Morgunblaðið - 25.03.2015, Page 27
„norðandeildar“, 1975 og leikstýrði
öllum sýningum þess 1975-78, stofn-
aði einnig og starfaði með Alþýðuleik-
húsinu, „sunnandeild“, 1977-82 og
leikstýrði fjölda sýninga á vegum
þess, kenndi og leikstýrði við Leik-
listarskóla Íslands 1977-80 og leik-
stýrði auk þess ýmsum sýningum við
atvinnu- og áhugamannaleikhús á ár-
unum 1980-87 og við Íslensku
óperuna 1982-94.
Þórhildur var fastráðinn leikstjóri
við Þjóðleikhúsið 1991-93 og var leik-
hússtjóri Borgarleikhússins 1996-
2000. Hún hefur starfað sem leik-
stjóri síðan við öll atvinnuleikhús á Ís-
landi, Íslensku óperuna, útvarp og
sjónvarp.
Þórhildur leikstýrði kvikmyndinni
Stella í orlofi eftir Guðnýju Halldórs-
dóttur 1985, var aðstoðarleikstjóri og
framkvæmdastjóri kvikmyndarinnar
Hrafninn flýgur, eftir Hrafn Gunn-
laugsson, 1983.
Þórhildur var formaður Leiklistar-
sambands Íslands 1997-2000, sat í
stjórn Norræna leiklistarsambands-
ins, í skólanefnd Leiklistarskóla Ís-
lands 1996-2000, sat í fulltrúaráði
Listahátíðar Reykjavíkur, í nefndum
um endurskoðun á leiklistarlögum og
lögum um Þjóðleikhús, sat í stjórn
Bandalags íslenskra listamanna, var
formaður Félags leikstjóra á Íslandi í
fjögur ár.
Þórhildur var einn af stofnendum
Kvennaframboðsins 1982 og Kvenna-
listans 1983, var varaborgarfulltrúi
1982-86 og sat í félagsmálaráði
Reykjavíkurborgar, var kosninga-
stjóri Kvennalistans í Reykjavík í al-
þingiskosningunum 1983 og 1987, var
alþingiskona Samtaka um kvenna-
lista 1987-91 og varaþingkona 1983-
87 og 1991-95, formaður þingflokks
Samtaka um kvennalista 1987-88, sat
í ýmsum nefndum á Alþingi, sótti
þing SÞ og var fulltrúi í Evrópu-
ráðinu.
Fjölskylda
Eiginmaður Þórhildar er Arnar
Jónsson, f. 21.1. 1943, leikari. Hann er
sonur Arnþrúðar Ingimarsdóttur, f.
12.7. 1918, d. 22.4. 1993, starfskonu,
og Jóns Kristinssonar, f. 2.7. 1916, d.
16.8. 2009, framkvæmdastjóra dval-
arheimilisins Hlíðar á Akureyri.
Börn Arnars og Þórhildar eru Guð-
rún Helga, f. 15.7. 1964, d. 16.5. 2003,
var flugfreyja, nuddari, dagskrár-
gerðarmaður og fleira, var gift Geir
Sveinssyni, fyrrverandi handknatt-
leiksmanni og nú þjálfara, og er son-
ur þeirra Arnar Sveinn og fóstur-
dóttir Ragnheiður Katrín; Sólveig, f.
26.1. 1973, leikkona en maður hennar
er Jósef Halldórsson, arkitekt og
leikmyndahönnuður, og eru synir
þeirra Halldór Dagur, Arnar og Eg-
ill; Þorleifur Örn, f. 15.7. 1978, leik-
stjóri en kona hans er Anna Rún
Tryggvadóttir myndlistarkona og er
sonur hennar Flóki en sonur þeirra
er Tryggvi Þór; Oddný, f. 1.5. 1980,
verkefnastjóri en maður hennar er
Rögnvaldur Bjarnason tölvufræð-
ingur, og Jón Magnús, f. 10.8. 1982,
leikari og nemi, en sonur hans er
Viktor Hugi.
Systkini Þórhildar eru Erna, f. 9.4.
1939, d. 7.3. 1994, var félagsráðgjafi;
Bergur, f. 12.7. 1942, fyrrv. hafn-
arstjóri Reykjavíkurhafnar, og Egg-
ert, f. 18.7. 1952, leikari og tónlist-
armaður.
Foreldrar Þórhildar voru Guðrún
Bergsdóttir, f. á Siglufirði 4.12. 1915,
d. 9.6. 1992, húsfreyja, og Þorleifur
Guðmundsson, f. á Hróarsstöðum í
Öxarfirði 11.11. 1911, d. 18.9. 1992,
skrifstofustjóri og kaupsýslumaður.
Úr frændgarði Þórhildar Þorleifsdóttur
Þórhildur
Þorleifsdóttir
Guðrún Sólveig Bjarnadóttir
húsfr. í Laugardælum
Eggert Benediktsson
b.og alþm. í Laugardælum í Flóa
Rósa Sigríður Eggertsdóttir
kennari og listakona á Siglufirði
Bergur Sigurðsson
kennari á Siglufirði
Guðrún Bergsdóttir
húsfr. í Rvík
Solveig Pétursdóttir
húsfr. í Fossgerði
Sigurður Þorleifsson
b. í Fossgerði á Berufjarðarstr., af ætt
Jóns Steingrímssonar „eldprests“
Benedikta Eggertsdóttir Haukdal
húsfr. í Flatey og á Bergþórshvoli
Eggert Haukdal fyrrv.
alþm.
Benedikt Bogason
verkfr. og alþm.
Bogi Eggertsson b. í
Laugardælum og verkstj. í Rvík
Sigríður Sigmundsdóttir
húsfr. á Vestara-Landi
Jón Jónsson
b. á Vestara-Landi í Öxarfirði
Sigmunda Jónsdóttir
húsfr. á Hróarsstöðum
Guðmundur Jónasson
b. á Hróarsstöðum í Öxarfirði
Þorleifur Guðmundsson
kaupsýslum. í Rvík
Jónas Guðmundsson
b. á Hvarfi í Víðidal
Kristín
Grímsdóttir
húsfr. í
Stykkishólmi
og Rvík
Ásgeir Eyþórsson
kaupm. í Kóranesi
og Straumfirði,
síðar verslunarm.
í Rvík
Sigríður Grímsdóttir
dóttir Gríms Pálssonar
prófasts á Helgafelli, bróður
Margrétar, formóður Ólafs
Thors forsætisráðherra
Ragnar Ásgeirsson
ráðunautur og
rithöfundur
Úlfur Ragnarsson
læknir
Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstj.
Vala Thoroddsen
forsætisráðherrafrú
Björg Ásgeirsdóttir
sendiherrafrú
Ásgeir
Ásgeirsson
forsætisráðherra
og forseti Íslands
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Sigurður fæddist í Stykkishólmi25.3. 1897. Foreldrar hansvoru Ágúst Þórarinsson,
verslunarstjóri Tang & Riis, og k.h.,
Ásgerður Arnfinsdóttir húsfreyja.
Ágúst var bróðir Árna, prófasts á
Stóra-Hrauni, sem meistari Þór-
bergur gerði ódauðlegan með ævi-
sögu Árna. Magnús Andrésson,
alþm. í Syðra- Langholti, var móð-
urafi þeirra og Tómas Sæmundsson
Fjölnismaður ömmubróðir.
Eiginkona Sigurðar var Ingibjörg
Helgadóttir frá Karlsskála við Reyð-
arfjörð og eignuðust þau einn son,
Ágúst framkvæmdastjóra sem fetaði
í fótspor föður síns.
Sigurður lauk prófum frá versl-
unarskóla í Kaupmannahöfn, var
fulltrúi hjá Tang og Riis-verslun í
Stykkishólmi til 1931 en 1932 keypti
hann allar fasteignir verslunarinnar
og stundaði síðan verslunarrekstur,
útgerð og fiskvinnslu. Hann stofnaði
Refarækt Stykkishólms, eitt stærsta
loðdýrabú landsins á sinni tíð, og
nýtti fiskúrgang, hestakjöt, lunda og
selkjöt til refafóðursins, fékkst einn-
ig við minkarækt, en loðdýtarækt
hans var vel þekkt á fjórða áratugn-
um. Afurðarverð lækkaði þó mjög á
stríðs- og eftirstríðsárunum og loð-
dýraræktinni lauk áríð 1952.
Sigurður rak Bakaríið í Stykk-
ishólmi um skeið, starfrækti Sam-
komuhúsið og átti hlut í Bifreiðastöð
Stykkishólms, reisti frystihús á
stríðsárunum og var þá með fimm
báta í útgerð. Jafnframt tók hann
þátt í útgerð á Grundarfirði, Hellis-
sandi og síðar á Rifi. Árið 1949 tók til
starfa fiskimjölsverksmiðja sem
hann reisti og um svipað leyti stofn-
setti hann Netastofu. Þá var hann
driffjöður í Skipasmíðastöð Stykk-
ishólms.
Sigurður var alþm. Snæfellinga
1949-59 fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og
alþm. Vesturlands 1959-67. Hann
var einn stofnenda SH, sat þar í
stjórn, í stjórn Síldarverksmiðju rík-
isins, Skreiðarsamlagsins, sat í
hreppsnefnd 1922-50, hafnarnefnd,
stjórn Sparisjóðsins og var sýslu-
nefndarmaður frá 1928-64.
Sigurður lést 19.4. 1976.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Ágústsson
90 ára
Gunnar Pálmarsson
Hjalti Þórðarson
Sigríður Stefánsdóttir
Unnur Ólafsdóttir
85 ára
Aðalsteinn Friðfinnsson
Rósa Guðmundsdóttir
Sverrir Tryggvason
80 ára
Árni Guðmundsson
Júlí Sæberg Þorsteinsson
75 ára
Erla Björgólfsdóttir
Guðbjörg Jóna
Magnúsdóttir
Guðrún Eggertsdóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir
Þyri Laxdal
70 ára
Brynjólfur Brynjólfsson
Guðrún Jónasdóttir
Gunnar Magnússon
Kirsten Pálsson
Þuríður Haraldsdóttir
60 ára
Erla Gunnarsdóttir
Eygló Kristín Gunnarsdóttir
Guðmundur B. Gunnarsson
Ingólfur Kristófersson
Theódóra A.
Sveinbjörnsdóttir
50 ára
Axel Viðar Hilmarsson
Guðmundur Hannes
Hannesson
Guðmundur Sigurður Þór
Lárusson
Helga Héðinsdóttir
Helga Sigfúsdóttir
Herdís Sigurðardóttir
Jóhanna Björnsdóttir
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir
Rögnvaldur A. Hrólfsson
Sigríður Ólína Haraldsdóttir
Sigrún Óskarsdóttir
Sigurlaug Gísladóttir
Sigurveig Harpa
Ágústsdóttir
Þórhildur Þórhallsdóttir
40 ára
Arnheiður Hjörleifsdóttir
Giedré Zaliaduoniené
Harpa María Pedersen
Hau Thi Pham
Lára Jakobsdóttir
Siggeir Magnús
Hafsteinsson
Steinarr Logi Nesheim
Thelma Gunnarsdóttir
30 ára
Andri Valgeirsson
Arnar Freyr Sigmundsson
Álfhildur E. Þorsteinsdóttir
Beata Halina Swider
Bryndís Hrund
Brynjólfsdóttir
Helga Valgerður Ísaksdóttir
Nína Dís Ólafsdóttir
Sandra Rut Þorsteinsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
Sveinbjörg Inga Leifsdóttir
Þorsteinn Ingi
Valdimarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Óttarr býr í
Reykjavík, er verk-
efnastjóri og formaður
Varðar.
Maki: Katrín Rut Reyn-
isdótttir, f. 1976, sérfræð-
ingur hjá VÍS.
Dætur: Hafdís Hrönn, f.
1999; Emma Brá, f. 2005,
og Eva María, f. 2012.
Foreldrar: Ásdís Runólfs-
dóttir, f. 1948, og Guð-
laugur Heiðar, f. 1948.
Fósturfaðir: Jóhannes
Reynisson, f. 1950.
Óttarr Örn
Guðlaugsson
30 ára Sigurður ólst upp
á Kirkjubæjarklaustri, býr
í Reykjavík, lauk sveins-
prófi í rafvirkjun og starf-
ar hjá Rafkraft.
Maki: Salbjörg Ólafs-
dóttir, f. 1985, lagerstarfs-
maður.
Foreldrar: Guðni Sig-
urður Sigurðsson, f. 1936,
bóndi á Maríubakka í
Fljótshverfi, og Anna
María Ólafsdóttir, f. 1951,
starfsmaður á hjúkrunar-
heimilinu á Klaustri.
Sigurður Karl
Guðnason
30 ára Svanhildur býr í
Reykjavík, lauk
cand.psych.-prófi frá HÍ
og hefur verið sálfræð-
ingur hjá Hjallastefnunni.
Maki: Theódór Jónsson,
f. 1982, atvinnukafari.
Börn: Gabríel Úlfur Theó-
dórsson, f. 2008, og Ið-
unn Ylfa Theódórsdóttir, f.
2014.
Foreldrar: Sigurjóna
Kristinsdóttir, f. 1960, og
Ólafur D. Helgason, f.
1950.
Svanhildur T.
Ólafsdóttir
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdóms-lögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttar-lögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti