Morgunblaðið - 28.01.2015, Síða 41

Morgunblaðið - 28.01.2015, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 48 RAMMA STÆRSTA OPNUNAR- HELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI! E.F.I -MBL VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! 2 VIKUR Á TOPPNUM! BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND www.laugarasbio.isSími: 553-2075 SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS - bara lúxus æfingunum, kyrrar tjarnir og enda- lausir malbikaðir sveitavegir (og hvergi bíl að sjá). Þetta er ekki veigamikil saga og útkoman fyrirsjáanleg, en þó er myndin býsna vel heppnuð. Mestu um ræður fyrirtaks leikur Fabiens Heraud, en einnig er landslag myndarinnar augnakonfekt og margt mjög vel gert í myndatöku, til að mynda það þegar þúsundir stinga sér til sunds frá ströndinni í Nice. Jacques Gamblin sýnir lítil tilþrif í leik, persóna hans er óttalegur tré- hestur tilfinningalega, en hann er í fantaformi sem kemur sér vel þegar æfingar hefjast. Persóna Alexöndru Lamy er klisjukennd, Pablo Pauly stendur sig vel sem félagi Juliens þó ekki sé hans hlutverk veigamikið. Barði Jóhannsson semur tónlist- ina í myndinni og gerir það vel, en í spjalli að lokinni sýningu myndar- innar kom fram að lög eftir aðra í myndinni voru ekki valin af honum. Hann ber því ekki ábyrgð á því þeg- ar Hoppípolla hljómar undir lok myndarinnar, vissulega framúrskar- andi lag, en þó að Íslendingar kími þegar Jónsi syngur tiltekna texta línu á tilteknum stað, þá er inntak lagsins ekki svo fjarri inntaki mynd- arinnar þegar grannt er skoðað og lagið smellpassar. Af öllum kröftum er til þess fallin að láta öllum líða vel, hæfilega ævin- týraleg og hæfilega raunsæ, en rétt að geta þess að hún sækir efnivið í sögu feðganna Dicks og Ricks Hoyt. Þeir hafa þreytt 72 maraþon saman og lokið þríþrautarkeppni sex sinn- um, en Rick Hoyt er einmitt með heilalömun og þeir feðgar bera sig eins að og Paul og Julien – stundum er raunveruleikinn ævintýralegri en nokkur kvikmynd. Kraftar Af öllum kröftum sækir efnivið í sögu feðganna Dicks og Ricks Hoyt sem hafa þreytt 72 maraþon saman og lokið þríþrautarkeppni sex sinnum. Leikhúskaffi nefnist ný dag- skrárröð sem hefst í Gerðubergi í kvöld kl. 20. Um er að ræða sam- starfsverkefni Borgarbókasafnsins og Þjóðleikhússins, en á vormisseri verða alls fjórar leiksýningar á fjöl- um Þjóðleikhússins teknar fyrir. „Í fyrsta Leikhúskaffi vormiss- eris verður fjallað um leiksýn- inguna Ofsa sem leikhópurinn Aldrei óstelandi sýnir í samstarfi við Þjóðleikhúsið í Kassanum um þessar mundir fyrir fullu húsi og byggð er á samnefndri bók Einars Kárasonar,“ segir m.a. í tilkynn- ingu. Marta Nordal, leikstjóri og höfundur leikgerðar, kemur í Leik- húskaffi ásamt leikurunum Eddu Björgu Eyjólfsdóttur og Stefáni Halli Stefánssyni, sem og Einari Kárasyni rithöfundi. Þau munu segja frá verkinu, vinnuaðferðum og ferlinu frá skáldsögu til upp- setningar á leiksviði. Þá gefst áhorfendum kostur á að bera fram spurningar. Næstu sýningar sem til umfjöllunar verða eru Sjálfstætt fólk, Segulsvið og Fjalla-Eyvindur. Aðgangur er ókeypis. Ofsi Úr uppfærslu Aldrei óstelandi. Leikhúskaffi í Gerðubergi Tónlistarmaður- inn Ásgeir Trausti á eitt af bestu lögum árs- ins 2014 frá því í nóvember sl., skv. lista einnar stærstu útvarps- stöðvar Ástralíu, Triple J. Lag hans, „King and Cross“, eða „Leyndarmál“ eins og það heitir í íslenskri útgáfu, er í 10. sæti listans. Rúmlega tvær milljónir hlustenda tóku þátt í kosningu um bestu lögin í fyrra. Ásgeir og hljómsveit hans er ný- komin úr tónleikaferðalagi um Ástralíu og hélt m.a. tvenna tón- leika í stóra salnum í óperuhúsinu í Sydney 7. janúar sl. 6. febrúar hefst tónleikaferð Ásgeirs og félaga um Bandaríkin og Kanada. Ásgeir í 10. sæti á lagalista Triple J Ásgeir Trausti Einarsson Opnað hefur verið fyrir skráningu í hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle 2015 og munu sex hljóm- sveitir keppa um að koma fram á þungarokkshátíðinni Wacken Open Air í Þýskalandi og taka þar þátt í lokakeppni Wacken Metal. Hátíðin ein sú stærsta og virtasta í þunga- rokksheiminum og því til mikils að vinna. Wacken stendur árlega fyrir þungarokkshljómsveitakeppninni og verður keppnin á Íslandi sú sjötta í röðinni. Dómnefnd skipuð innlendum og erlendum aðilum mun velja sigurvegara keppninnar á Íslandi. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2015. Þær hljómsveitir sem hafa áhuga á því að taka þátt eru beðnar að skrá sig með því að senda kynning- arpakka á netfangið thorokol@ gmail.com. Þær þurfa um leið að samþykkja reglur keppninnar sem eru á heimasíðu hennar, www.me- tal-battle.com. Kynningarpakkinn þarf að innihalda a.m.k. 3-4 lög á mp3-formi eða sambærilegu, upp- lýsingarsíðu á ensku með kynningu á hljómsveit og upplýsingar um tengilið, ljósmynd af hljómsveitinni og merki hennar og merkja póstinn með nafni sveitar og „Metal Battle 2015: Kynningarpakki“. Sérstök nefnd velur sex sveitir til keppni. Þungt Ophidian I, sigurvegari Wac- ken-keppninnar á Íslandi árið 2013, á sviði á Wacken-hátíðinni í Þýskalandi. Opnað fyrir skráningu í Wacken Fyrsta fræðslukvöld Barokksmiðju Hólastiftis á vormisseri 2015 verð- ur haldið í kvöld kl. 20 í kapellu Akureyrarkirkju. „Þar er athvarf virginals Barokksmiðjunnar og þar eru allir velkomnir til að sjá hljóð- færið og kynnast sögu sembal- hljóðfæra. Eyþór Ingi Jónsson og Pétur Halldórsson stikla á stóru í þessari sögu, sýna myndir, leika tóndæmi og Eyþór leikur á virginalinn góða sem Barokk- smiðjan eign- aðist árið 2013. Sungið verður með undirleik sembalsins og þar kemur Elvý G. Hreinsdóttir til liðs við þá Eyþór og Pétur.“ Komdu og sjáðu virginalinn! Eyþór Ingi Jónsson Nautilus, nýtt verk fyrir kontra- bassaflautu eftir Steingrím Þórhalls- son, verður frumflutt á Háskóla- tónleikum í Hátíðasal HÍ í dag kl. 12.30, auk nýlegra verka eftir Bill Douglas, Mike Mower, Adrienne Al- bert og Gary Schocker. Á tónleikunum leika Pamela De Sensi flautuleikari og Eva Þyri Hilm- arsdóttir. Heiti verks Steingríms, Nautilus, vísar til hins fræga ímynd- aða kafbáts úr sögu Jules Verne, Sæ- faranum eða Vingt mille lieuges sous les mers á frummálinu. Í honum ferð- aðist Nemo kafteinn neðansjávar, eins og frægt er orðið. „Tónverkið er í einum kafla og byggist upp á þann hátt að hver hluti heldur sig við ákveðið tónsvið hvors hljóðfæris sem síðan fer neðar og neðar á tón- sviðinu þar til dýpstu nótum er náð, þá byrja hljóðfærin aftur að leita yfirborðs og hækka í tónsviði,“ segir um verkið í tilkynningu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Nýtt íslenskt verk frumflutt í HÍ Flytjendur Pamela og Eva Þyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.