stefnt sé að því að boða annan fund
með einhverju sniði við fyrstu hent-
ugleika allra sem að málinu koma. Í
millitíðinni haldi bæjarfulltrúar og
starfsfólk Akureyrarkaupstaðar,
ásamt fulltrúum Atvinnuþróun-
arfélags Eyjafjarðar og Byggða-
stofnunar, áfram að vinna að lausn
yfirvofandi vanda í atvinnumálum
Grímseyinga í nánu samráði við
heimamenn.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um er komið að skuldadögum hjá út-
gerðarmönnum í eynni við Íslands-
banka en þeir keyptu aflaheimildir
m.a. með lánum frá bankanum og
voru þær settar sem veð. Er byggð í
eyjunni í óvissu af þeim sökum.
Fundi um atvinnumál í
Grímsey var frestað
TRAUSTIR,
NÝLEGIR
GÆÐABÍLAR
Á HAGSTÆÐU VERÐI
VWPassatComfortl Ecofuel
AT. Árgerð 2012, bensín/metan
Ekinn 111.000 km, sjálfskiptur
Skoda Yeti 2.0 TDI
140 Hö. Árg. 2013, dísil
Ekinn 61.500 km, beinskiptur
MMPajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 42.000 km, sjálfskiptur
VWCaravelle Trendline
Árgerð 2013, dísil
Ekinn 60.000 km, beinskiptur
Skoda Citigo Active
60 Hö. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 69.000 km, beinskiptur
Audi A4 2.0 TDI 6 gíra
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 60.000 km, beinskiptur
VWGolf Trendline 1.6 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 87.000 km, beinskiptur
VWPolo 1.2 TDI 5 dyra
75 Hö. Árgerð 2011, dísil
Ekinn 60.000 km, beinskiptur
VW Caddy 2.0 EcoFuel
Árgerð 2011, bensín/metan
Ekinn 55.000 km, beinskiptur
VW Tiguan Track&Style
2.0 TDI. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 44.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.290.000
Ásett verð: 3.390.000
Ásett verð: 3.950.000
Ásett verð: 7.290.000
Ásett verð: 5.690.000
Ásett verð: 1.430.000
Ásett verð: 3.390.000
Ásett verð: 2.290.000
Ásett verð: 1.550.000
Ásett verð: 2.390.000
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
heklanotadirbilar.is
Komdu og skoðaðu úrvalið!