Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Síða 15
myndir og eina finnska. Íslensku
myndirnar eru Reykjavík eftir Ás-
grím Sverrisson og Albatross eftir
nýliðann Snævar Sölvason.
Mynd um norðurslóðir
Af öðrum verkefnum sem eru
skemmra á veg komin má nefna
heimildarmynd um norðurslóðir
sem Ingvar vinnur að með Haraldi
Sigurðssyni, jarð- og eldfjallafræð-
ingi, og Ragnari Axelssyni ljós-
myndara.
„Þetta er meiriháttar verkefni og
forréttindi að vinna með RAX og
Haraldi. Við sigldum um Scoresby-
sund í haust og tókum upp „trailer“
til að kynna fyrir fjárfestum. Fjár-
mögnun gengur vel en við erum að
tala um sex milljónir dollara, þannig
að þetta tekur tíma og verður ekki
gert einvörðungu hér á landi.“
Af leiknum kvikmyndum er þegar
hafinn undirbúningur að næstu
mynd Baldvins Z sem kallast Kon-
talgínbörnin en stefnt er að því að
frumsýna hana árið 2016. Þá mun
Ingvar framleiða nýjustu mynd
finnska leikstjórans Aku Louhimies
sem nefnist Sendiherrann og bygg-
ist á sögu eftir Braga Ólafsson.
Svo skemmtilega vill til að Bald-
vin Z ber einmitt að garði meðan
við sitjum að spjalli og ekki er úr
vegi að spyrja leikstjórann út í
samstarfið við Ingvar. „Það er æv-
intýri að vinna með honum,“ segir
hann kankvís en bætir svo við: „Ég
treysti þessum manni fyrir lífi
mínu. Hann er gegnheill og stend-
ur við allt sem hann segir. Ég væri
ekki þar sem ég er í dag hefði ég
ekki kynnst honum.“
Svo mörg voru þau orð.
Ingvar er mikill áhugamaður um sjóböð. Hér svamlar hann í sjónum við Grænland, ásamt Sigurði Friðrikssyni félaga sínum.
4.1. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Ingvar hefur víða komið á ferð-
um sínum sem kvikmynda-
framleiðandi. Fyrir nokkrum
árum var hann í Búlgaríu vegna
myndarinnar Astrópíu og hafði
þá veður af því að hægt væri að
kaupa ljónsunga í dýragarði í
nálægum bæ, Razgrad, sem
hljómaði í eyrum Íslendingsins
eins og Rassgat. Eitthvað sem
hann fann sig knúinn til að
kanna betur.
Við komuna til Razgrad tók
á móti Ingvari maður að nafni
Ivan Ivanov, doktor í þokkabót,
og á því augnabliki viðurkennir
Ingvar að sér hafi liðið eins og
hann væri staddur í Tinnabók-
unum. Ljónsungarnir reyndust
vera á viðráðanlegu verði og
festi Ingvar kaup á tveimur sem
dr. Ivanov geymir fyrir hann.
Ingvar kannaði raunar
möguleika á því að flytja ljón-
sungana, sem heita þeim ágætu
nöfnum Bruce og Lee, inn til
landsins og mætti skilningi og
jafnvel áhuga hjá stjórnvöldum.
Málið strandaði hins vegar á
húsbændum í Húsdýragarð-
inum sem máttu ekki heyra á
ljónin minnst – enda langsótt
að skilgreina ljón sem húsdýr.
Það er þá helst í Kardi-
mommubænum.
Á tvö ljón
í Razgrad
Félagarnir Bruce og Lee una hag
sínum vel í Razgrad.
Starf kvikmyndaframleiðand-
ans er erilsamt og Ingvar not-
ar hvert tækifæri sem gefst til
að brjóta upp daginn með því
að skella sér í sjóbað þegar
hann er hérna heima. „Ég
byrjaði á þessu fyrir átta árum
og líkar afskaplega vel. Sjóbað
er allra meina bót og ég fer
helst daglega, hvernig sem
viðrar og hvort sem hitastigið
er ein gráða eða tíu gráður.
Sjórinn er bestur en úti í
Þýskalandi fer ég í köld stöðu-
vötn.“
Ingvar upplýsir að sjóböðin
séu partur af lífsstílsbreytingu
en hann tók líf sitt í gegn fyrir
átta árum. Hætti að drekka
áfengi, lagaði mataræðið og
fór að stunda íþróttir og and-
lega íhugun af meira kappi en
áður. „Þetta er með betri
ákvörðunum sem ég hef tekið
um dagana. Þrekið er meira
og heilsan almennt miklu
betri, bæði andlega og lík-
amlega.“
Baðar sig
daglega
í sjónum