Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP)
eru margverðlaunuð fyrir hönnun,
myndgæði, notagildi, umhverfisvernd
og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga,
rekstrarleigusamninga og alhliða
prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
Íslenski bílaflotinn er sá elsti afþeim löndum sem við berum
okkur almennt saman við í Evrópu
og Norður-Ameríku. Á Íslandi er
meðalbíllinn tólf ára gamall en á
meginlandi Evrópu er hann átta
ára, að því er fram kom í samtali
Morgunblaðsins við framkvæmda-
stjóra FÍB á dögunum.
Þetta er sláandi munur og þegarhorft er til þess að bílvélar
batna hratt og mengun frá bílum
minnkar, auk þess sem öryggi bif-
reiða verður stöðugt meira, er full
ástæða til að skoða hvað kunni að
valda þessum mun á Íslandi og öðr-
um ríkjum.
Og skýringin er ekki tiltakanlegavandfundin eða flókin. Sérstök
gjöld á bíla eru ógnarhá hér á landi,
eða allt upp í 65%, og lækkuðu
ekkert þegar almennu vörugjöldin
voru felld niður um áramót.
Ofan á þessi gjöld leggst svo einnhæsti virðisaukaskattur í
heimi, svo að óhætt er að segja að
bílaeigendur séu ekki hvattir til að
endurnýja.
Bílaleigur máttu um áramót sætahækkun, en búa þó enn við
mun hagstæðara skattaumhverfi en
almenningur.
Rökstuðningurinn er að ferða-menn þurfi að geta fengið
samkeppnishæft verð.
Það er eðlilegt og sjálfsagt, en áalmenningur á Íslandi nokkuð
minna skilið?
Á almenningur
minna skilið?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.1., kl. 18.00
Reykjavík 0 snjóél
Bolungarvík 1 léttskýjað
Akureyri 3 skýjað
Nuuk -15 snjóél
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló -3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 7 súld
Glasgow 7 skýjað
London 8 léttskýjað
París 6 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 3 skúrir
Vín 3 skýjað
Moskva -6 snjóél
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 8 heiðskírt
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -5 þoka
Montreal -15 alskýjað
New York -5 þoka
Chicago -1 alskýjað
Orlando 9 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:21 17:01
ÍSAFJÖRÐUR 10:44 16:48
SIGLUFJÖRÐUR 10:28 16:30
DJÚPIVOGUR 9:55 16:26
Bridshátíð, sú 34. í röðinni, hefst
formlega á Hótel Natura annað
kvöld en í kvöld fer þar fram svo-
nefnt stjörnustríð þar sem hitað er
upp fyrir aðalmótin.
Yfir 400 keppendur eru skráðir til
leiks, bæði íslenskir og erlendir. Í
þeim hópi eru þekktir evrópskir og
amerískir spilarar, þar á meðal
Norðmaðurinn Tor Helness, sem að
þessu sinni spilar við son sinn Fred-
rik, og Zia Mahmood, sem spilar við
Bretann Andrew Robson. Þá spilar
Hjördís Eyþórsdóttir, sem er núver-
andi heimsmeistari kvenna í sveita-
keppni, við Magnús Ólafsson.
Líklega mun þó Daninn Gus Han-
sen vekja mesta athygli áhorfenda
en hann er einn þekktasti og sigur-
sælasti pókerspilari heims. Hansen
hefur á síðustu árum fengið mikinn
áhuga á brids og komst raunar í við-
skiptafréttir nú í janúar þegar hann
fjárfesti í danska fyrirtækinu
Bridge+Company, sem framleiðir
búnað til að gefa spil á bridsmótum.
Búnaðurinn nefnist Bridge + Deal-
er og var fyrst notaður á sterku móti
í Kaupmannahöfn um miðjan þenn-
an mánuð. Hansen spilar hér við vin
sinn Martin Schaltz, sem er kunnur
bridsspilari í Danmörku.
Spilamennskan hefst klukkan 19
annað kvöld og mótinu lýkur með
verðlaunaafhendingu um kl. 18 á
sunnudag. gummi@mbl.is
Yfir 400 spilarar mæta á Bridshátíð
Gus HansenZia Mahmood
Heimsþekktur danskur pókerspilari verður meðal þátttakenda
Reglur um skil á ársreikningum og
ársreikningaskrá eru til athugunar
ásamt öðru við undirbúning á inn-
leiðingu tilskipunar Evrópusam-
bandsins um einföldun ársreikninga
lítilla fyrirtækja. Ríkisskattstjóri
bendir á að hugsanlega mætti taka
tilteknar framtalsupplýsingar og
auka þannig sjálfvirkni og eftirlits-
möguleika.
Ársreikningaskrá er sjálfstætt
kerfi, óháð framtalsupplýsingum
sem fyrirtækin skila. Eftirlitið fer
fram eftir á með úrtakskönnunum.
Þannig var ársreikningi Neytenda-
lána hafnað eftir fyrirspurn Morgun-
blaðsins um það hvort leyfilegt væri
að segja í ársreikningi að hluthafar
væru „ótilgreindir útlendingar“.
Kerfin hjá Ríkisskattstjóra eru
með mismunandi upplýsingar auk
þess sem ársreikningaskráin er opin
en framtalsskilin ekki. Ríkisskatt-
stjóri hefur þó til einföldunar bent á
þann möguleika að nota tilteknar
upplýsingar úr framtölum á sjálf-
virkan hátt við gerð ársreikninga-
skrár. Eftirlitið yrði virkara.
Þessi hugmynd er ásamt öðrum til
skoðunar í ráðuneytinu, samkvæmt
upplýsingum. Meginhugsunin er þó
að einfalda hlutina, einkum fyrir
minnstu fyrirtækin. helgi@mbl.is
Skil á árs-
reikningi
einfölduð