Morgunblaðið - 28.01.2015, Side 39

Morgunblaðið - 28.01.2015, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Noom Diawara og Medi Sadoun, tveir af aðalleikurum Qu’est-ce qu’on a fait au Bon Dieu?, Ömur- legra brúðkaupa í íslenskri þýðingu, opnunarmyndar Franskrar kvik- myndahátíðar sem nú stendur yfir, eru heiðursgestir hátíðarinnar í ár og voru þeir önnum kafnir við að veita viðtöl föstudaginn sl. þegar blaðamann bar að garði á Hilton Reykjavík Nordica-hótelinu. Ömur- leg brúðkaup er sótsvört gaman- mynd og ádeila á fordóma. Í henni segir af frönskum heldri hjónum sem eiga fjórar dætur. Þrjár giftast mönnum sem hjónunum líst illa á þar sem þeir eru afkomendur inn- flytjenda og ekki kaþólikkar og þeg- ar fjórða dóttirin tilkynnir þeim að hún ætli að giftast þeldökkum manni sem rætur á að rekja til Fílabeins- strandarinnar er þeim öllum lokið. Þeldökka, verðandi tengdasoninn, Charles Koffi, leikur Diawara og Sadoun einn tengdasonanna þriggja, Rachid Benassem, sem jafnan er nefndur „arabinn“ í myndinni þegar svívirðingarnar ganga á milli tengdasonanna. Myndin naut gríðarlegra vinsælda í Frakklandi í fyrra, yfir 12 milljónir manna sáu hana sem er býsna gott í ljósi þess að í Frakklandi búa um 66 milljónir. Gengið langt í gríni Diawara og Sadoun eru eld- hressir, ekki að sjá á þeim að fjöldi viðtala hafi tæmt rafhlöðurnar. Þeir leika á als oddi í myndatöku fyrir Morgunblaðið og dást að útsýninu af áttundu hæð hótelsins, borgin vart sjáanleg fyrir snjókomu. Blaðamað- ur spyr þá félaga hvers vegna þeir haldi að myndin hafi notið svo mik- illa vinsælda í Frakklandi. „Af því að hún fjallar um hluti sem fólk kann- ast við og fólk þarf að hlæja og láta sér líða vel. Stjórnmálin í Frakk- landi voru afskaplega sorgleg í fyrra og fólk þurfti að gleyma vanda- málum sínum,“ segir Sadoun. Diaw- ara segir fólk forðast að ræða um það sem myndin fjalli um, þ.e. for- dóma og hjónabönd fólks af ólíkum uppruna. „Við fjöllum um þetta í myndinni, gerum grín að því og göngum mjög langt. Með því kom- umst við yfir hræðsluna og sjáum að það er engin ástæða til að óttast. Fólk áttar sig á því að það er í lagi að hlæja að gyðingnum, múslimanum, kaþólikkanum, Kínverjanum og svarta gaurnum. Þetta er til gamans gert sem er jákvætt,“ segir Diawara. – Mér skilst að um 20% hjóna- banda í Frakklandi séu milli fólks af ólíkum uppruna. Bíógestir hljóta því margir hverjir að þekkja umfjöll- unarefnið og kannast jafnvel við ákveðin samskipti sem eiga sér stað í myndinni? Sadoun og Diawara taka undir það. „Ungt fólk fer á myndina, ræðir við foreldra sína um hana og fer svo aftur á hana með þeim,“ segir Diaw- ara. Þannig skapist umræða milli ólíkra kynslóða um fordóma og slík hjónabönd. Diawara á rætur að rekja til Malí en Sadoun til Norður- Afríku og Ítalíu. „Ég er blandaður,“ segir Sadoun kíminn og Diawara bætir því við að þeir hafi báðir átt „margar hvítar kærustur“. Þarf að takast á við vandamálið – Hafið þið persónulega orðið fyr- ir kynþáttafordómum á borð við þá sem hæðst er að í myndinni? „Ekki ég en foreldrar mínir hafa orðið fyrir þeim,“ segir Sadoun og Diawara segist ekki hafa fundið fyrir fordómum í sinn garð. „Við höfum farið víða um Frakkland að kynna myndina og hitt fólk sem hefur sagt okkur sögur af fordómum í garð fólks af ólíkum uppruna sem gengið hefur í hjónaband,“ segir Sadoun. –Er það kannski sterkasta vopnið í baráttunni gegn fordómum, að gera stólpagrín að þeim? „Já, hugsanlega. Við tökumst á við vandamálið með ákveðnum hætti. Það þarf að takast á við það,“ segir Sadoun. Diawara tekur undir þetta og segir fáránleika fordóma blasa við þeim sem sjái myndina því for- dómarnir séu verulega ýktir í henni. „Ef þetta væri nær raunveruleik- anum væri myndin ekki fyndin,“ bendir hann á. Vanda skal valið – Hafa ykkur verið boðin bitastæð hlutverk eftir að myndin sló í gegn? „Já, við höfum fengið mörg til- boð,“ segir Sadoun og Diawara segir að nú sé lífið betra að því leyti að þeir þurfi ekki lengur að fara í leik- prufur, bara samþykkja tilboðin sem berast. Diawara skellihlær að þessu, stutt í grínið hjá honum enda maður- inn reyndur uppistandari, auk þess að vera leikari. „Þessi mynd beindi kastljósinu aftur að okkur,“ segir Diawara og Sadoun bætir við að leikarar verði að lesa handritin vel áður en þeir taki að sér hlutverk. „Það er hættulegt að taka að sér hlutverk á móti frægum, bandarísk- um leikara án þess að vita hvert hlutverkið er!“ segir Sadoun. Og talandi um fræga leikara þá bauðst Sadoun hlutverk í gaman- mynd sem einn þekktasti leikari Frakka, Gérard Depardieu, fer með eitt af aðalhlutverkunum í og nefnist A Mighty Team. Tökur á henni hefj- ast eftir mánuð og fer Sadoun með hlutverk fremsta knattspyrnumanns Frakka sem kominn er á endastöð á ferli sínum, hefur brennt allar brýr að baki sér með vafasömu líferni. Hann snýr aftur á æskuslóðirnar til að sættast við föður sinn. Sadoun segist þurfa að spila fótbolta í mynd- inni og spurður að því hvort hann sé lipur knattspyrnumaður hlær hann og segist hafa verið góður þegar hann var ungur. „Ég er orðinn gam- all, fertugur,“ segir Sadoun og blaðamaður mótmælir, segist sjálfur vera fertugur og alls ekki gamall. Sadoun þykist ekki heyra það. Hvað næstu verkefni Diawara varðar segist hann hefja uppistand í næsta mánuði, eins manns sýningu í París og í júní hefjist tökur á kvik- mynd þar sem sögusviðið verði stór- verslunin Galeries Lafayette í París. Sú verði blanda gaman- og drama- myndar og segi af fólki á ferli í versl- uninni. Hans hlutverk sé í spaugi- legri kantinum. Nema hvað. „Fólk þarf að hlæja“  Tveir af aðalleikurum Ömurlegra brúðkaupa ræða um fordóma og mikilvægi þess að geta hlegið að þeim Morgunblaðið/Eggert Hressir Leikararnir Medi Sadoun og Noom Diawara eru góðir vinir. Fjöldi gesta sem heimsótt hefur rústir hinnar fornu rómversku borgar Pompeii í áranna rás hefur stungið á sig gripum og brotum sem þeir hafa fundið í borginni sem grófst undir ösku frá eldfjallinu Vesúvíusi árið 79. Margir hafa séð eftir því að hafa tekið þessa muni og hafa skilað þeim. Nú er Massimo Osanna, sem hefur umsjón með Pompeii, að und- irbúa sýningu á gripum sem hefur verið stolið frá Pompeii og skilað. Í samtali við The Art Newspaper segir hún hundruðum gripa hafa verið skilað. Athygli vakti í haust þegar fullorðin kanadísk kona kom til Pompeii með leirgrímu sem hún hirti 50 árum fyrr á brúðkaups- ferðalagi sínu. Osanna segir hlutina oft berast í umslögum eða pökkum, marga með bréfi þar sem beðist er afsökunar á athæfinu. Hún segir yf- irleitt ekki um mikilvægar forn- minjar að ræða en sýningin verði engu að síður athyglisverð. Sýna gripi sem stolið var frá Pompeii Öskudauði Gifsafsteypa líkama eins þeirra sem fórust í Pompeii árið 79. Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 31/1 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 15/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13 Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Mið 28/1 kl. 20:00 Fös 6/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Sun 1/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fim 5/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00 Aðeins sýnt út febrúar Kenneth Máni (Litla sviðið) Fim 29/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Öldin okkar (Nýja sviðið) Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 1/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 17:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 5 stjörnu sýning að mati gagnrýnanda Beint í æð (Stóra sviðið) Fim 29/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Sprenghlægilegur farsi Bláskjár (Litla sviðið) Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00 Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi Ekki hætta að anda (Litla sviðið) Mið 28/1 kl. 20:00 6.k. Fös 6/2 kl. 20:00 9.k Sun 15/2 kl. 20:00 11.k Lau 31/1 kl. 20:00 Aukas. Mið 11/2 kl. 20:00 aukas. Mið 18/2 kl. 20:00 12.k Sun 1/2 kl. 20:00 7.k. Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Fim 19/2 kl. 20:00 Fim 5/2 kl. 20:00 8.k. Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas. Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.