Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Opið: 8 :00-18 :00 mánud . til fim mtud. 8:00-1 7:00 föstud aga Er bílrúðan brotin eða skemmd? Við erum sérfræðingar í bílrúðuskiptum og viðgerðum á minni rúðutjónum. Erum í samvinnu við öll tryggingafélög landsins. Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta launamun á milli starfsstétta. Mun- urinn á launum hér og á öðrum löndum á Norðurlöndum er mun minni meðal tekjuhærri hópanna en þeim tekjulægri. Þannig eru dag- vinnulaun stjórnenda á Íslandi í raun 5% hærri en að meðaltali ann- ars staðar á Norðurlöndunum. Laun stjórnenda hér eru hærri en í hinum löndunum að Finnlandi undan- skildu. Mestu munar hjá verkafólki Dagvinnulaun sérfræðinga eru um það bil 3-5% lægri hér á landi en í hinum löndunum. Hluta af þessum mun telur ASÍ að skýra megi með minni tekjujöfnunaráhrifum ís- lenska skattkerfisins, þar sem há- tekjur eru skattlagðar minna en annars ataðar á Norðurlöndum. Mestur munur á dagvinnulaunum er hins vegar gagnvart verkafólki og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki. Hér eru dagvinnulaun verkafólks allt að 30% lægri en að meðaltali í samanburðarlöndunum. Mestur er munurinn gagnvart Danmörku þar sem launin eru 42% hærri en hér en minnstur gagnvart Svíþjóð sem er 15% yfir okkar launum. Hjá þjón- ustu-, sölu- og afgreiðslufólki er þessi munur um 20%. Dagvinnulaun 20% lægri hér á landi  Könnun bendir til að stjórnendur á Íslandi séu launahærri BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Dagvinnulaun á öðrum löndum á Norðurlöndunum eru ríflega 60% hærri að meðaltali en hér á landi. Munurinn er minni þegar tekið hef- ur verið tillit til skatta og mismun- andi verðlags. Þá er munurinn um 20%. Könnun ASÍ bendir til að mun- urinn sé meiri hjá launalægri stétt- um en að stjórnendur hér hafi hærri dagvinnulaun en stjórnendur í hin- um löndunum. Könnun Alþýðusambands Íslands grundvallast á reglulegum dag- vinnulaunum á almennum vinnu- markaði á Norðurlöndunum á árinu 2013. Hún sýnir að laun á öðrum löndum á Norðurlöndunum eru tals- vert hærri en hér á landi og munar um 60% að meðaltali. Hæst eru launin í Danmörku og Noregi en munurinn er minni gagnvart Svíþjóð og Finnlandi. Lægra verðlag og skattar Að baki þessum mun er einnig talsverður munur á verðlagi þannig að launin endast ekki endilega jafn- vel, kaupmáttur er mismikill. Þegar ASÍ hefur leiðrétt gagnvart því minnkar launamunurinn verulega, einkum í Noregi og Danmörku, og verður að meðaltali 30% í stað 60% þegar launin eru borin saman hrá. Það er einnig staðreynd að tekju- skattur og útsvar ásamt framlögum til lífeyrismála er ólíkt á milli Norð- urlandanna og hvorttveggja yfirleitt hærra í hinum löndunum. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir sköttum minnkar munur á dagvinnulaunum enn frekar og verður um 20% að meðaltali. Mest munar um áhrif tekjuskattskerfisins í Danmörku og Noregi. Laun í Svíþjóð eru í þessum samanburði aðeins 7% hærri en á Íslandi, en 29% hærri í Danmörku. ASÍ vekur sérstaka athygli á Dagvinnutekjur 2013 Eftir skatta, leiðrétt fyrir verðlagi Fyrir skatta, leiðrétt fyrir verðlagi Óleiðrétt fyrir verðlagi Ísland Svíþjóð Danmörk Noregur Finnland 1.000.000 800.000 600.000 400.000 200.000 0 Heimild: ASÍ Ferðaþjónusta fatlaðra mætir nú mun tímanlegra til viðskiptavina sinna en í fyrstu viku ársins þegar nýja kerfið var tekið í notkun. Fyrstu vikuna á árinu mættu aðeins 75% bíla innan 10 mínútna frá pöntuðum tíma. Þá voru farnar 807 ferðir. Í annarri viku jókst ferðafjöldinn upp í 6.007 ferðir og þá voru 89,8% bíla komin innan 10 mínútna frá pöntuðum tíma. Talan stendur nú í stað í þriðju og fjórðu vikunni. Bílum sem komu of seint en þó inn- an 20 mínútna frá pantaðri ferð hefur einnig fækkað um 12% samkvæmt upplýsingum frá Strætó. Um 80 bílstjórar sinna verkefnum ferðaþjónustu fatlaðra fyrir Strætó og er unnið að því að auka við bíl- stjóraflotann. Sjö bílstjórar sögðu upp um miðjan mánuðinn. Gríðarlegt álag er á símaver Strætó en símaverið hefur tekið á móti 17.219 símtölum fyrstu fjórar vikur ársins eða rúmlega 4.300 sím- tölum á dag. Enda er það svo að þeg- ar hringt er í þjónustuverið er byrjað á að afsaka töfina – hún sé tilkomin vegna álags. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Strætó, segir að færð og annað geti haft áhrif á komur bílanna. „Við viljum byrja á því að vinna okkur upp úr 20 mínútna mark- inu og vinna okkur inn að 10 mínútna markinu, sem kallað er svigrúmið. Einn af hverjum 10 bílum er enn að koma á vitlausum tíma og það er of mikið,“ segir Guðrún og segir mikla vinnu fara fram bak við tjöldin þar sem unnið er að bætingu. Fyrstu fjórar vikur ársins var 221 villuskráning í kerfi Strætó. Þá mætti farþegi ekki í 675 tilfellum fyrstu fjór- ar vikurnar. benedikt@mbl.is Ferðaþjónusta fatlaðra bætir sig  Einn af hverjum 10 mætir enn of seint  Álag á símaverið Morgunblaðið/Kristinn Bætt sig Um 80 bílstjórar sinna verkefnum ferðaþjónustu fatlaðra. Verjendur Ólafs Ólafssonar, eins stærsta hluthafa Kaupþings fyrir bankahrun, og Magnúsar Guð- mundssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, fluttu mál skjólstæðinga sinna fyrir Hæstarétti í gær. Lauk þar með málflutningi fyrir Hæstarétti. Ólafur var dæmd- ur í héraði til þriggja ára fangels- isvistar fyrir að hafa milligöngu um kaup sjeiksins Al-Thani á hlutabréf- um í bankanum sem saksóknari hef- ur lýst sem sýndaviðskiptum. Í munnlegum málflutningi færði Þórólfur Jónsson, verjandi Ólafs, rök fyrir því að Ólafur hefði aldrei átt að hafa hagnað af viðskiptunum og framburður sakborninga hefði verið staðfastur hvað það varðaði. Einu gögnin um að umbjóðandi hans hefði haft hagnað væru framburður eins vitnis sem hefði verið reikull, óstöðugur og það hefði átt ríka per- sónulega hagsmuni af niðurstöðu málsins. Lýsti verjandinn aðkomu Ólafs að viðskiptunum en hann var í vinskap við al-Thani. Hafði fjárfest- ingafélag hans millgöngu um kaup sjeiksins á hlut í Kaupþingi að beiðni Hreiðars Más. Hreiðar Már hefði talið það bestu leiðina til að fá við- skiptin samþykkt hratt og örugg- lega. Aðkoma félags Ólafs hefði ver- ið til skamms tíma en til stóð að samið yrði um lánið að nýju eftir þrjá mánuði og þá yrði lánið tryggt með veði í fasteignum Al-Thani. Magnús var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í héraði. Kristín Edwald, verjandi Magnúsar, lýsti því ítrekað að umbjóðandi hennar hefði verið búsettur og starf- andi í Lúxemborg um árabil og öll sú háttsemi sem hann væri sakaður um hefði átt sér stað í Bretlandi, Lúx- emborg og Katar. Íslensk refsilög- gjöf næði því ekki yfir meint brot hans. Aðkoma Magnúsar að málinu hefði aðeins falist í því að al-Thani var viðskiptavinur Kaupþings í Lúx- emborg. Hann hefði hvorki haft frumkvæði að viðskiptunum né milli- göngu um lán Kaupþings til al-Thani vegna hlutabréfakaupanna. Hann hefði heldur ekki haft heimild til að skipta sér af tilkynningu sem gefin var út um kaup sjeiksins á hlut í bankanum. Morgunblaðið/Ómar Hæstiréttur Verjendur Ólafs Ólafssonar og Magnúsar Guðmundssonar fluttu mál skjólstæðinga sinna fyrir Hæstarétti í gær. Málflutningi í Al- Thani-máli lokið Al-Thani-málið » Seinni degi í málflutnings saksóknara og verjenda í al- Thani-málinu lauk í gær. » Magnús og Ólafur lýsa yfir sakleysi sínu. » Ólafur hafi ekki átt að hagn- ast á viðskiptunum. » Verjandi Magnúsar segir að ílensk refsilöggjöf nái ekki yfir meint brot hans. Niðurstaða könnunar ASÍ á heildartekjum lækna er sú að tekjur íslenskra lækna eru svip- aðar hér og í Svíþjóð en lægri en í hinum löndunum. Þegar þær hafa hins vegar verið leiðréttar gagnvart verðlagi og sköttum er niðurstaðan sú að læknar á Ís- landi eru með 15% hærri heildartekjur að meðaltali en kollegar þeirra annars staðar á Norðurlöndum. „Samkvæmt þessu er vand- séð að upphrópanir um yfirvof- andi landflótta læknastéttar- innar eigi rót að rekja til launakjara,“ ályktar ASÍ. Slá- andi sé að sjá að læknar hér á landi eru með ríflega fjórfaldar dagvinnutekjur verkafólks og launamunur þessara hópa mun meiri hér á landi en í nágranna- löndunum. Læknar hér launahærri SAMANBURÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.