Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Blaðsíða 50
Sjálfsmyndir ársins 2014
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.1. 2015
Járnselfie
Þessir stálheppnu nemendur í Gross-Gerau í vest-
urhluta Þýskalands fengu að smella af einni sjálfs-
mynd af sér með valdamestu konu í heimi, járnkansl-
aranum sjálfum, Angelu Merkel.
Kysstu mig, Schweini!
Þýsku knattsnillingarnir, hinn skotfasti Podolski og leikstjórnandinn Schwein-
steiger, brostu breitt í snjallsímalinsu þess fyrrnefnda eftir að hafa farið á kost-
um á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu og sigrað loks argentínska snillinginn
Messi og félaga hans í úrslitaleiknum 1-0.
Brostu, Baby
Justin Bieber, ein stærsta poppstjarna heims, er vanur því að
sitja fyrir á ljósmyndum og átti ekki erfitt með að kreista
fram bros á selfie-mynd móður sinnar á NBA-leik fyrr á
þessu ári. Hver veit nema myndin hafi endað á Instagram-
síðu Biebers og náð til milljóna.
Leiðtoginn
og fólkið
David Cameron,
forsætisráðherra
Bretlands, heldur
hér á síma eins og
sannur fagmaður við
selfie-myndatöku
ásamt íbúum í Har-
row, London. Hann
hafði þá verið á
ferðalagi um borgina
ásamt Boris Johnson
borgarstjóra. Came-
ron virðist reyndar
hafa einbeitt sér svo
við myndatökuna að
hann hafi gleymt að
brosa.
Andleg fyrirsæta
Dalai Lama tók þátt í ráðstefnu um mannlega hamingju í Washington í febrúar
og heppnum þátttakanda úr sal hlotnaðist sá heiður að fá af sér selfie með
andlega leiðtoganum.
Af hverjum er myndin?
Tékkneska fyrirsætan Petra
Nemcova nýtti tækifærið
á kvikmyndahátíðinni
í Cannes og smellti af selfie
á rauða dreglinum. Á með-
an smelltu ljósmyndarar af
henni óteljandi ljósmyndum
í bakgrunni og úr varð
næstum skáldlegt augnablik.
Snöggur og brosmildur
Skærasta stjarna frjálsíþrótta-
heimsins, Usain Bolt, tók selfie á
síma aðdáanda eftir sigur í 4x100
metra hlaupi á Samveldisleikunum
í Skotlandi í ágúst. Bolt er þekktur
fyrir uppátæki sín og nýtur iðulega
mikilla vinsælda meðal áhorfenda.