Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
HREINAR LÍNUR
Yumi
2 saman
28.400
Dione
98.700
Dixie 90x45
48.300
Smile sófi 217 cm - 199.800
Betina skenkur 200 cm kr. 131.000
Dixie 55x35
29.500
Dimond
26.900
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Breytingar geta átt við allt, frá
því að færa húsgögn út í það að skipta
um starfsvettvang. Hugsaðu bara málið
svolítið betur.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er engin ástæða til þess að
láta hugfallast þótt á móti blási um stund.
Hlustaðu á aðra áður en þú kveður upp
þinn eigin dóm.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur skýrar hugmyndir
varðandi vinnuna og ákveðnar skoðanir
á því hvernig verja eigi peningum. Gerðu
því ráðstafanir fram í tímann. Enginn vill
kaupa hann.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert fullur af frábærum og skap-
andi hugmyndum núna. Samræður, stutt
ferðalög og viðskipti geta skilað þér
árangri.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinnan verður tómt strit í dag og yfir-
maðurinn einstaklega önugur í viðmóti.
Farðu þér samt að engu óðslega.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hugur þinn er reikandi og því setja
dagdraumar svip sinn á daginn hjá þér.
En hófsemi hentar þér miklu betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Alls konar gylliboð eru í gangi. Gott
mannorð þitt mun gera þér auðveldara
að tengja við fólk sem þig langar til að
kynnast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sérðu pappírshrúguna á borð-
inu þínu? Þig vantar ekki einkaritara, heldur
klukkutíma í einrúmi og bunka af spaldsk-
rám og bréfamöppum. Gefðu þér síðan
tíma til að leika þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Finndu þér einhvern sem þú
getur deilt hugsunum þínum með. Hverjar
sem undirtektirnar verða máttu vita að þú
hefur lagt þitt af mörkum og mátt vel við
una.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Kannski bregstu ekki alltaf við
á hinn fullkomna hátt en þú getur alltaf
þroskast. Reyndu að bera þig vel þótt
eitthvað bjáti á og leystu málin sjálfur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert fullur af krafti og iðar í
skinninu eftir að koma öllu því í verk sem
hefur verið á biðlistanum. Annaðhvort
bakkar maður eða gefur sig allan.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gefðu þér tíma til að vera einn með
sjálfum þér og rækta andlegu hliðina. Ef
svo er skaltu taka þér boga og ör í hönd
og búa til rómantískar aðstæður sjálfur.
Síðasta laugardagsgáta var einsog oft endranær eftir Guð-
mund Arnfinnsson:
Um hafið skútu bylgjan ber.
Býr þar sjófuglanna ger.
Þetta kennt við orku er.
Oddbjarnar fyrr þöktu sker.
Helgi R. Einarsson segist hafa
lagt hausinn í bleyti og þetta sé út-
koman:
Heilabrot um hugann fer
um hafið, fugla, orku og sker.
Ljóss í myrkri leitað er.
Lausnarorðið því er ver.
Þessi er lausn Hörpu á Hjarðar-
felli:
Hafskenning mun vera ver
Víða eggver sjá má hér
Einnig stærðar orkuver
Oddbjarnar- verbúða -sker
Guðmundur svarar sjálfum sér
svona:
Skútu bylgjan ber um ver.
Býr í veri fuglager.
Þörf hér orku þykja ver.
Þöktu ver Oddbjarnarsker.
Og lætur fylgja limru um áfall
Vilmundar:
Er verinn, hann Vilmundur sveri,
bað Veru, hún upp á sig sneri,
og hryggbraut þann
heiðursmann
- en hryggbrotið illa greri.
Guðmundur bætir síðan við:
Enn er ég við heygarðshornið,
heilann brýt í erg og gríð,
maula gjarnan morgunkornið,
meðan ég fæst við gátusmíð.
Og þá kemur gáta:
Rolluskjáta þrjósk og þver.
Þetta er mikil sveðja.
Nál, sem varla nothæf er.
Næsta ferleg beðja.
Hallmundur Kristinsson yrkir að
gefnu tilefni:
Þótt músin í mjólkinni busli
og minka í varpa ég husli
og mykjan sé mjúk
og minni á kúk
er allsekkert allt í rusli!
Og enn yrkir Hallmundur:
Í flutningum munu þeir mjatla það
svo megi nú kannski atla það
að byrji í bráð
að bæta sitt ráð
Ferðaþjónustan fatlaða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um Vilmund svera
og Oddbjarnarsker
Í klípu
„EF VIÐ LENDUM Í VANDRÆÐUM, ÞÁ MUN
LÁRUS HÉRNA BARA GÚGLA ÞAÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÆTTI ÉG NOTA SÍMANN ÞINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú kveður þitt
gamla líf.
MÉR
LEIÐIST
FÖRUM EITTHVAÐ ÞAR
SEM VIÐ GETUM HITT
EINHVERJAR KVENKYNS
SOKKABRÚÐUR!
ÉG SKAL
SJÁ UM
AÐ TALA
ÉG SKAL REYNA
AÐ VERA EKKI
FYRIR ÞÉR
ERTU MEÐ HLJÓÐLÁTT HERBERGI FYRIR ÞÁ SEM VILJA EKKI SKEMMTA SÉR?
Að skafa snjó af bíl er list sem ekkier á allra færi. Víkverji hefur
aðeins verið að líta í kringum sig og
horfa á hvernig fólk ber sig að við
verknaðinn.
Það má eiginlega flokka skafarana
í tvo flokka; þá sem hafa gríðarlega
mikinn metnað og leysa verkefnið
einstaklega vel af hendi en í hinum
flokknum eru þeir sem rétt skafa
framrúðuna og rúðuna við bíl-
stjórasætið, til að teljast ökuhæfir í
umferðinni. Þeir sjá rétt fram fyrir
sig og til hliðar ef þeir eru heppnir.
x x x
Í fyrri flokkinn fer fólk sem skefurallan snjóinn af bílnum; þar með
talið allan snjóinn af þaki bílsins og
húddinu og að sjálfsögðu ljósunum
líka. Þá skafa þessir einstaklingar
líka allar rúður bílsins, jafnt þær
sem eru við aftursætin sem enginn
situr við sem þyrfti strangt til tekið
ekki að skafa.
Ef það eru engir farþegar í aft-
ursætinu af hverju er þetta fólk að
skafa þær rúður? Það þarf ekki að
skafa þær – en þessu hafa snjóskaf-
ararnir af guðsnáð ekki ennþá áttað
sig á. Þeir taka þetta til sín sem eiga.
x x x
Fólkið sem er í þessum fyrstaflokki er virkilega vandað og
samviskusamt fram í fingurgóma.
Eftir því sem Víkverji veltir þessu
meira fyrir sér þá heldur hann að
skafararnir af guðsnáð búi yfir þeim
hæfileika að sjá fram í tímann.
Þeir hafa litið út um gluggann áð-
ur en þeir halda til og frá vinnu og
hafa reiknað með þeim tíma sem fer
í að skafa bílinn. Þá geta þeir leyft
sér að fara með allt að því tann-
bursta yfir bílinn. Kannski hafa þeir
líka fylgst með veðurfréttum kvöldið
áður og undirbúið sig fyrir komandi
átök við snjómoksturinn.
x x x
Í flokkinn þar sem fólkið rétt skefurbílinn; eru kærulausu típurnar.
Þær eru ekki endilega búnar að sjá
of marga leiki fram í tímann og telja
sjálfum sér trú um að þær hafi ekki
tíma til að skafa. Kannski hrjáir leti
þetta fólk en hvað veit Víkverji svo
sem; þar sem hann er ofurskafari af
guðsnáð. víkverji@mbl.is
Víkverji
Verið miskunnsöm eins og faðir
yðar er miskunnsamur.
(Lúkasarguðspjall 6:36)