Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 76. tölublað 103. árgangur
BÖRN FRÆDD UM
SKYNDIHJÁLP OG
SLYSAGILDRUR
BÍLAR HRINGJA
SJÁLFIR Í
NEYÐARLÍNUNA
HREINT ÚT
SAGT MÖGNUÐ
UPPFÆRSLA
BÍLAR HYSTORY 38RAUÐI KROSSINN 10
Morgunblaðið/Eyþór
Kjötsúpa Margir telja að kjötsúpa sé hinn
eini sanni þjóðarréttur Íslendinga.
Sauðfjárbændur vilja að íslenskt
lambakjöt verði viðurkennt sem
þjóðarréttur Íslendinga. Tillaga um
að fela stjórn samtakanna að vinna
að þessu var samþykkt á nýaf-
stöðnum aðalfundi. Þórarinn Ingi
Pétursson, formaður Landssam-
taka sauðfjárbænda, segir að eftir
sé að skoða hvernig þessari sam-
þykkt verði hrint í framkvæmd.
„Þetta er ein af þeim skemmti-
legu tillögum sem komu frá aðild-
arfélögunum. Við munum fylgja
þessu eftir,“ segir Þórarinn og
nefnir að kanna þurfi hjá einhverju
ráðuneytanna hvort hægt sé að fá
slíka viðurkenningu. Jóhannes Þór
Skúlason, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, segir að þetta sé áhuga-
verð hugmynd og hugsanlegt að
nýta nýtt atkvæðagreiðslukerfi
Hagstofunnar til að kanna hug
fólks. »6
Lambakjöt verði
viðurkennt sem
þjóðarrétturinn
Heilmikil vinna
» Formaður atvinnuvega-
nefndar segir að heilmikil
vinna verði að fara yfir sjáv-
arútvegsfrumvörpin.
» Þau feli í sér miklar breyt-
ingar, einkum varðandi makríl.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Veiðigjald á næsta fiskveiðiári á að
skila 10,9 milljarða brúttótekjum,
samkvæmt frumvarpi Sigurðar Inga
Jóhannssonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, sem afgreitt
var úr ríkisstjórn í gær. Það er rúm-
lega milljarðs króna hækkun á veiði-
gjaldi á milli ára.
Tekið verður upp eitt veiðigjald í
stað tveggja áður. Veiðigjaldið mun
áfram taka mið af afkomu útgerðar.
Það verður staðgreitt og mun miðast
við landaðan afla í stað þess að mið-
ast við úthlutaðar aflaheimildir.
Veiðigjaldið verður innheimt mánað-
arlega. Veiðigjaldafrumvarpið er til
þriggja ára og fellur þá úr gildi.
Í frumvarpi um makrílveiðar, sem
einnig var afgreitt í gær, er lagt til 10
króna tímabundið viðbótargjald á
hvert kíló af makríl. Miðað við
150.000 tonna makrílafla myndi það
skila 1,5 milljörðum króna í ríkissjóð.
Þetta viðbótargjald á einungis að
gilda í sex ár og er hugsað sem inn-
göngugjald fyrir að setja makríl-
stofninn inn í kvótakerfið. Úthlutun
makrílkvóta verður tímabundin.
12,4 milljarða gjöld á ári
Veiðigjald á að skila 10,9 milljörðum á næsta ári Sérstakt gjald á makríl gæti
skilað 1,5 milljörðum á ári næstu sex árin Makríllinn á að fara inn í kvótakerfið
MGjald fyrir að kvótasetja »12
Eiginfjárvandi Sparisjóðs
Vestmannaeyja breyttist í
lausafjárvanda undir lok
síðustu viku þegar við-
skiptavinir sjóðsins tóku út
af reikningum sínum 350
milljónir á fimmtudegi og
samsvarandi upphæð degi
síðar. Þá var orðið ljóst að
erfitt myndi reynast að forða sjóðnum
frá yfirtöku Landsbankans sem á
þeim tíma vann að yfirtökutilboði á
honum.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var um
þriðjungur úttektanna, rúm-
ar 200 milljónir, tekinn út af
reikningi greiðslumiðlunar-
fyrirtækisins Borgunar hf.
en fyrirtækið er að stærst-
um hluta í eigu Íslands-
banka.
Úttektir síðustu tvo virka daga lið-
innar viku námu um 20% af óbundn-
um innstæðum eins og þær voru um
mitt síðasta ár. »18
Áhlaup á sjóðinn
Dótturfélag Íslandsbanka tók rúmar
200 milljónir út úr sparisjóðnum í Eyjum
Margir munu eflaust leggja land undir fót um páskana. Sumir hyggja á
ferðir innanlands en aðrir til útlanda þar sem sólin yljar. Svo er líka ágætt
að vera heima við og fá sér góðan göngutúr í svalri norðanáttinni eins og
þetta fólk sem ljósmyndari myndaði á förnum vegi við Tjörnina. Reikna má
með björtu veðri á suðurhelmingi landsins í dag og á morgun, en á norð-
anverðu landinu er búist við snjókomu og skafrenningi í dag.
Hressandi göngutúr í norðanáttinni
Morgunblaðið/Kristinn
Margir á faraldsfæti um páskana
Víkingur Heið-
ar Ólafsson er
nýskipaður list-
rænn stjórnandi
sænsku tónlist-
arhátíðarinnar
Vinterfest. Há-
tíðin, sem haldin
er í sænsku Döl-
unum, er marg-
rómuð en Vík-
ingur Heiðar
kveðst ætla að koma inn með nýjar
áherslur, „jafnvel gjörningamynd-
listarverk, vídeólist og þess háttar í
bland við tónlistina“. »39
Víkingur Heiðar
stjórnar Vinterfest
Nýr Víkingur tekur
við af Martin Fröst.
Fjölskylda manns frá Sýrlandi sem
búsettur er hér á landi ásamt ís-
lenskri eiginkonu, má ekki heim-
sækja þau hingað til lands. Þetta
kemur fram í nýjum úrskurði kæru-
nefndar útlendingamála en til stóð
að fjölskylda mannsins kæmi hing-
að í brúðkaupsveislu hjónanna fyrir
nærri tveimur árum síðan.
Ákvörðun Útlendingastofnunar
um synjun vegabréfsáritunar fjöl-
skyldunnar var kærð til innanrík-
isráðuneytisins fjórum mánuðum
síðar en ekki var unnið í málinu fyrr
en tæpu einu og hálfu ári síðar.
Hjónin undrast seinaganginn og
ítrekuð svör frá ráðuneytinu á
þessu tímabili um að kæran væri til
skoðunar. Þau segjast hrygg vegna
vinnubragðanna og telja að sýna
mætti ríkari mannvirðingu í sam-
skiptum við fólk við slíkar að-
stæður. Ástæðurnar að baki synj-
uninni eru þær að tilgangur ferðar
fjölskyldunnar hingað til lands var
dreginn í efa auk þess sem ástæða
þótti til að efast um að fólkið sneri
heim aftur að heimsókn lokinni
vegna ástandsins í heimalandi þess.
»14
Fjölskyldan má ekki
koma í heimsókn
Frosti Sigur-
jónsson, formað-
ur efnahags-
nefndar, segir
fjölda erlendra
sérfræðinga hafa
lagt hönd á plóg-
inn við ritun
skýrslu um breyt-
ingar á banka-
kerfinu. „Þeim
fannst mjög já-
kvætt að forsætisráðherra Íslands
léti vinna skýrslu um þetta málefni.
Sem fullvalda þjóð með eigin gjald-
miðil eru Íslendingar í góðri aðstöðu
til að taka frumkvæði að því að gera
raunverulegar endurbætur á pen-
ingakerfinu.“ »16
Íslendingar leiði
uppstokkun banka
Frosti
Sigurjónsson