Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Myrkir músíkdagar hafa allt frá
stofnun verið einn mikilvægasti
vettvangur framsækinnar tónlistar
á Íslandi, en hátíðin fagnar í ár 35
ára afmæli,“ segir Kjartan Ólafs-
son, listrænn stjórnandi
tónlistarhátíðarinnar Myrkra mús-
íkdaga 2015 sem sett verður á
morgun og stendur til sunnudags-
ins 1. febrúar. Kjartan er sem
kunnugt er líka formaður Tón-
skáldafélags Ís-
lands sem stóð
að stofnun hátíð-
arinnar á sínum
tíma, en félagið
fagnar 70 ára af-
mæli sínu síðar á
árinu. „Þetta er
því tvöfalt af-
mælisár.“
Aðspurður
segir Kjartan
listrænar línur
Myrkra músíkdaga (MM) ávallt
hafa verið einfaldar og því þjónað
vel tilgangi sínum. „Aðaláherslan
er alltaf á íslenska tónlist. Í öðru
lagi leggjum við mikið upp úr nýrri
tónlist og þess vegna stefnum við
að því að frumflytja ávallt eins
mörg ný íslensk verk og hægt er.
Þriðja leiðarljósið okkar er fjöl-
breytni, jafnt í tónlistinni sjálfri
sem aldursbreidd tónskáldanna, en
nær allar kynslóðir íslenskra tón-
skálda koma hér við sögu,“ segir
Kjartan og tekur fram að íslensk
tónskáld séu afar virk auk þess
sem tónlistarfólkið sem fram komi
á hátíðinni sé mjög áhugasamt um
að flytja nýja íslenska tónlist.
Litið aðeins til baka
Á þeim fjórum dögum sem hátíð-
in stendur verður boðið upp á átján
tónleika, þrjá fyrirlestra og eina
vinnustofu, sem haldin er í sam-
starfi við STEF á morgun kl. 10.
Þar er um að ræða vinnustofu með
Tim Brooke tónlistarforleggjara frá
Faber Music. Viðburðurinn er
ókeypis, en skrá þarf þátttöku sína
á vef hátíðarinnar.
„Berglind María Tómasdóttir
flautuleikari verður með opnunar-
atriði í Hörpuhorni á morgun kl. 17
þar sem hún býður áhorfendum að
taka þátt í tónsköpun sinni sem út-
varpað verður í beinni útsendingu á
Rás 1,“ segir Kjartan og tekur
fram að MM hafi í gegnum tíðina
átt einkar farsælt samstarf við
RÚV sem taki upp mikinn fjölda
tónleika hátíðarinnar til útsend-
ingar síðar. Tónverk Berglindar
Maríu nefnist Myrkraverk og um
frumflutning á verkinu verður að
ræða.
„Að venju leikur Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á opnunartónleikum
hátíðarinnar, að þessu sinni undir
stjórn Petri Sakari. Á tónleikunum
verður litið aðeins til baka, því Þor-
kell Sigurbjörnsson og Leifur Þór-
arinsson verða í forgrunni,“ segir
Kjartan og tekur fram að þannig
hafi skipuleggjendur hátíðarinnar
viljað minnast látinna félaga sinna,
en Þorkell var ásamt Atla Heimi
Sveinssyni stofnandi MM á sínum
tíma. Eftir Þorkel verða flutt verk-
in Ymur og kontrabassakonsertinn
Niður, en einleikari er Hávarður
Tryggvason. Eftir Leif verða flutt
Hnit og Fiðlukonsert, en einleikari
er Sigrún Eðvaldsdóttir. Á tónleik-
unum sem fram fara í Eldborgarsal
Hörpu annað kvöld kl. 19.30 verður
einnig frumflutt verkið Lupus chor-
ea eftir Hilmar Þórðarson.
Söngleikur fyrir börn og ný
ópera kynnt til sögunnar
„Það er nær ómögulegt að gera
upp á milli einstakra tónleika, enda
er fjölbreytnin svo mikil og yfir-
bragð tónleikanna afar ólíkt,“ segir
Kjartan þegar hann er beðinn að
nefna hvað beri hæst á hátíðinni í
ár. „Konur eru áberandi á hátíðinni
í ár. Sem dæmi verður boðið upp á
opna vinnusmiðju þar sem áhorf-
endum gefst tækifæri á að vera
flugur á vegg í miðju sköpunarferli
nýrrar óperu eftir Önnu Þorvalds-
dóttur sem nefnist UR og leikstýrð
er af Þorleifi Erni Arnarssyni,“
segir Kjartan, en vinnusmiðjan fer
fram í Norðurljósum Hörpu 31.
janúar. „Sunnudaginn 1. febrúar
verður nýr söngleikur fyrir börn,
sem nefnist Björt í Sumarhúsi, eftir
Elínu Gunnlaugsdóttur í leikstjórn
Ágústu Skúladóttur frumfluttur í
Kaldalóni kl. 13. Elín verður einnig
með dagskrá fyrir börn í Hörpu-
horni laugardaginn 31. janúar kl.
14.
Kvennahljómsveitin Nordic Af-
fect frumflytur á tónleikum í Norð-
urljósum laugardaginn 31. janúar
kl. 13 m.a. verkið Atonement eftir
Pál Ragnar Pálsson og Tombeau
eftir Taylan Susam. Auk þess má
nefna að Tinna Þorsteinsdóttir pí-
anóleikari frumflytur tíu ný verk
fyrir dótapíanó,“ segir Kjartan, en
tónleikar Tinnu fara fram í Kalda-
lóni sunnudaginn 1. febrúar kl. 18.
„Kammersveit Reykjavíkur og
Caput hafa tekið þátt í hátíðinni
eins lengi og elstu menn muna.
Kammersveitin mun á tónleikum
sínum í Norðurljósum sunnudaginn
1. febrúar kl. 20 undir stjórn Bern-
harðs Wilkonssonar frumflytja
verkið Alkul fyrir kantele og
strengjasveit eftir Huga Guð-
mundsson, Konsert fyrir selló og
strengjasveit eftir Dobrinku Taba-
kovu, Double Image op. 49 fyrir
strengjasveit eftir Hafliða Hall-
grímsson og Musik der Unzeitlich-
keit I eftir Kolbein Bjarnason. Ein-
leikarar eru Eva Alkula á kantele
og Sigurður Bjarki Gunnarsson á
sello.
Á tónleikum Caput í Norður-
ljósum föstudaginn 30. janúar kl. 20
verða undir stjórn Guðna Franz-
sonar frumflutt verkin Memoria for
piano and ensemble eftir Úlfar
Inga Haraldsson, Impressionen og
Expressionen eftir Atla Heimi
Sveinsson og The Drift of Mel-
ancholy eftir Snorra Sigfús Birg-
isson. Einsöngvari er Ingibjörg
Guðjónsdóttir sópran og einleikari
Tinna Þorsteinsdóttir á píanó.“ Síð-
ast en ekki síst nefnir Kjartan raf-
tónleika í Kaldalóni annað kvöld kl.
22. „Raftónleikarnir eru vaxandi
vettvangur fyrir yngra fólkið.“
Blikur á lofti
Frá árinu 2012 hafa Myrkir mús-
íkdagar verið haldnir í Hörpu og
verða það líka í ár, að því undan-
skildu að fyrirlestrar eru haldnir í
húsnæði Listaháskóla Íslands.
„Harpa er stórkostlegt tónlistarhús
og starfsfólk þess vinnur frábært
starf sem hefur haft mjög jákvæð
áhrif á hátíðina í heild sinni. Við
vonumst til að geta haldið áfram á
sömu braut, en því ber ekki að
leyna að sífellt erfiðara er að reka
slíka hátíð á þeim forsendum sem
eru til staðar í dag í samfélaginu,“
segir Kjartan og tekur fram að
ýmsar aðrar blikur séu á lofti.
„Frá hruni hefur íslenskt tónlist-
arlíf þurft að taka á sig niðurskurð
frá opinberum aðilum og óttast
menn að skerða eigi enn frekar
starfsvið og starfsumhverfi ís-
lenskrar tónlistar,“ segir Kjartan
og nefnir í því samhengi skattlagn-
ingu á tónlist, fjármagsskerðingu
til tónlistarviðburða og tónlistar-
menntunar, skerðingu á samkeppn-
issjóðum til tónlistar ásamt niður-
skurði til menningarstofnunarinnar
RÚV. „Þessari þróun þarf að snúa
snarlega við enda eru óteljandi
tækifæri og möguleikar í íslensku
samfélagi í dag til að efla íslenskt
tónlistarlíf og stuðla þannig að
framþróun og fjölbreytni tónlistar á
Íslandi, enda hafa allar rannsóknir
og kannanir á þessu sviði sýnt að
tónlistarlífið í heild sinni gefur
samfélaginu aukið menningarlegt
gildi ásamt efnahagslegum ávinn-
ingi.“
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrána og flytjendur má nálgast á
myrkir.is auk þess sem dagskrá
hvers dags verður birt hér á menn-
ingarsíðum Morgunblaðsins.
„Tvöfalt afmælisár“
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar hefst í Hörpu á morgun 35 ár frá stofnun hátíðarinnar
18 tónleikar á næstu fjórum dögum auk fyrirlestra Konur áberandi í ár í hópi tónskálda
Kjartan
Ólafsson
Myrk Berglind María Tómasdóttir. Barnastarf Elín Gunnlaugsdóttir. Strengir Hafliði Hallgrímsson.
Ópera Anna Þorvaldsdóttir. Bjartsýnn Hugi Guðmundsson. Endurlit Þorkell Sigurbjörnsson.
Ekkert bensín, takk.
Þann 20. febrúar kemst einn heppinn áskrifandi Morgunblaðsins í samband við Volkswagen e-Golf.