Morgunblaðið - 28.01.2015, Page 11

Morgunblaðið - 28.01.2015, Page 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári Borgarnes Það er tilvalið að njóta handverks helgarinnar og vinna í höndunum í fallegu umhverfi í Borgarnesi. áður haldið svona helgi til prufu en þá voru þátttakendur aðeins tveir. Hins vegar lukk- aðist sú helgi afskaplega vel, segir Ragnheiður, og þarna lauk ein kona við peysu sem hana hafði vantað smávegis aðstoð við, dúk sem vantaði frágang á en auk þess kom hún með dúk sem hún hafði geymt í nokkur ár. Næsta helgi er einmitt ,,helgi hins hálfnaða hand- verks“ en dagskráin er með þeim hætti að Ragnheiður hitt- ir þátttakendur á föstudags- kvöld hjá Inger. ,,Við hefjumst strax handa og skoðum gömlu handavinnuna,“ segir Ragnheiður og bætir við: ,,og vinnum svo alla helgina í ró og næði, en þetta er allt öðruvísi en að fara á handverksnámskeið og fara síðan bara heim“. Útlendingum kennt að prjóna Ragnheiður hefur frá árinu 2011 starfað sjálfstætt við handverk, sem ferðaskipuleggjandi og leiðsögu- maður. Áður starfaði hún í samtals 30 ár í grunnskólum eða skólaskrif- stofum sem handverkskennari, stærðfræðikennari og við sér- kennslu og ráðgjöf. ,,Eftir að ég fór haustið 2011 á brautargengisnámskeið hjá Ný- sköpunarmiðstöð Íslands varð ekki aftur snúið og ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki, ,,Culture and craft“, en fyrsta og aðalmarkmiðið var að kenna útlendingum að prjóna og kynna íslensku ullina fyrir þeim“. Ragnheiður segist ekki hafa staðið sig nógu vel í markaðs- setningu í upphafi enda hafi hún ekki fengið nema tvo við- skiptavini árið 2012. ,,Ég hafði aldrei þurft að markaðssetja mig áður, en eftir að ég fór í samstarf við ferða- skrifstofur hefur þetta gengið ljómandi vel. Ég er með að- stöðu á Hótel Laxnesi og þang- að koma þátttakendur víða úr heiminum. Þaðan fer ég líka með fólk í gönguferðir í Ála- fosskvosinni og segi sögu ullar- iðnaðarins á Íslandi“. Ragnheiður segir að út- lendum ferðamönnum gangi vel að læra að prjóna en skemmtilegast þykir henni að fá erlenda nemenda- hópa á aldrinum 14 til 17 ára þegar þarf að kenna þeim allt frá byrjun. Það sé virkilega gaman að sjá hvernig þau upplifa þegar prjón- aður hlutur verður til. Dúkur Sá sem átti þennan fellega dúk lauk loks að sauma hann um síðustu handverkshelgi. Hægt er að fá nánari upplýsingar um Helgi hins hálfnaða handverks á netfanginu ragga@cultureandc- raft.com eða hringja í 869 9913. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Tónlistarhátíðin WACKEN OPEN AIR í Norður-Þýskalandi er ein stærsta og virtasta þungarokkshátíð í heimi og er haldin árlega. Á hverju ári stendur Wacken fyrir hljómsveitakeppninni METAL BATTLE og verður hún haldin í sjötta sinn á Íslandi í ár. Sex sveitir keppa um að komast á Wacken Open Air að spila og taka þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle þar sem til margs er að vinna. Vinsældir keppn- innar hafa aukist og keppa 40 þjóðir um að komast að en eingöngu er pláss fyrir 30 þjóðir í lokakeppninni. Þungarokkið virðir engin landamæri og meðal nýrra þjóða og svæða sem verða með í ár má nefna Jórdaníu, Lebanon og Dubai. Sérstök dómnefnd, skipuð bæði innlendum og erlendum aðilum, sér um að velja sigurvegarann hér á landi. Auk þessa munu áhorfendur hafa atkvæðisrétt og geta valið sínar uppáhaldssveitir. Þær sveitir sem hafa áhuga á að taka þátt skrá sig með því að senda kynningarpakka á netfangið: thoro- kol@gmail.com. Þær samþykkja um leið reglur keppninnar sem má finna á www.metal-battle.com. Umsóknar- frestur er til 15. febrúar. Þungarokkshátíðin WACKEN OPEN AIR Rokk Margir munu troða upp. Hver verður fulltrúi landsins? Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 akkar ök kjur Glæný lúða Glæný línuýsa Hrogn og lifur Súr hvalur og hákarl Dansarinn Anneli Ninja, sem hefur m.a. unnið fjölda alþjóðlegra keppna, heldur dansnámskeið um næstu helgi hjá Dansi Brynju Péturs. Þar mun hún kynna dansstílana sem nefnast Posing og Runway, Vogue New Way og Vogue Femme. Allir sem hafa áhuga á að ná tökum á nýjum dansstíl eru hvattir til að skrá sig. Anneli er meðlimur stærsta alþjóð- lega Vogue-danshóps í heimi sem nefn- ist The House of Ninja. Þess má geta að Vogue-dansstílinn hafa m.a. tónlistar- konurnar Madonna, Beyoncé, Lady Gaga, Fergie o.fl. notað í ríkum mæli. Anneli Ninja kennir hjá Dansi Brynju Péturs Stuð Dansarar í The House of Ninja. Kennir Vogue-dansstílinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.